Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Page 14
12
Alþingiskosningar 1934
266), en aðalmunurinn liggur sami í þeim seðlum, sem ógildir hafa verið
metnir af öðrum ástæðum (280 nú, en 825 næst á undan). Stafar það
væntanlega af því, að svo hefur verið litið á, að kosningalögin nýju ætl-
uðust til minni strangleika í þessum sökum heldur en áður hefur tíðkast.
Hve mörg atkvæði urðu ógild í hverju kjördæmi við kosningarnar
1934, sést á töflu III (bls. 28—36), en í 1. yfirliti (bls. 8) er sýnt, hve mikl-
um hluta þau námu af öllum greiddum atkvæðum í kjördæminu. Tiltölu-
lega flest ógild atkvæði voru í Snæfellsnessýslu (2.2 °/o), en fæst í Mýra-
sýslu, aðeins 2 auðir seðlar, en enginn ógildur af öðrum sökum.
6. Frambjóðendur og þingmenn.
Candidats et repvésentants élus.
Við kosningarnar 1934 voru alls í kjöri 196 frambjóðendur og eru
þeir allir taldir upp með nafni, stétt og aldri í töflu III (bls. 28—36). Eru
það miklu fleiri frambjóðendur en nokkru sinni áður. Áður hafa þeir verið
flestir 113, við kosningarnar 1933. í Reykjavík voru 64 frambjóðendur
á 6 framboðslistum. I 1 kjördæmi var frambjóðendatala tvöföld á við
þingmannssæti, í 4 kjördæmum þreföld, í 11 kjördæmum fjórföld, í 2
kjördæmum 4V2-föld, í 7 kjördæmum 5-föld og í einu kjördæmi 6-föld.
Af 36 kjördæmaþingmönnum, sem sáfu á alþingi veturinn 1934,
buðu 32 sig fram aftur í sama kjördæmi, og voru 27 þeirra endur-
kosnir, en aðeins 4 drógu sig alveg í hlé. Við kosningarnar 1934 voru
kosnir 11 nýir kjördæmaþingmenn. Af þeim höfðu 8 aldrei setið á
þingi fyr, einn hafði verið landskjörinn þingmaður á næsta þingi á
undan (Jónas ]ónsson), en 2 höfðu verið þingmenn áður, þótt ekki
hefðu þeir átt sæti á næsta þingi á undan kosningunni (]ón Auðun
]ónsson og Sigurjón Á. Olafsson). Auk þess voru kosnir 11 uppbótar-
þingmenn eða landskjörnir þingmenn til jöfnunar milli þingflokka, sam-
kvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar frá 1934. 3 þeirra höfðu setið á
næsta þingi á undan (Guðrún Lárusdóttir og ]ón Baldvinsson sem
landskjörnir þingmenn og ]ón Sigurðsson sem kjördæmisþingmaður), 1
hafði verið þingmaður áður, en ekki setið á næsta þingi á undan
(Magnús Torfason), en 7 höfðu aldrei setið á þingi fyr.
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af frambjóðendunum við 5 síð-
ustu kosningar bjuggu í kjördæminu, sem þeir buðu sig fram í, og hve
margir utan þess:
Frambjóöendur alls Þingmenn
1923 1927 1931 19)3 1934 1923 1927 1931 1933 1934
Innanhéraðs .... 51 57 61 60 131 24 24 26 22 29
Utanhéraðs 26 34 43 53 65 12 12 10 14 20
Samtals 77 91 104 113 196 36 36 36 36 49