Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Side 9
Alþingiskosningar 1934
7
Þar sem atlwæöa- Á öllu Þar sem atkvæöa- Á öllu
greiösla fór fram landinu greiösla fór fram landinu
1908 .... 75.7 »/o 72.4 % 1923 .. . 75.6 % 70.9 %
1911 .. .. 78.4 — 78.4 — 1927 . . . 71.5 — 71.5 —
1914 .... 70.o — 55.8 - 1931 ... 78.2 — 78.2 —
1916 . .. . 52.6 — 48.2 — 1933 . . . 71.2 — 70.1 —
1918 . .. . 43.8 — 48.8 - 1934 . . . 81.5 — 81.5 —
1919 .... 58.7 — 45.4 —
Árið 1908 var fyrsl farið að kjósa skriflega í hverjum hreppi, en
áður var kosið munnlega á einum stað í hverju kjördæmi. Var þá auð-
vitað erfiðara að sækja kjörfund og kosningahluttaka því fremur lítil. Þó
komst hún upp í um og yfir helming kjósenda við síðustu munnlegu
kosningarnar um og eftir aldamótin. En þegar farið er að kjósa í hverj-
um hreppi vex hluttakan mikið og mest var hún 78.4 o/o við kosningarn-
ar 1911. Síðan varð hún minni, einkum 1916, er kvenfólkið bættist við
í kjósendatöluna, og 1918, er atkvæðagreiðsla fór fram um sambands-
lögin. Þá varð hluttakan aðeins 43.8 o/o af kjósendatölunni og stafaði það
af því, hve mótstaðan gegn þeim var lítil. Síðan 1923 hefur hluttakan
aftur verið miklu meiri. Með lögum 1923 var leyft að kjósa bréflega
heima hjá sér vegna elli og vanheilsu, en sú heimild var feld burt árið
eftir. Aftur á móti var með lögum 1925 leyft að hafa fleiri en einn
kjörstað í hreppi og hefir sú heimild verið notuð á ýmsum stöðum svo
sem sjá má á töflu I (bls. 20). Við kosningarnar 1934 var kosninga-
hluttakan meiri heldur en nokkru sinni áður, eða 8I.5O/0. Mest hefir hún
áður verið 78.4 0/0 árið 1911, og 78.2% árið 1931.
Þegar lifið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosning-
unum, þá sést, að hluttaka kvenna er minni en hluttaka karla. Við
kosningarnar 1934 greiddu atkvæði 88.2 °/o af karlkjósendum, en ekki
nema 75.3 0/0 af kvenkjósendum. Við kosningarnar 1933 voru bæði þessi
hlutföll lægri (80.4 og 63.2), en framförin er töluvert meiri meðal kvenna
en karla.
I töflu I (bls. 20) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis
hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1934. Hve mikil kosningahlutakan
var hlutfallslega í einstökum kjördæmum sést á 1. yfirlitstöflu (bls. 8).
Mest var kosningahluttakan á ísafirði (93.6 °/o), en minst var hún í Vestur-
ísafjarðarsýslu (70.9 %). Á ísafirði var kosningahluftakan mest bæði
meðal karla og kvenna (96.4 0/0 og 91.1 °/o), en minst í Vestur-ísafjarðar-
sýslu (79.4 % og 62.8 °/o). I einu kjördæmi aðeins var hluttaka karla í
kosningunum minni en 80%, en í 14 kjördæmum var hluttaka kvenna
þar fyrir neðan.