Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Side 8

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Side 8
6 Alþingiskosningar 1934 alveg felt burtu og hækkaði þá kjósendatalan svo, að hún komst upp í hérumbil 45°/o. Og með stjórnarskrárbreytingunni 24. mars 1934 var aldurstakmark allra kjósenda lækkað niður í 21 ár og sveitarstyrkþegum veittur kosningarréttur. Við það hækkaði kjósendatalan um 11 þúsund og komst upp í 56 °/o. Af kjósendatölunni 1934 voru 31 039 eða 48.2 o/o karlar, en 33 299 eða 51.8 o/o konur. Koma 1073 kvenkjósendur á móts við hvert 1000 karlkjósenda. Er það meiri munur heldur en er á tölu allra karla og kvenna á Iandinu. Stafar það af því, að innan við kosningaraldur (21 ár) eru heldur fleiri karlar heldur en konur, en á kosningaraldri eru konur þeim mun fleiri heldur en karlar. Þegar kjósendatölunni er deilt með tölu kosinna kjördæmaþing- manna, koma á hvern þingmann 1693 kjósendur árið 1934, 1457 árið 1933, 1220 árið 1923, 937 árið 1919, 394 árið 1914, 260 árið 1903 og 206 árið 1874. Tala kjósenda í hverju kjördæmi við kosningarnar 1934 sést á töflu I (bls. 20). Þótt tillit sé tekið til þingmannatölunnar í hverju kjör- dæmi, verður samt mjög mishá kjósendatala, sem kemur á hvern kjör- dæmisþingmann. Að baki sér höfðu þeir 1934: færri en 1000 kjósendur ........ 7 þingmenn 1000—1500 — 12 — 1500—2000 — 7 yfir 2000 — 12 — Minst kjósendafala á þingmann kemur á Seyðisfirði, 605, og þar næst í Austur-Skaftafellssýslu 691. Aftur á móti kemur hæst kjósenda- tala á þingmann í Reykjavík, 3059 á hvern, og þar næst á Akureyri, 2662. 2. Kosningahluttaka. Participation des électeurs. Við kosningarnar sumarið 1934 greiddu alls atkvæði 52 440 manns eða 81.5 o/o af allri kjósendatölunni á landinu. Síðan 1874 hefur kosningahluttakan verið: Á öllu Á öllu landinu landinu 1874 .... . . . 19.6 o/o 1894 .... ... 26.0 % 1880 .... . . . 24.7 — 1900 .... . . . 48.7 — 1886 .... . . . 30.6 — 1902 .... . . . 52.6 — 1892 .... . . . 30.5 — 1903 .... . . . 53.4 —

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.