Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Side 20

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Side 20
18 Alþingiskosningar 1934 orðið jafnari hlulfallstölunni. Uppbótarþingsætunum er nú úthlutað til þing- flokkanna eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta upp- bótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess, sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna, uns eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem msstum jöfnuði við hluifallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu IV A (bls. 37) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna við kosningarnar 1934, og jafnframt sýnt, hvernig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsætum þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Framsóknarflokkinn. Af þeim 11 uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1934, hlaut Al- þýðuflokkurinn 5, Sjálfstæðisflokkurinn 4 og Bændaflokkurinn 2. Var þá þingmannatala þessara flokka og meðaltal atkvæða á hvern þingmann, svo sem hér segir: Meöaltal atkvæöa Þingmenn á þingmann Siálfslæöistlokkur ............ 20 1 09814/20 FramsóknarflokUur ............. 15 75872 AlþýðufloUkur ................ 10 1 126 95/ioo Bændaflokkur................... 3 1 116 Ef halda hefði átt áfram að úihluta uppbótarþingsætum þangað til fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá hefði (eins og sjá má á töflu IV A) orðið að úthluta 26 uppbótarþingsætum. Þingmanna- talan hefði þá orðið 64 alls. Þar af hefði Sjálfstæðisflokkurinn haft 29 þingmenn, Framsóknarflokkurinn 15, Alþýðuflokkurinn 15 og Bænda- flokkurinn 4. Til þéss að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem ekki hafa náð kosningu í kjördæmum, skuli fá uppbóiarþingsæti, er farið aðallega eftir persónulegri atkvæðatölu þeirra í kjördæmunum, en þó getur þing- flokkurinn einnig haft nokkur áhrif á það með því að senda landskjör- stjórn skrá yfir frambjóðendur flokksins í þeirri röð, er flokkurinn ósk- ar, að þeir hljóti uppbófarþingsæti. Ekki koma til greina sem uppbótar- þingmenn fyrir sama flokk fleiri en einn frambjóðandi í kjördæmi, og er það sá, sem hæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en einn er að gera. Frambjóðendum hvers flokks, sem til greina geta komið sem uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart beinlínis eftir atkvæða- tölu þeirra, sumpait eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði og sumpart eftir óskum hlutaðeigandi þingflokks. Efstur verður sá, sem hef- ur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frágengnum, hefur

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.