Feykir - 21.12.2009, Qupperneq 15
48/2009 Feykir 15
AÐSEND GREIN
Skipulags- og íþróttamál
Byggjum enn betri bæ
til framtídar
Nýiega voru kynntar á
íbúafundi í FNV tillögur að nýju
aðalskipuiagi Sauðárkróks
til næstu 12 ára, unnar af
ráðgjafafyrirtækinu ALTA. Fyrir
okkur íbúa er mikilvægt að
koma að vinnu sem þessari
og það er gott að sköpuð
sáu tækifæri fyrir umræðu
og skoðanaskipti um okkar
nærsamfélag.
Á fundinum komu fram ýmis
sjónarmið varðandi skipulagið
og í þessu greinarkorni ætla
undirrituð að íjalla um þau
atriði sem snerta skipulag
íþróttasvæða á Sauðárkróki.
Við sem þetta ritum höfum
starfað á ýmsum sviðum
innan íþróttahreyfingarinnar
og höfum síðustu daga rætt
um það hvað við getum verið
sammála um varðandi þessi
mál, en ekki að dvalið við það
sem okkur greinir á um. Með
það að veganesti vonum við að
skapa megi grunn að sátt um
næstu skref í skipulagsmálum
er varðar íþróttirnar.
Rétt er þó að halda því
til haga að hér er rætt um
landnotkun á ákveðnum
svæðum, tilgangur þessarar
skipulagsvinnu er ekki að
taka ákvörðun um hvort eða
hvenær einstök mannvirki
verði byggð.
Núverandi æfingasvæði
knattspyrnu á Sauðárkróki
og framtíðarmöguleikar
Núverandi íþróttasvæði á
Sauðárkróki sem heild er
frábært, en því miður ekki
nægilega stórt til að rúma
knattspyrnuæfingar sem
þar þurfa að fara fram og
möguleikar til stækkunar
svæðisins eru ekki til staðar.
Fyrirhuguð viðbygging við
Árskóla og þær breytingar sem
munu fylgja henni, ef af verður,
mun þrengja enn frekar að
svæðinu. Undanfarin sumur
hefur hluti æfinga yngri flokka
farið fram uppi á Nöfum.
Ýmsir ókostir fylgja þessu
fyrirkomulagi, aðstaðan þar
er heldur bágborin, óhagræði
og ruglingur getur skapast af
því að hafa æfingar á fleiri en
einum stað og reynslan sýnir að
börnum er oftar ekið á æfingar
á Nöfum en á æfingar sem
fram fara neðan þeirra. Það
liggur því fyrir að stækka þarf
æfingasvæði fyrir knattspyrnu
á næstu árum, færa þarf það
nær íbúabyggðinni og einnig
að koma upp vetraraðstöðu
fyrir æfingar í knattspyrnu
og frjálsar íþróttir, sem skapa
myndi meiri æfingatíma fyrir
körfuknattleik í núverandi
íþróttahúsi.
Það er jákvætt að
fram séu komnar af hálfu
sveitarfélagsins hugmyndir um
nýtt framtíðaræfingasvæði fyrir
knattspyrnu á mýrasvæðinu
austan nýja leikskólans en
það skapar tækifæri að ræða
framtíðarfyrirkomulag þessara
mála. Aðgengi að því svæði er
gott og stærð þess bíður upp á
möguleika á því að byggja upp
í framtíðinni nægilega stórt
æfingasvæði í áföngum og
það án þess að vera með velli
í mismunandi hæð, eins og á
núverandi æfingasvæði. Þar er
jafnframt nægt landrými fyrir
tjaldstæði sem mun nýtast
vel á þeim íþróttamótum sem
nú eru haldin hér. Stærra
æfingarsvæði skapar einnig
ýmsa möguleika við þróun
og stækkun mótanna okkar.
Leysa þarf hvernig tengja
skal saman mýrarsvæðið og
núverandi íþróttasvæði á
sem einfaldastan hátt. Áður
framkomnar hugmyndir
íþróttahreyfingarinnar um
æfingasvæði á Nöfnum þarf að
meta ásamt þessum kosti til að
finna bestu heilstæðu lausnina
fyrir íbúa og mótahald.
Vetraraðstaða
Varðandi vetraraðstöðu hafa
nokkur byggðarlög að sam-
bærilegri stærð og Sauðár-
krókur á undanförnum árum
byggt íjölnota íþróttahús eða
gervigrasvöll. Skipulag á
landnotkun þarf að sýna kosti á
staðsetningu á slíku mannvirki
ef tO þess kæmi. Staðsetningar
sem nefndar hafa verið eru
annars vegar í tengingu við
núverandi íþróttahús og
ofar í Grjótklaufinni. Slík
staðsetning kallar á mikla
efnisflutninga en hagræði af
samrekstri við íþróttahús og
skóla gætu borgað það upp
á fáum árum. Uppbygging á
mýrarsvæðinu kallar á mikið
efni í undirbyggingu og trúlega
má leysa þessi tvö verkefni
saman. Hins vegar hefur
komið fram staðsetning við
æfingasvæði í mýrum, líkt og
áðurnefndskipulagstillagagerir
ráð fyrir. Ef til vill mætti byrja á
því að útbúa einn gervigrasvöll
á nýju æfingarsvæði en
það myndi strax gjörbreyta
aðstöðu til knattspyrnuiðkunar
á veturna. Síðar meir væri
hægt að byggja yfir völlinn og
koma upp félagsaðstöðu fyrir
ungmennafélagið eins og hjá
öðrum klúbbum.
Aukið rými við Árskóla
skapar einnig möguleika á
að útbúinn yrði nýr og betri
körfuboltavölluráskólalóðinni.
Þá er einnig spennandi að
kanna þá möguleika hvort ný
æfinga- og keppnissundlaug
sem myndi nýtast fyrir
skólasund myndi rúmast
norðan við íþróttahúsið
Nauðsynlegt er að draga
saman alla hagsmunahópa;
Árskóla, UMF Tindastól,
Golfklúbbinn, Þreksport,
Skagaíjarðarhraðlestina fýrir
hönd fyrirtækjanna, Félag
eldri borgara, Sveitarfélagið
og jafnvel fleiri til að horfa
heilstætt á þetta verkefni.
Við vitum að fjármagn er
takmarkað en eigi að síður
þarf að gera ráð fyrir svæði og
leggja grunn af stefnu til lengri
tíma litið.
Ræðum málin
á jákvæðum nótum
Við undirrituð sem störfum
innan íþróttahreyfingarnar
viljum mæta til þessarar
umræðu, um framtíðarskipulag
íþróttasvæða á Sauðárkróki,
með jákvætt hugarfar og með
það fýrir augum að vinna með
þá sóknarmöguleika sem ný
aðstaða mun skapa fyrir okkar
starf. Tilgangslaust er að berja
hausnum við steininn og reyna
að halda í það sem augljóslega
dugar ekki tO framtíðar.
Róttækar breytingar, eins
og að færa æfingasvæðið, er
stór aðgerð og hún er eðlilega
mikið tilfinningamál fyrir
mörg okkar. Eigi að síður er
framkomin tiOaga raunhæf
leið í stöðunni þegar litið er til
heildarhagsmuna barna okkar
tO lengri tíma.
En eitt er að ætla og annað
að gera. Það er okkar mat
að viðbyggingu við Árskóla
verði að fylgja tímasett
áætlun um uppbyggingu á
nýju æfingasvæði, ekki bara
hugmyndir um það hvar það
gæti verið staðsett í framtíðinni.
Þannig mætti hefjast handa við
að rækta upp nýtt svæði strax
næsta sumar, ef ráðist verður
í byggingu Árskóla á næsta
ári, og þegar það svæði verður
tilbúið þá er hægt að leggja af
núverandi svæði í áföngum.
Tökum höndum saman við
þróun og uppbyggingu á ennþá
betri Sauðárkróki til framtíðar
með hagsmuni sem flestra að
leiðarljósi, ekki síst hagsmuni
barnanna okkar.
Guðjón Örn Jóhannsson,
stjórnarmaður í
knattspyrnudeild UMFT
Gunnar Gestsson,
formaður UMFT
Helga Eyjólfsdóttir,
stjórnarmaður í UMSS
Jakob Frímann Þorsteinsson,
varaformaður UMSS
Jón Daníel Jónsson,
stjórnarmaður í UMFT.
Snorri Styrkársson
stjórnarmaður í sunddeild
UMFT
Róbert Óttarsson formaður
knattspyrnudeildar UMFT
Vanda Sigurgeirsdóttir,
fyrrv.formaður
knattspyrnudeildar UMFT
Viggó Jónsson,forstöðumaður
skíðasvœðis UMFT
og stjórnarmaður í
körfuknattleiksdeild UMFT
Þorsteinn Tómas Broddason,
formaðurfrjálsíþróttadeildar
UMFT