Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Síða 20

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Síða 20
18 Alþingiskosningar 1987 lög fyrir alþingiskosningamar 1923, en hún var síðan afnumin 1924, því að hætt þótti við mis- notkun. Eftir eldri kosningalögum þurftu atkvæði greidd utan kjörfundar að vera komin í kjördeild, þar sem hlutaðeigandi var á kjörskrá, áður en kjörfundi lyki. Þessu var breytt með núgildandi kosningalögum, nr. 52/1959. Samkvæmt 5. málsgrein 71. greinar þeirra laga er nægjanlegt, að bréfi með utankjörfundaratkvæði sé komið í einhveija kjördeild þess kjördæmis, þar sem hlut- aðeigandi er á kjörskrá, áður en kjörfundi lýkur. Skulu kjörstjómir senda slík bréf aðskilin til yfirkjörstjómar. Við alþingiskosningar 1987 bár- ust 1.786 atkvæði með þessum hætti. I töflu 1 er sýnt, hve mörg atkvæði vom greidd utan kjörfundar í hvetju kjördæmi við alþingiskosningar 1987, og einnig hvemig þau skiptust á sveitarfélög. Við alþingiskosningar 1987 greiddu atkvæði utan kjörfundar 15.455 menn, eða 10,0% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. í 7. yfuliti er þetta hlutfall við kosningar frá og með 1916 sýnt. Við alþingiskosningar 1987 vom 6.545 af utankjörfundaratkvæðum, eða 42,3%, frá kon- um. I 7. yfirliti sést hve margir af hveiju hundr- aði karla og kvenna, sem greitt hafa atkvæði, hafa kosið bréflega. Hátt hlutfall kvenna 1918, 1923 og 1944 stafar eingöngu af heimakosningum, því að konur notuðu sér þær miklu meira en karlar. í 5. yfirliti er samanburður á því, hve mörg utankjörfundaratkvæði komu á hvert 100 greiddra atkvæða í hvetju kjördæmi. Sést þar, að Austur- landskjördæmi var með tiltölulega flest utan- kjörfundaratkvæði, eða 19,9%, en Reykjaneskjör- dæmi og Reykjavík fæst eða með 6,7% og 7,5%. í 8. yfirliti sést, hve margir karlar og konur greiddu atkvæði bréflega í hvetju kjördæmi við alþingiskosningar 1987, og þar sést einnig, hve mörg þeirra bámst beint til yfirkjörstjómar. 6. Atkvæðagreiðsla í annarri kjördeild á kjördegi Voting on election day in a polling area other than that of registration Samkvæmt alþingiskosningalögum (sjá 82. grein laga nr. 52/1959) má kjörstjóm leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vottorði, að hann standi á annarri kjörskrá í kjördæminu og hafi afsalað sér kosningarréttí þar, og sé vott- orðið gefið út af undirkjörstjóm þeirrar kjördeild- ar. Þýðing þessa ákvæðis, sem hefur gilt síðan 1916, hefurfarið síminnkandi fráþjóðaratkvæða- greiðslunni 1918, er 2,9% kjósenda neyttu þessa réttar. Þá og allt tíl sumarkosninga 1959 vom þessi atkvæði að hluta bréfleg atkvæði, sem kom- ust ekki í heimakjördeild kjósenda áður en kjör- fundi lyki. Við kosningamar 1987 greiddu 45 kjósendur atkvæði á kjördegi í öðm sveitarfélagi en þar, sem þeir stóðu á kjörskrá, og vom það 0,03% af þeim, sem atkvæði greiddu á öllu land- inu. I Reykjavík getur slík kosning utan sveitar- félags að sjálfsögðu ekki átt sér stað, en í öllum öðmm kjördæmum, og sé tala þessara atkvæða borin saman við greidd atkvæði utan Reykja- víkur, verður hlutfallstala þeirra 0,05%. Kjós- endur sem greiddu atkvæði með þessum hætti, vom flestir í Norðurlandskjördæmi vestra, 17. Heimild 82. greinar kosningalaga nær einnig til atkvæðagreiðslu í annarri kjördeild innan sama sveitarfélags, og notfærðu 105 sér hana þannig við kosningamar 1987. Flestir þeirra, 87, greiddu atkvæði í húsi Sjálfsbjargar í Reykjavík, en stóðu á kjörskrá á öðmm kjörstöðum þar. Atkvæðagreiðsla af þessu tagi getur aðeins farið fram þar sem kjördeildir em 2 eða fleiri í sveitar- félagi. Hafa 0,09% þeirra sem greiddu þar at- kvæði haft þennan hátt á, en 0,07% af öllum er greiddu atkvæði á landinu. 1 8. yfirliti er sýnd tala þeirra karla og kvenna sem kusu í hverju kjördæmi samkvæmt heimild 82. greinar kosningalaga, og f 5. yfirlití sést hlut- fallstala þessara atkvæða af heildartölunni.

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.