Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Side 17

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1957, Side 17
Alþingiskosniugar 1956 15 geta á þennan hátt ekki orðið jafnari hlutfallstölunni. Uppbótarþingsætunum er nú útlilutað til þingflokka eftir útkomunum við þessar deilingar, þannig að fyrsta uppbótarþingsætið fellur til þess þingflokks, sem hæsta á útkomuna, annað til þess, sem á hana næstliæsta, og síðan áfram eftir hæð útkomutalnanna, unz eitt uppbótarþingsæti hefur fallið á hverja þeirra. Þó er hér á gerð sú takmörkun, að ekki er úthlutað nema 11 uppbótarþingsætum, hversu mörgum sætum sem þá kynni að vera eftir að úthluta til þess að ná sem mestum jöfnuði við hlutfallstöluna fyrir alla þingflokka. í töflu V A (bls. 34) er sýnt, hvernig uppbótarþingsætum hefur verið úthlutað til flokkanna við kosningarnar 1956, og jafnframt sýnt, hvernig úthlutunin hefði orðið, ef haldið hefði verið áfram að úthluta uppbótarþingsætum þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður við Framsóknarflokkinn. Af uppbótarþingsætunum, sem útlilutað var 1956, hlaut Alþýðubandalagið 5, Alþýðuflokkurinn 4 og Sjálfstæðisflokkurinn 2. Varð þá þingmannatala flokkanna og meðaltal atkvæða á hvern þingmann svo sem hér segir: Þing- Atkvœðamagn menn á þingmann Sjálfstæðisflokkur 19 1 84310/1b Framsóknarflokkur 17 760% Alþýðubandalag 8 1 982% Alþýðuflokkur 8 1 894% Ef halda hefði átt áfram að úthluta uppbótarþingsætum, þangað til fenginn væri sem mestur jöfnuður fyrir alla þingflokka, þá hefði, eins og sjá má af töflu V A (bls. 34), orðið að úthluta 49 Jnngsætum í viðbót eða alls 60 uppbótarþing- sætum. Af þessurn 49 viðbótarsætum hefðu 26 farið til Sjálfstæðisflokksins, 11 til Alþýðuflokksins og 12 til Alþýðubandalagsins. Til þess að finna, hverjir frambjóðendur Jjingflokks, sem ekki hafa náð kosn- ingu í kjördæmum, skuli fá uppbótarþingsæti, er farið eftir persónulegri atkvæða- tölu þeirra í kjördæmunum, en þó getur þingflokkurinn einnig haft nokkur álirif á það með því að senda landskjörstjórn skrá yfir frambjóðendur flokksins í þeirri röð, er flokkurinn óskar, að þeir hljóti uppbótarsæti. Ekki koma til greina sem uppbótarþingmenn fyrir sama flokk fleiri en einn frambjóðandi í kjördæmi, og er það sá, sem hæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en einn er að gera. Frambjóðendum hvers flokks, sem til greina geta komið sem uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart beinlínis eftir atkvæðatölu þeirra, sumpart eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði, og sumpart, ef svo ber undir, eftir óskum hlutaðeigandi þingflokks. Efstur verður sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frágengnum hefur hæsta atkvæðatölu í hlutfalli við gild atkvæði í kjördæminu, þriðji sá, sem þingflokkurinn kann að liafa sett efstan á raðaðan landslista, fjórði sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu þeirra, sem eftir eru, fimmti sá, sem hefur hana hlutfallslega hæsta, sjötti sá, sem er næstefstur á röðuð- um landslista o. s. frv. Eftir þessari röð eru svo valdir uppbótarþingmenn flokksins. í töflu V B (bls. 35) er sýnt, hvernig frambjóðendum Alþýðubandalagsins, Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins var raðað að þessu leyti. — Þess ber að geta, að við kosningarnar 1956 var ekki um að ræða röðun á landslista af hálfu neins flokks, er hafði menn í framboði. í töflu Y C (bls. 36) er skýrt frá, hvaða frambjóðendur hlutu uppbótarþing- sætin og hverjir urðu varamenn. Engar aukakosningar áttu sér stað á tímabilinu milli almennra kosninga 1953 og 1956.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.