Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1947, Blaðsíða 7
Inngangur.
Inlroduetion.
1. Tala kjósenda.
Nombre des élecieurs.
Við alþingiskosningarnar 30. júní 1946 var tala kjósenda á kjörskrá
77 670. Var það tæpl. 60% af landsmönnum. Siðan alþingi fékk löggjafar-
vald hefur tala kjósenda við almennar alþingiskosningar verið sem hér
segir:
Kjóscndur Af ibÚQtölu Kjóseudur Af ibúatölu
1874 .... 6 183 8.. °/o 1918 33.7 °/o
1880 .... 9.i — 1919 . 31 870 24.7 —
1886 . . . . 6 648 9.s — 1923 . 43 932 45.2 — •
1892 . . . . 6 841 9.6 — 1927 . 46 047 44.9 —
1894 . . . . 6 733 9.s — 1931 . 50 617 46.4 —
1900 . . . . 7 329 9.4 — 1933 . 52 465 46.7 —
1902 . . . . 7 539 9.6 — 1934 . 64 338 56.4 —
1903 .... 7 786 9.« — 1937 . 67 195 57.i —
1308 . . . . ... 11726 14.i — 1942 bli ... . 73 440 59.7 —
1911 .. . . ... 13136 15.4 — 1942 ,8/io . . 73 560 59.7 —
1914 . . . . ... 13 400 15.i — 1944 . 74 277 58.6 —
1916 .. . . ... 28 529 31.7 — 1946 . 77 670 59.o —
Árið 1918 og 1944 fóru ekki fram alþingiskosningar, en þá fór fram
atkvæðagreiðsla um sambandslögin meðal allra alþingiskjósenda. Fram
að 1903 (og að því ári meðtöldu) nemur kjósendatala 9—10% af íbúatölu
landsins. Með stjórnarskrárbreytingunni 1903 var aukaútsvarsgreiðslan,
sem kosningarréttur var bundinn við, færð niður i 4 kr. Var kjósenda-
tala síðan 14—15% árin 1908—14. Með stjórnarskrárbreytingunni 1915
var aukaútsvarsgreiðsla afnumin sem skilyrði fyrir kosningarrétti og
konum og hjúum veittur smávaxandi kosningarréttur, þannig að aldurs-
takmark þeirra var í fyrstu 40 ár, en lækkaði svo á hverju ári um eitt ár.
Við þetta kemst kjósendatalan upp yfir 30% og smáhækkar síðan eftir
því sem aldurtakmark þessara nýju kjósenda lækkar. En með stjórnar-
skránni 1920 var hið sérstaka aldurstakmark þessara kjósenda alveg fellt
burtu, og hækkaði þá kjósendatalan svo, að hún komst upp í hérumbil
45%.. Og með stjórnarskrárbreytingunni 1934 var aldurstakmark allra
kjósenda la‘kkað niður í 21 ár og sveitarstyrkþegum veittur kosningar-