Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1947, Blaðsíða 18

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1947, Blaðsíða 18
16 Alþingiskosningar 1946 Ef halda hefði átl áfram að úthluta uppbótarþingsætum þangað til fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá hefði, eins og sjá má af töflu V A (bls. 31), orðið að úthluta 4 þingsætum í viðbót eða alls 15 uppbótarþingsætum. Af þessum 4 viðbótarsætum hefðu 2 farið til Sjálfstæðisflokksins, 1 til Alþýðuflokksins og 1 til Sósíalistaflokksins. Til þess að finna, hverjir frambjóSendur þingflokks, sem ekki hafa náð kosningu í kjördæmum, skuli þá uppbótarþingsæti, er farið aðallega eftir persónulegri atkvæðatölu þeirra i kjördæmunum, en þó getur þing- flokkurinn einnig haft nokkur áhrif á það með því að senda landskjör- stjórn skrá yfir frambjóðendur flokksins i þeirri röð, er flokkurinn ósk- ar, að þeir hljóti nppbótarsæti. Ekki koma til greina sem uppbótarþing- menn fyrir sama flokk fleiri en einn framljjóðandi í kjördæmi, og er það sá, sem hæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en einn er að gera. Frambjóðendum hvers flokks, sem til greina geta komið sem uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart beinlínis eftir at- kvæðatölu þeirra, sumpart eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði og sumpart eftir óskum lilutaðeigandi þingflokks. Efstur verð- ur sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frá- gengnuin liefur hæsta atkvæðatölu í hlutfalli við gild atkvæði í kjör- dæminu, þriðji sá, sem þingflokkurinn hefur sett efstan á raðaðan landslista, fjórði sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu þeirra, sem eftir eru, fimmti, sem hefur hana hlutfallslega hæsta, sjötti sá, sem er næstefstur á röðuðum landslista o. s. frv. Eftir þessari röð eru svo valdir uppbótar- þingmenn flokksins. í töflu V B (bls. 31—33), er sýnt, hvernig frambjóð- endum Alþýðuflokksins, Sósialistaflokksins og Sjálístæðisflokksins var raðað að þessu leyti. í töflu V C (bls. 33), er skýrt frá, hvaða frambjóðendur hlutu uppbótar- þingsætin og hverjir urðu varamenn. 9. Aukakosningar 1945 og 1947. Elections supplémentaires 1945 et 1947. Arin 1945 og 1947 fóru fram aukakosningar í Norður-Þingeyjarsýslu og Vestur-Skaftafellssýslu, vegna þess að þingmenn lögðu niður umboð sitt. Úrslit þessara kosninga má sjá í töflu VI (bls. 34).

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.