Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Side 23

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Side 23
Alþingiskosningar 1987 21 Borgaraflokks væri ógildur, þar eð skort hefði á fulla tölu meðmælenda. Úrskurði þessum var áfrýjað til landskjör- stjómar, sem mat listann gildan, enda hefðu henni borist nægilega margar yfirlýsingar með- mælenda áður en hún kvað upp úrskurð sinn. Þrír af fimm aðalmönnum og einn varamaður í yfirkjörstjóm Vestfjarðakjördæmis sögðu af sér störfum í framhaldi af þessum úrskurði. Frá því að hlutfallskosningar vom teknar upp í öllum kjördæmum með stjómarskrárbreyting- unni 1959, hefur tala lista og frambjóðenda verið sem hér segir: Frambjóðendur Listar Alls Karlar Konur 1959, október 35 438 402 36 1963 33 402 371 31 1967 35 450 406 44 1971 42 525 447 78 1974 46 556 459 97 1978 47 598 449 149 1979 37 474 355 129 1983 45 556 361 195 1987 64 958 521 437 Hlutdeild kvenna á framboðslistum hefur auk- ist mikið. Hún var 8% haustið 1959, 35% 1983 og er orðin 46% 1987. í þremur efstu sætum á lista er hlutdeild kvenna 36%. í 9. yfirliti er sýnd tala frambjóðenda fyrir alþingiskosningarnar 1987, allra og þeirra sem vom í þremur efstu sætum á lista, eftir kyni í hvetju kjördæmi og fyrir hvert landsframboð. í 10. yfirliti er sýnd tala karla og kvenna á hvetjum framboðslista. Frambjóðendur við kosningamar 1987 eru allir taldir með stöðu og heimilisfangi í töflu 2 á bls. 39-49. Af þeim þingmönnum sem kosnir vom 1983 vom 9 ekki í ffamboði: Ellert B. Schram, Garðar Sigurðsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Kol- brún Jónsdóttir, Kristín S. Kvaran, Láms Jóns- son (sagði af sér þingmennsku 1. september 1984), Ólafur Jóhannesson (lést 20. maí 1984), Tómas Amason (sagði af sér þingmennsku 27. desember 1984) og Vilmundur Gylfason (lést 19. júní 1983). A bls. 29 er getið þingmanna sem vom í framboði en svo neðarlega á lista að þeir stefndu augljóslega ekki að endurkjöri. Haraldur Ólafsson og Stefán Benediktsson, sem tóku sæti á Alþingi eftir lát Ólafs Jóhannes- sonarog VilmundarGylfasonar, vom ekki í fram- boði 1987. 8. Úrslit kosninganna Outcome of the elections í töflu 3 á bls. 50 sést hver urðu úrslit kosn- inganna í hverju kjördæmi og hvemig gild at- kvæði féllu á hvem framboðslista. I sumum kjördæmum hófst talning atkvæða síðdegis á kosningardaginn, og vom fyrstu tölur þaðan birtar fljótlega eftir að kjörstöðum var lok- að klukkan 23. Lengst stóð talning í Vestfjarða- kjördæmi, og lágu lokatölur ekki fyrir fyrr en nokkm eftir hádegi 26. apríl. Yfirkjörstjóm Vesturlandskjördæmis, sem hafði lokið birtingu talna síðla nætur, taldi síðar að ekki kæmu heim og saman tala greiddra atkvæða samkvæmt skýrsl- um undirkjörstjóma og tala atkvæðaseðla sem taldir hefðu verið upp úr kössum. Atkvæða- seðlar úr einni kjördeild fundust síðar ótaldir í atkvæðakassa, sem var geymdur í vörslu lög- reglu, en þá hafði verið haftn lögreglurannsókn á málinu. Vom atkvæði þessi talin aðfaranótt 30. apríl, og lá þá loks fyrir endanleg tala gildra at- kvæða á landinu öllu. Gild atkvæði á landinu öllu vom 152.722 og skiptust á landsframboðin sem hér segir, og em atkvæðatölur úr kosningunum 1983 til saman- burðar: 1987 1983 Sjálfstæðisflokkur 41.490 50.251 Framsóknarflokkur 28.902 24.095 Alþýðuflokkur 23.265 15.214 Alþýðubandalag 20.387 22.490 Borgaraflokkur 16.588 • Samtök um kvennalista 15.470 7.125 Flokkur mannsins 2.434 • Þjóðarflokkur 2.047 • Samlök um jafnrétti og félagshyggju 1.893 • Bandalag jafnaðarmanna 246 9.489 Sérframboð framsóknar- manna í Norðurlands- kjördæmi vestra • 659 Utan flokka, sérframboð sjálfstæðra í Vestfjarða- kjördæmi • 639 Alls 152.722 129.962

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.