Alþýðublaðið - 10.12.1919, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.12.1919, Blaðsíða 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 V. K. F. Framsókn heldur fund II. þ. m. á venjulegum staö og tíma. —jTngimar Jóns- son stud. theol talar um skilnað ríkis og kirkju. Konur beðnar að fjölmenna. — Kaffi verður drukkið á eftir og konur hafi með sér kökur. Stjórnin. J. M. Hinn helmingurinn vildi Kobbá. Pétur Zóphóniasson talaði, og það varð, og hann bauð, og svo stóð það þar, og 17 bílar, sem stóðu undir hans yfirumsjón, þustu fram og aftur um bæinn allan daginn og sóttu kjósendur, sem voru „háttvirtir" þennan eina dag. Og Pétur neri saman lófun- um og leit yfir alt, sem hann hafði gert, og hélt að það væri harla gott. Því hann vissi ekki, að í hverjum bíl sat maður, sem sagði fólkinu að kjósa Svein og Kobba, en ekki Jón. Aumingja Pétur! Hann vissi, að laummarnir kroppa ekki aug- un hver tír öðrum, og að jafnvel meðal verstu glæpamanna, þjófa og ræningja, ríkir jafnan svo mik- il) siðferðisþroski, að þeir svíkja ekki hver annan í trygðum. En hann varaði sig ekki á því, að Sjálfstjórnarhöfðingjarnir stæðu að þessu leyti á lægra þroskastigi en hrafninn. Eg. Koli konnitgur. Eftir Upton Sinclair. (Frh.). Fyrir tæpu ári síðan hafði skeð svona slys. Ungur asnreki, frá Kroatíu, sagði Halli frá þessu, Rieðan þeir voru að japla inni- haldið tír mataríláti sínu. Fyrsti lyftirinn var farinn niður fullur af nöldrandi mönnum, sem mót- mæltu að fara niður. Skömmu síðar hafði maður farið með ó- byrgt. !jós niður, sem valdið hafði sprengingu, svo agalegri, að því var líkast, sem jörðin mundi hrynja saman. Átta menn biðu bana. Og svo hafði sprenginginn verið áköf, að sum líkin varð að skera í parta til þess, að hægt vseri að ná þeim, svo föst voru þau milli lyftisins og námuveggs- ins. Það var andskotans Japönun- bm að kenna, bætti heimildar- maður Halls við. Það hefði líka sldrei átt að hleypa þeim að í námunum, því ekkert vald á bimni eðá jörð, gat haldið Japana írá Því, að stelast til þess, að fá sél’ í pípu, Ntí vissi Hallur, að Norðurdalur Var sannkallað Helvíti, fult ang- istar og kvíða. Hvílíkar sögur myndu námugöngin gömlu geta sagt, ef þau gætu talað! Hallur horfði á mennina, sem fóru hóp- um saman til vinnu sinnar, og hugsaði um, að eftir hagskýrslum ríkisins myndu 9—10 af hverju þtísundi vera dæmdir til þess, að deyja vofeiflega, áður en árið væri liðið, og aðrir 30 mundu verða örkumla menn. Og þeir vissu það líka, vissu það 4 betur en allir saman hagfræðingarnir. Og þó fóru þeir til vinnuIJHvaða afl var það, sem gat haldið mönn- um við aðra eins vinnu? Yar það skyldutilfinning? Skyldu þeiiÝþað, að þjóðfélagið varð að fá kol, og að einhverjir urðu að leggja sig niður við að vinna þau? Eða voru þetta að eins heimskingjar og raggeitur, sem hlíddu í blindni, vegna þess, að þeir höfðu hvorki vit né vilja til þess að gera annað? Forvitnin hélt honum kyrrum. Hann varð að þekkja til botns þessa þögulu, þolinmóðu herskara, sem öldum saman hafa fórnað lífi sínu til annars eins starfa. Hann varð að skilja þá, vita hvað í þeim bjó. X. Og Hallur kyntist þessu fólki, kyntist því, eklci sem einni heild, sem maður fyrirleit, en kendi þó í brjóst um jafnframt, heldur sem einstaklingum, hverjum með sínar kendir, hverjum með sína eigin skapgerð; aliir voru þeir eins og mennirnir i landi sólskins og sumars. Mary Burke og Tim Rafferty, kóreubtíinn Cho og kroatíubúinn Madrik — öll greind- ust þau úr hópnum og voru greipt í huga Halls greinilega og ljóst, þau komu í ljós í framsýn mynd- arinnar og veittu henni líf; en jafnframt vöktu þau samúðarkend Halls og lagsbróðurkend. Sumt af þessu fólki var auðvitað líkam- lega og andlega hrjáð og hrakið — en það voru líka margir, sem voru ungir, fullir vonar í brjósti og eldmóðs í huga. Einn hét Andy, ungur piltur af grískum ættum. í raun og veru hét hann Androkulos, en í kola- námu voru menn ekki að skeyta um smástytting nafna. Hallur veitti honum fyrst athygli í verzl- unarkytrunni. Hann varð hissa á hve andlitsdrættir hans voru fagrir og hve þunglyndisleg voru stóru dökku augun. Þeir yrtu hver á annan og Andy komst að því, að Hallur hafði elcki alla æfi verið í kolanámu, heldur hefði hann farið víða. Það gerði Hall hrærðan, hve rödd hans'varð á- köf; hann brann af löngun eftir lífinu og gleðskap þess og æfin- týrum — en í staðinn var hlut- skifti hans að sitja tíu stundir á dag í ltolabyng með ko! þjótandi um [eyru sér og vitin full af kolaryk, meðan hann kraflaði steinhellurnar með fingrunum 'úr kolunum. Hann var einn af mörg- um tugum „tínslu"-drengja. fc5»írttiíBilíeyti. Khöfn 9. des. Eistar [og Lettar ósamþykkir. Frá Helsingfors er símað, aö Eistar og Lettar séu ósammála um landamærin. ítalir taka Fiume. Frá Berh'n er símað, að ítalir hafi sett her á land í Fiume í samráði við d’Annunzio. Ameríkumenn fara heim. Frá París er símað, að Ame- ríska sendinefndin (á friðarráð- stefnunni) sé á förum heim. Friðslit? í orðsending Bandamanna [er þess krafist, að Þjóðverjar skrifi strax undir og afhendi ^skjölin, annars hótað að slíta vopnahlénu og senda her manns inn í Þýzka* land.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.