Feykir - 21.12.2009, Page 27
48/2009 FeykJr 27
( ÚR ELDHÚSI LESENDA )
Ólafur Smári og Ólína Valdís kokka
Mexíkóskt lasaqna
og frábær ostakaka
Nú fyrír jólin eru það Ólafur Smári og Ólína Valdfs á
Sauðárkróki sem koma með fljótlega og góða rétti og
ættu að henta sérstaklega vel fyrir þá sem ekki fá sér
skötu á Þorláksmessunni.
Þau ætla að skora á Ragnheiði Rúnarsdóttur og Hörð
Knúts í Eyratúni 1 á Sauðárkróki að koma með uppskriftir á
nýju ári.
FYRIR 4
Mexíkóskt Lasagna
með hakkblöndu
Ofnhiti: 200°c undir/yfirhiti
5 Tortilla pönnukökur
Hakkblandan:
1/2 rauðlaukur
1 hvítlauksrif
200 gr. nautahakk
2 msk. burritos
eða taco kryddblanda
3á dl. kalt vatn
Ostablandan:
1 dl. rifinn ostur
1 dl. kotascela
1 dl. sýrður rjómi
1 dl. salsasósa
1 ‘A dl. rifmn ostur
til að setja ofan á
Aðferð:
1. Takið utan af hvítlauks-
geiranum og merjið í pressu
2. Saxið laukinn smátt
3. Brúnið hakkið, laukinn og
hvítlaukinn á heitri pönnu,
þangað til kjötið er allt eldað í
gegn.
4. Hellið kryddblöndunni og
vatninu yfir og hrærið vel.
5. Slökkvið undir pönnunni og
geymið.
6. Blandið öllu saman sem á að
fara í ostablönduna saman í skál
7. Þekið botninn á eldföstu móti
með pönnukökum.
8. Smyrjið hakkblöndunni yfir.
9. Þekið með pönnukökum og
smyrjið svo ostablöndu yfir.
10. Endurtakið og endið svo
á að blanda ostasósunni og
afganginum af hakkinu saman á
síðustu pönnukökuna. Þekið að
lokum með rifnum osti.
11. Bakið í miðjum ofni í 15
mín. eða þangað til osturinn er
vel brúnaður.
12. Berið fram með fersku
salati.
Smábrauð
250 gr. beikonsmurostur
1 dós sýrður rjómi
1 skinkubréf
Aðferð:
(Smábrauð) má nota snittu-
brauð. Skinkan smátt skorinn
og sett i skál, ostinum og sýrða
rjómanum er svo bætt í. Öllu er
blandað vel saman og smurt á
brauðið. Bakist í ofni við 180°c
þar til osturinn er vel brúnaður.
Frábœr ostakaka
1/2 pk. hafrakex, frón, mulið
3/4 dl. valhnetur,
gróft muldar
100 gr. smjör
2 msk. púðursykur
Aðferð:
Leysið púðursykurinn upp í
smjörinu við góðan hita í potti.
Hrærið kexinu og hnetunum út
í og hellið í eldfast mót. Þrýstið
létt í botninn og kælið.
1/2 l rjómi, þeyttur
150 gr. flórsykur
200 gr. rjómaostur
1/2 glas vanilludropar
Aðferð: Þeytið saman
rjómaost og flórsykur þar til
það er kekkjalaust. Hrærið
vanilludropum saman við og
svo rjómanum varlega saman
við. Hellið yfir kexbotninn og
að síðustu hellið 1/2 krukku
af kirsuberjasósu (den gamle
danske fabrik) yfir. Kælið.
Vferðf ykkur að góðu!
Gómsætir eftirréttir um jól og áramót
Sætt í maga eftir
þungan mat
Góðir eftirréttir yfir jólin eru hjá mörgum eins og punkturinn yfir i-ið.
Margir bjóða alltaf upp á nýjan og nýjan eftirrétt á meðan aðrir eru
vanafastari. Feykir fór á stúfana og fann nokkrar skotheldar uppskriftir fyrir
jóla- og áramótaeftirrétti.
Jólagrautur
165 gr. hrísgrjón
11. mjólk
4 dropar vanilla
75 gr. sykur
50 gr. möndluspænirfmá sleppa)
1/21. þeytturrjómi
1 tsk. salt
Hindberjasaft
l.Setjið mjólkina í pott og sjóðið
með sykri, salti og vanillu.
2. Setjið hrísgrjónin út í þegar
suðan kemur upp. Setjið þá lok
á pottinn og látið hann inn í 125
C° heitan ofn. Bakið í 30 mínútur.
(Ég hef oft látið hann vera dálítið
lengur).
3. Takið pottinn úr ofninum,
hrærið í hrísgrjónunum og látið
kólna yfir nótt.
4. Þeytið rjóma og hrærið köldum
hrísgrjónunum út í hann ásamt
möndluspæninum. Berið fram
með hindberja eða kirsuberjasaft.
ÍS
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur
1 tsk. vanilludropar
V2 I. rjómi
100 til 300 gr. Toblerone eða Dajm eða
gott súkkulaði að ykkar smekk.
Eggjarauður, púðursykur og
vanilludropar þeytt vel saman.
Rjóminn er þeyttur (ekki alveg
stífþeyttur) og súkkulaðið er
saxað niður og hrært saman við
blönduna með sleif.
ísinn er síðan settur i álform og
inn í frysti.
Heitar perur
1 heil dós pemr
4 eggjahvítur
4 msk. flórsykur
150 gr. suðusúkkulaði
Raðið perunum í eldfast mót.
Stífþeytið eggjahvítur og
sykur. Þekið perurnar með
eggjahrærumassanum. Bakið við
110 gráður í u.þ.b 20 mínútur eða
þar til massinn er fallega brúnn.
Bræðið súkkulaði í vatnsbaði og
smyrjið því yfir hvíturnar, þegar
formið er tekið úr ofninum. Berið
fram heitt með ís.
Vetrarsól
Botn:
2 eggjahvítur
80 gr. sykur
1/3 tsk. edik
u.þ.b. 5Ogr. möndlur, hakkaðar
70 gr. Sirius suðusúkkulaði (konsum),
saxað smátt
ísinn:
2 eggjarauður
legg
50 gr. sykur
21/2 dl. rjómi, þeyttur
1 tsk. vanilludropar
200 gr. Síríus rjómasúkkulaði með
hnetum, saxað
Sósa:
1 msk. síróp
100 gr. Síríus suðusúkkulaði (konsum)
100 gr. Síríus rjómasúkkulaði
3 dl. rjómi
Leiðbeiningar
Botn
Þeytið hvíturnar vel og setjið
svo sykurinn út í og edikið
og þeytið þar til sykurinn er
uppleystur. Blandið möndlunum
og súkkulaðinu saman við með
sleikju. Bakið við 110°C í u.þ.b.
40 mín.
ísinn
Þeytið eggin og sykurinn
vel saman, blandið þeyttum
rjómanum og vanillunni saman
við með sleikju. Saxið súkkulaðið
smátt og blandið því saman við.
Setjið botninn í form, hellið ísnum
yfir og frystið, helst yfir nótt.
Sósa
Setjið allt í pott við lágan hita og
látið malla í u.þ.b. 3 mín. Berið
strax fram með tertunni. Athugið:
Þessi terta geymist vel og lengi í
frysti. Takið tertuna út nokkru
áður en hún er borin fram, u.þ.b.
30 mínútur.
Baileys-ís
6 eggjarauður
1 bolli púðursykur
1/2 dl. Bailey's
200-300 gr. Valencia m/núggati og
hnetum
1/21 rjómi
Blandað saman og sett í frysti.
(Eggjahvíturnar má einnig nota,
þá verður ísinn meiri og léttari).
Ljúffeng konfektsósa
200 gr. Valencia súkkulaði m/
núggati og hnetum
100 gr. suðusúkkulaði
3 dl. rjómi
Hráefnið er sett í pott, hrært
saman á vægum hita, látið malla í
20 mín. Þessi verður mjúkur!
Sherry-triffli
1 eina skál:
3 eggjarauður
2 þeyttar eggjahvitur
1 peli rjómi auk rjóma sem fer ofan á.
Líklega tæpir 2 pelar alls.
1 msk. sykur
2-3 blöð matarlím
Sherry
Mulið suðusúkkulaði
Sulta (jarðarberja- eða hindberjasulta í
neðsta lagið, rifsberjasulta ískreytingu
efst).
Makkarónur
Makkarónur í botninn sulta eftir
smekk. Sherrý (t.d. 50 gr. sjá
aths.). Makkarónurnar aðeins
muldar og sultan sett saman við
sherrýið. Þetta aðeins hrært með
gaffli.
Eggjarauðurnar hrærðar með
sykri til að blandast saman.
Eggjahvítur þeyttar, síðan rjómi
þeyttur og þessu blandað saman.
2-3 blöð matarlím vætt í köldu
vatni og kreist út í og sett í pott
sem er hitaður í heitu vatni.
Matarlíminu er síðan hellt í
hræruna mjög mjórri bunu og
hrært varlega svo ekki kekkist.
Látið stirðna.
Síðan lag af hvítum rjóma efst og
skreytt með rifsberjahlaupi og
röspuðu suðusúkkulaði.
Það sem er vandasamast er þegar
mararlíminu er hellt í hræruna.
Það þarf að gerast mjög varlega
til að forðast kekki. Að öðru leyti
er mjög auðvelt að útbúa þennan
ljúffenga desert