Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1971, Síða 12
10
Alþingiakosningar 1971
sem atkvæði greiddu alls. Eftir kjördæmum skiptist þessi atkvæðistala þannig:
Reykjavík 0, Reykjaneskjördæmi 1, Vesturlandskjördæmi 7, Vestfjarðakjördæmi
12, Norðurland vestra 28, Norðurland eystra 20, Austurlandskjördæmi 43 og
Suðurlandskjördæmi 10.
í Reykjavík getur slík kosning utan sveitarfélags ekki átt sér stað, en í öllum
öðrum kjördæmum, og sé tala þessara atkvæða borin saman við greidd atkvæði utan
Reykjavíkur, verður hlutfallstala þeirra 0,2%. í 1. yfirbti (bls. 8) kemur fram, að
kjósendur, sem greiddu atkvæði með þessum hætti, voru hlutfallslega flestir í Austur-
landskjördæmi, eða 0,7%.
5. Auðir seðlar og ógild atkvæði.
Blank and void ballots.
Frá og með kosningum 1937 hafa auðir seðlar og ógild atkvæði verið sem
hér segir (tala atkvæðaseðla og % af greiddum atkvæðum):
T«la V. Tala 7.
1937 . 681 1,2 1953 1 344 1,7
1942 6/, . 809 1,4 1956 1 677 2,0
1942 18/10 908 1,5 1959 28/„ 1 359 1,6
1944 sambandsslit . 1 559 2,1 1959 «/10 1 331 1,5
1944 lýðveldisstjóraarskrá . . 2 570 3,5 1963 1 606 1,8
1946 . 982 1,4 1967 1 765 1,8
1949 . 1 213 1,7 1968 forsetakjör 918 0,9
1952 forsetakjör . 2 223 3,2 1971 1 580 1,5
Við kosningarnar 1971 voru 1 303 atkvæðaseðlar auðir og 277 ógildir. Námu
auðu seðlarnir þannig 1,2% af greiddum atkvæðum, en ógildir 0,3% af þeim.
Hve margir atkvæðaseðlar voru auðir eða ógildir í hverju kjördæmi sést í töflu
III A (bls. 30), en í 1. yfirliti (bls. 8) sést, hve miklum hluta þeir námu af öllum
greiddum atkvæðum í kjördæminu.
6. Frambjóðendur og þingmenn.
Candidates and elected members of Althing.
Við kosningarnar 1971 höfðu Alþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn, Framsókn-
arflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurimi framboð í öllum kjördæmum. Samtök frjáls-
lyndra og vjnstri manna buðu fram í öllum kjördæmum, nema Norðurlandskjör-
dæmi vestra, en Framhoðsflokkurinn bauð aðeins fram í Reykjavík, Reykjanes-
kjördæmi og Suðurlandskjördæmi. Á framboðslistum voru alls 525 frambjóðendur.
Frambjóðendur skiptust þannig á kjördæmi:
Rcykjavík .................................... 144
Reykjaneskjördæmi.............................. 60
Vesturlandskjördæmi.......................... 50
Vestfjarðakjördæmi.............................. 50
Norðurlandskjðrdæmi vestra..................... 40
Norðurlandskjördæmi eystra .................... 60
Austurlandskjördæmi ............................ 50
Suðurlandskjördæmi ............................. 71