Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1968, Qupperneq 5
Inngangur.
Introduction.
1. Forsetakjör 1968.
Presidential election 1968.
Samkvæmt lögum nr. 36/1945, um framboð og kjör forseta íslands,
skal reglulegt kjör forseta fara fram siðasta sunnudag í júnímánuði fjórða
hvert ár.
í áramótaræðu sinni á nýársdag 1968 lýsti Ásgeir Ásgeirsson forseti
þvi yfir, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs við forsetakjör 1968.
Ásgeir Ásgeirsson var fyrst kjörinn forseti árið 1952, og endurkjörinn án
kosningar 1956, 1960 og 1964, enda var hann einn í kjöri þau ár.
Sveinn Björnsson, fyrsti forseíi íslands, var þingkjörinn 17. júní 1944
og síðan tvívegis þjóðkjörinn án kosningar — árin 1945 og 1949 — og
gegndi embætti forseta til dauðadags, 25. janúar 1952.
Samkvæmt ofan greindum lögum skal forsætisráðherra auglýsa kjör
forseta eigi síðar en þrem mánuðum fyrir kjördag, og tiltaka hámarks-
og lágmarkstölu meðmælenda forsetaefnis í hverjum landsfjórðungi í
réttu hlutfalli við kjósendatölu þar. Samkvæmt 5. gr. stjórnarskrárinnar
skal forsetaefni hafa meðmæli minnst 1 500 kosningabærra manna og
mest 3 000.
Hinn 29. febrúar 1968 gaf forsætisráðherra út auglýsingu um kosningu
forseta sunnudaginn 30. júní 1968. í auglýsingunni var ákveðin eftirfar-
andi skipting tölu meðmælenda á landsfjórðunga:
Lág- Há-
mark murk
Sunnlendingafjórðungur (V-Skaft.—Borgarfj.)............. 1 040 2 085
Vestfirðingafjórðungur (Mýrasýsla—Strandasýsla) ............. 130 265
Norðlendingafjórðungur (V-Hún.—S-Þing.) ..................... 230 455
Austfirðingafjórðungur (N-Þing.—A-Skaft.) ................... 100 195
I fyrr greindum lögum, nr. 36/1945, er svo fyrir mælt, að framboðum
til forsetakjörs skuli skila í hendur dómsmálaráðunevtisins, ásamt sam-
þykki forsetaefnis, nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörs-
stjórna um, að þeir séu á kjörskrá, eigi síðar en 5 vikum fyrir kjördag.
Hinn 27. maí 1968 var auglýst, að frestur til að skila framboðum hefði
runnið út laugardaginn 25. maí, og að í kjöri væru tveir frambjóðendur,
þeir dr. jur. Gunnar Thoroddsen sendiherra (fæddur 29 desember 1910) og
dr. phil. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður (fæddur 6. desember 1916).