Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 12

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 12
10 Alþingiskosningar 1926—1927 dalshreppi og Hofshreppi í Skaftafellssýslu, greiddu atkvæði allir karl- menn, sem á kjörskrá stóðu, en í Borgarhafnarhreppi var kosningahlut- taka kvenna tiltölulega mest, 94.4 °/o. Minst kosningahluttaka meðal karla var í Grýtubakkahreppi 41.5 o/o, en meðal kvenna í Gnúpverjahreppi, 12.1 °/o. I töflu VI (bls. 37—38) er sýnd atkvæðatalan við aukakosningar þær, sem fram fóru 1926 í Gullbringu- og Kjósarsýslu, Reykjavík, Dalasýslu og Rangárvallasýslu. 3. Atkvæðagreiðsla utanhreppsmanna. t/otants hors de leur district. Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott- orði sýslumanns, að hann standi á annari kjörskrá í kjördæminu og að hann hafi afsalað sjer þar kosningarrjetti. Við kosningarnar haustið 1927 greiddu 459 menn atkvæði í öðrum hreppi eða kaupstað heldur en þar sem þeir stóðu á kjörskrá, eða 1.4 °/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu við kosningarnar. Við undanfarnar kosningar hefur þetta hlutfall verið: 1916............ l.o o/o 1923 ........... l.i % 1919 ........... 1.7 — 1927 ........... 1.4 — Af þeim, sem notuðu sjer þennan rjett árið 1927, voru 180 konur eða um 39 °/o. í töflu I (bls. 21) er sýnt, hve margir kusu á þennan hátt í hverju kjördæmi á landinu og í 1. yfirliti (bls. 8) sjest, hve margir það hafi verið í samanburði við þá, sem atkvæði greiddu í hverju kjör- dæmi. Tiltölulega flestir hafa það verið í Skagafjarðarsýslu (5.8 °/o af öllum, sem atkvæði greiddu). 4. Brjefleg atkvæði. Votes per lettre. Sjómenn og aðrir, sem staddir eru utan þess hrepps eða kaup- staðar, þar sem þeir standa á kjörskrá, þá er kosning fer fram, og ekki neyta hins almenna rjettar til þess að greiða atkvæði á öðrum kjörstað í sama kjördæmi, mega greiða atkvæði brjefiega, þannig að þeir sendi hreppstjóra eða bæjarfógeta á þeim stað, þar sem þeir standa á kjörskrá, fyrir kjörfund atkvæðaseðil í brjefi. Við kosningarnar haustið 1927 neyttu 2112 menn þess rjettar að kjósa brjeflega, eða 6.4 o/o af öllum þeim, sem atkvæði greiddu. Við undanfarandi kosningar hefur þetta hlutfall verið 1916............. 1.9 % 1923 ............ 13.0 % 1919 ............ 2.6 — 1927 ............ 6.4 —

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.