Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1935, Page 20
18
Alþingiskosningar 1934
orðið jafnari hlulfallstölunni. Uppbótarþingsætunum er nú úthlutað til þing-
flokkanna eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta upp-
bótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað
til þess, sem á hana næsthæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna,
uns eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð
sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu
mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem
msstum jöfnuði við hluifallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu IV A (bls.
37) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna
við kosningarnar 1934, og jafnframt sýnt, hvernig úthlutunin hefði orðið,
ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsætum þangað til
fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Framsóknarflokkinn.
Af þeim 11 uppbótarþingsætum, sem úthlutað var 1934, hlaut Al-
þýðuflokkurinn 5, Sjálfstæðisflokkurinn 4 og Bændaflokkurinn 2. Var þá
þingmannatala þessara flokka og meðaltal atkvæða á hvern þingmann,
svo sem hér segir:
Meöaltal
atkvæöa
Þingmenn á þingmann
Siálfslæöistlokkur ............ 20 1 09814/20
FramsóknarflokUur ............. 15 75872
AlþýðufloUkur ................ 10 1 126 95/ioo
Bændaflokkur................... 3 1 116
Ef halda hefði átt áfram að úihluta uppbótarþingsætum þangað til
fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá hefði (eins og
sjá má á töflu IV A) orðið að úthluta 26 uppbótarþingsætum. Þingmanna-
talan hefði þá orðið 64 alls. Þar af hefði Sjálfstæðisflokkurinn haft 29
þingmenn, Framsóknarflokkurinn 15, Alþýðuflokkurinn 15 og Bænda-
flokkurinn 4.
Til þéss að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem ekki hafa
náð kosningu í kjördæmum, skuli fá uppbóiarþingsæti, er farið aðallega
eftir persónulegri atkvæðatölu þeirra í kjördæmunum, en þó getur þing-
flokkurinn einnig haft nokkur áhrif á það með því að senda landskjör-
stjórn skrá yfir frambjóðendur flokksins í þeirri röð, er flokkurinn ósk-
ar, að þeir hljóti uppbófarþingsæti. Ekki koma til greina sem uppbótar-
þingmenn fyrir sama flokk fleiri en einn frambjóðandi í kjördæmi, og er
það sá, sem hæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en einn
er að gera. Frambjóðendum hvers flokks, sem til greina geta komið sem
uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart beinlínis eftir atkvæða-
tölu þeirra, sumpait eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði og
sumpart eftir óskum hlutaðeigandi þingflokks. Efstur verður sá, sem hef-
ur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frágengnum, hefur