Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 8
6 Alþingiskosningar 1926 — 1927 alveg felt burtu og hækkaði þá kjósendatalan svo, aÖ hún komst upp í hjerumbil 45 °/o og hefur það hlutfall haldist síðan. Af kjósendatölunni 1927 voru 21721 eða 47.2 °/o karlar, en 24326 eða 52.8 °/o konur. Koma þá 1120 kvenkjósendur á móts við hvert 1000 karlkjósenda. Er það miklu meiri munur heldur en er á tölu allra karla og kvenna á landinu. Stafar það af því, að innan við kosningaraldur (25 ár) eru heldur fleiri karlar heldur en konur, en á kosningaraldri eru konur þeim mun fleiri heldur en karlar. Þegar kjósendatölunni er deilt með tölu kosinna þingmanna, koma á hvern þingmann 1279 kjósendur árið 1927, 1220 árið 1923, 937 áríð 1919, 394 árið 1914, 260 árið 1903 og 206 árið 1874. Talá kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1927 sjest á töflu I (bls. 21). Sjest þar, að kjósendatala kjördæmanna er mjög mis- jöfn, enda kjósa sum einn þingmann, önnur tvo og eitt (Reykjavík) fjóra. En þó tillit sje tekið til þingmannatölunnar í hverju kjördæmi, verður samt mjög mishá kjósendatala, sem kemur á hvern þingmann. Að baki sjer höfðu þingmennirnir 1927 færri en 800 kjósendur ........ 6 þingmenn 800—1000 — 9 — 1000—1500 — 13 — Yfir 1500 — 8 — Minst kjósendatala á þingmann kemur á Seyðisfirði, 449, og þar næst í Austur-Skaftafellssýslu 615. Aftur á móti kemur hæst kjósenda- tala á þingmann í Reykjavík, 2496 á hvern, og þar næst í Suður-Þing- eyjarsýslu, 1937. I Reykjavík eru 9985 kjósendur, sem senda 4 menn á þing, en í 11 kjördæmum (Seyðisfirði, Austur-Skaftafellssýslu, Norður- Múlasýslu, Norður-Þingeyjarsýslu, Strandasýslu, Vestur-Húnavatnssýslu, Rangárvallasýslu, Dalasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu, Mýrasýslu og ísafirði) eru samtals 10 099 kjósendur, sem senda 13 menn á þing. 2. Kosningahluttaka. Participation des électeurs. Við kosningarnar sumarið 1927 greiddu alls atkvæði 32 913 manns eða 71.5 o/o af allri kjósendatölunni á landinu. í þetta sinni fór atkvæða- greiðsla fram í öllum kjördæmum á landinu, en annars hefur það eigi allsjaldan komið fyrir áður, að engin atkvæðagreiðsla hefur farið fram í fleiri eða færri kjördæmum, vegna þess að þar hefur verið aðeins einn frambjóðandi. Síðan 1874 hefur kosningahluttakan verið:

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.