Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1968, Blaðsíða 10

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1968, Blaðsíða 10
8 Forsetakjör 1968 dæminu og hafi afsalað sér kosningarrétti þar. Við forsetakjörið 1968 greiddu 68 karlar og 57 konur, eða alls 125 kjósendur, atkvæði á kjördegi i öðru sveitarfélagi en þar, sem þeir stóðu á kjörskrá, og var það 0,1% af þeim, sem greiddu atkvæði alls. f 1. yfirliti hér i innganginum kemur fram, að kjósendur, sem greiddu atkvæði með þessum hætti, voru lilutfallslega flestir i Austurlandskjördæmi, eða 0,9%. 5. Auðir seðlar og ógild atkvæði. Blank ancl void ballots. Frá og með kosningum 1937 hafa auðir seðlar og ógild atkvæði verið sem hér segir (tala atkvæðaseðla og % af greiddum atkvæðum): Tola V. Tala 7. 1937 . 681 1,2 1953 1 344 1,7 1942 8/, 809 1,4 1956 1 677 2,0 1942 18/10 908 1,5 1959 28/„ 1 359 1,6 1944 sambandsslit . 1 559 2,1 1959 25/10 1 331 1,5 1944 lýðveldisstjórnarskrá . . 2 570 3,5 1963 1 606 1,8 1946 982 1,4 1967 1 765 1,8 1949 . 1 213 1,7 1968 forsetakjör 918 0,9 1952 forsetakjör . 2 223 3,2 Við forsetakjör 1968 voru 676 seðlar auðir og 242 ógildir. Námu auðu seðlarnir þannig 0,7% af greiddum atkvæðum, en ógildir 0,2% af þeim. Hve margir atkvæðaseðlar voru auðir eða ógildir í hverju kjördæmi sést í töflu II A (bls. 15), en í töflu II B (bls. 15), og í 1. yfirliti liér í innganginum sést, hve miklura hluta þeir námu af öllum greiddum atkvæð- um í kjördæminu. Tiltölulega flestir auðir seðlar voru i Reykjavík (0,8%), en fæstir í Vesturlandskjördæmi og Norðurlandskjördæmi eystra (0,4%). Ógildir at- kvæðaseðlar voru tiltölulega flestir í Reykjanes- og Vesturlandskjördæmi (0,3%), en fæstir i Norðurlandskjördæmi eystra (0,1%). 6. Úrslit forsetakjörs. Election results. Úrslit forsetakjörsins urðu þessi: Gunnar Thoroddsen .......... hlaut 35 428 atkvæði Kristján Eldjárn............ hlaut 67 544 atkvæði Iíristján Eldjárn var þannig kjörinn forseti íslands fyrir timabilið 1. ágúst 1968 til 31. júlí 1972. í töflu II A og B (bls. 15) sést, hvernig atkvæði féllu í hverju kjördæmi og hvernig þau skiptust hlutfallslega. Að slepptum auðum og' ógildum atkvæðum hlaut Gunnar Thoroddsen 34,4% gildra atkvæða og Kristján Eldjárn 65,6%. í Reykjavík og Reykjanesumdæmi hófst talning atkvæða þegar á kvöldi kosningardags, og talningu var alls staðar lokið siðla dags mánu- daginn 1. júlí 1968.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.