Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 44

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1929, Blaðsíða 44
Hagstofa Islands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálf- stæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslunum er út komið: Verslunarskýrslur 1912—1926. Búnaðarskýrslur 1912—1927. Alþingiskosningar 1908—1927. Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1927. íslensk inannanöfn 1. des. 1910. Barnafræðsla 1909—1920. Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918. Mannfjöldaskýrslur 1911—1915. Skýrslur um skipakomur 1913—1917. Manntal á íslandi 1. des. 1920. Sparisjóðir 1911 — 1925. II. Hagtíðindi, blað, sem kemur út mánaðarlega. Eru þar birtar ýmsar niðurstöður skýrslnanna áður en þær geta komið út í sjer- stöku hefti, svo og niðurstöður skýrslna, sem ekki þykir taka að birta í sjerstöku hefti, nema þá á fleiri ára fresti. Af Hagtíðindum er út komið: 1—13. árg. 1916—1928. III. Starfskrá íslands. Handbók um opinberar stofnanir og starfs- menn. Kemur út á nokkurra ára fresti. Af henni er út komið eiit hefti, árið 1917. Menn geta gerst áskrifendur að^ ofannefndum ritum Hagstofunnar með því að snúa sjer beint til hennar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið fyrir þau öll, en 4 krðnur fyrir Hagskýrslurnar eingöngu og 1 króna og 50 aurar fyrir Hagtíðindi eingöngu. Auk ofannefndra rita gefur Hagstofan út Manntal á íslandi áríð 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnússonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni og er gert ráð fyrir, að eitt hefti komi út á ári. Áskrift að öðrum ritum Hagstofunnar gildir ekki fyrir þetta rit, en menn geta gerst áskrifendur að því sjerstaklega og er sú áskrift bindandi fyrir alt ritið, en einstök hefti eru ekki seld sjerstök. Andvirði hvers heftis greiðist við móttöku. Komin eru út 1.—5. hefti, samtals 25 arkir að stærð, er kosta alls 15 krónur. Byrjað var á Gullbringusýslu og er komið vestur í Vestur-ísafjarðarsýslu.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.