Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Síða 15

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Síða 15
Alþingiskosningar 1934 13 Við kosningarnar 1933 hefur tæpl. þriðjungur frambjóðenda verið utanhéraðsmenn, en 2/s af kosnum þingmönnum. Meiri hluti þeirra, 52 af 65, var búsettur í, Reykjavík, og náðu 16 þeirra kosningu. Eftir atvinnu skiftust frambjóðendur og þingmenn þannig: Fram ibjóðendur Þingmen n 1923 1927 1931 1933 1934 1923 1927 1931 1933 1934 Baendur 30 29 19 22 33 14 16 n 10 9 Sjávarútvegsmenn 3 4 6 5 9 3 4 3 4 4 Iðnaðarmenn 1 3 3 2 13 1 )) )) )) 1 Verslunar- og bankamenn 11 9 15 17 28 5 7 6 9 8 Verkam. og verkalýðsfél. starfsmenn )) 3 6 18 26 )) 1 )) )) )) Blaðamenn og embættisl. mentamenn 10 8 20 14 24 5 2 2 2 8 Embætlis- og sýslunarmenn 22 35 35 35 63 8 6 14 11 19 Samtals 77 91 104 113 196 36 36 36 36 49 Embættis- og sýslunarmenn eru fjölmennastir bæði meðal frambjóð- enda og þingmanna. Við .þessar kosningar var aldurstakmarkið fyrir kjörgengi og kosn- ingarrétti í fyrsta sinn 21 ár í stað 25 ára áður. í töflu III (bls. 28—36) er getið um fæðingarár og dag hvers fram- bjóðanda við kosningarnar 1934. Eftir aldri skiftust þeir þannig: Fram- Þing- Fram- Þing- bjóðendur menn bjóðendur menn 21—24 ára .., . . . . 12 í 50-59 — 26 8 25-29 — .. 26 2 60—69 — 8 4 30—39 — ... 65 11 yfir 70 — 1 )) 40—49 — . . .... 58 23 Samtals 196 49 Elstur frambjóðendanna var Pétur Þórðarson (í Mýrasýslu), 70 ára, en yngstur ]ón Aðils (á F-lista í Reykjavík), 21 árs, og náði hvorugur þeirra kosningu. Elstur þeirra, sem kosnir voru, var Sigfús Jónsson, 67 ára, en yngstur Gunnar Thoroddsen, 23 ára. Meðalaldur frambjóðenda var heldur lægri í Reykjavík heldur en annarsstaðar á landinu (38.6 ár í Reykjavík, en 40.5 ár utan Reykjavíkur). Meðalaldur allra frambjóð- enda við kosningarnar var 39.9 ár (44.7 árið 1933), en meðalaldur þeirra, sem kosnir voru, var nokkru hærri, 44.9 ár (46.4 árið 1933). Aftan við nöfn frambjóðendanna í töflu III (bls. 28—36) eru bókstafir, er tákna til hvaða flokks þeir töldust, þegar kosningin fór fram. Eftirfar- andi yfirlit sýnir, í hve mörgum kjördæmum hver flokkur hafði fram- bjóðendur við kosningarnar 1934 og hve marga, og hversu margir af þeim náðu kosningu.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.