Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1952, Síða 7

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1952, Síða 7
Inngangur. Introduction. 1. Forsetakjörið 1952. The Presidential Election 1952. Sveinn Björnsson, forseti íslands, lézt hinn 25. janúar 1952, er hálft annað ár var eftir af kjörtíma hans, og þurfti því nýtt kjör forseta að fara fram. Fram að þessu hafði ekki komið til kosningar á forseta, þar eð Sveinn Björnsson var fyrst þingkjörinn forseti, frá 17. júní 1944 til 31. júlí 1945, og síðan var hann tvívegis þjóðkjörinn án kosningar, með því að hann var einn í kjöri, fyrst árið 1945 og svo aftur árið 1949. I lögum nr. 36/1945, um framboð og kjör forseta íslands, er kveðið svo á, að ef forseti deyr eða lætur af störfum áður en kjörtima hans er lokið, skuli kjósa nýjan forseta til 31. júlí á fjórða ári frá þeirri kosningu. Skal forsætisráðherra auglýsa kosninguna þrem mánuðum fyrir kjördag, en framboðum til forsetakjörs skal skilað i hendur dóms- málaráðuneytinu ásamt tilskildum skilríkjum eigi siðar en 5 vikum fyrir kjördag. Hinn 20. marz 1952 var gefin út auglýsing um forseta- kjör og var kjördagur þar ákveðinn sunnudagurinn 29. júní 1952. Sam- kvæmt 5. gr. stjórnarskrárinnar skal forsetaefni hafa meðmæli minnst 1500 kosningabærra manna og mest 3000. 1 auglýsingunni um forseta- kjör var ákveðin eftirfarandi skipting tölu meðmælenda á landsfjórð- unga (sbr. 3. gr. laga nr. 36/1945, um framboð og kjör forseta Is- lands): Líg- Há- mork mnrk Sunnlendingafjórðungur (V.-Skaft.—Borgarfj.) .......... 920 1835 Vestfirðingafjórðungur (Mýrasýsla—Strandasýsla) ....... 180 365 Norðlendingafjórðungur (V.-Hún.—S.-Þing.) ............. 280 560 Austfirðingafjórðungur (N.-Þing.—A.-Skaft.) ........... 120 240 Alls 1500 3000 Frambjóðendur við forsetakjörið voru þrír, þeir Ásgeir Ásgeirsson bankastjóri, Bjarni Jónsson vígslubiskup og Gisli Sveinsson fyrrverandi sendiherra.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.