Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Page 27

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Page 27
25 flest atkvæði hefur hlotið. Frá atkvæðum hans skal síðan draga kjördæmistöluna. Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú hefur hæsta atkvæðatölu o.s.frv. Með atkvæðatölu lista er átt við atkvæði sem listinn hlaut að frá- dreginni kjördæmistölu svo oft sem hann hefur hlotið þingsæti. 3. Úthluta skal skv. ákvæðum þessarar greinar svo mörgum þingsætum að nemi 3/4 af þing- sætatölu kjördæmisins. Ef þá stendur á brotí skal velja næstu heila tölu fyrir ofan. Nú hefur sá listi, sem fæst atkvæði hlaut, færri atkvæði en nemur 2/3 kjördæmistölunnar og á hann þá ekki tílkall til þingsætis skv. þessari grein. Skal þá draga atkvæði listans frá gildum atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmis- töluna að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við þann lista, sem næstfæst atkvæði hlaut, skal beita því á ný, og svo oft sem þarf. Akvörðun kjör- dæmistölu með þessum hætti skal lokið áður en úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst. 112. gr. Skipting óráðstafaðra þingsæta. Þingsætum skv. 5. gr., sem hefur ekki enn verið úthlutað tíl lista, skal skipta milli landsfram- boða samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Við þá skiptingu koma tíl álita þau landsframboð ein sem hlotíð hafa þingsæti skv. 111. gr. Til þess að finna hvemig skipta ber þingsæt- um skv. fyrri mgr. þessarar greinar milli lands- framboða skal fara þannig að: 1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið hveiju landsframboði, skal deila með tölu sem er 1, 2, 3 o.s.frv. hærri en tala þeirra þingsæta sem það hefur þegar hlotið skv. á- kvæðum 111. gr. Útkomutölumar eru skráð- ar fyrir hvert framboð. 2. Þá skal úthluta þingsætum tíl landsframboða, einu í senn. Fyrst fer sæti til þess landsfram- boðs sem hæsta útkomutölu hefur. Þá tölu skal síðan fella niður. Næst fer þingsæti til þess landsframboðs sem nú hefur hæsta út- komutölu o.s.frv. uns öllum þingsætum hef- ur verið úthlutað. 113. gr. Úthlutun þingsæta skv. kosninga- úrslitum á landinu öllu. Listar sem til álita koma. Við úthlutun þing- sæta, sem hefur verið skipt á milli landsframboða skv. 112. gr., koma til álita þeir listar einir sem hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k. þriðjungi kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv. 111. gr. Þá skal einungis ráðstafa þingsæti í kjör- dæmi sem hefur ekki þegar hlotið fulla þingsæta- tölu. Ákvörðun kjördæmistölu. Kjördæmistölu skal einungis miða við þá lista sem til álita koma við frekari úthlutun þingsæta skv. þessari grein. 1 því skyni skal fylgja eftirfarandi reglum: a. Aður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmis- tölur að nýju og nú að frádregnum atkvæðum og þingsætum þeirra lista sem ekki eiga rétt til sæta skv. þessari grein. b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari út- hlutun með því að draga frá atkvæðum hans hina nýju kjördæmistölu skv. a-lið svo oft sem listinn hefur hlotið þingsætí. c. Þegar þingsæti er úthlutað til lista skv. þessari grein skal lækka atkvæðatölu hans sem nemur kjördæmistölu hverju sinni. d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur lista, sbr. a- og b-liði, skal reikna að nýju jafnóðum og hvert landsffamboð hlýtur fulla tölu þing- sæta. Afangar við úthlutun þingsæta. Þingsætum skv. þessari grein skal úthluta í fjórum áfongum. Úthluta skal sæti hverju sinni til þess lista sem hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af kjördæmistölu. Halda skal áffam úthlutun innan hvers áfanga svo lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun kjördæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun samkvæmt næsta áfanga hefst. 1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista með atkvæðatölu sem nemur 4/5 af kjör- dæmistölu eða meira. Þessum áfanga lýkur jafnskjótt og ekki finnast fleiri slíkar atkvæða- tölur, enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr. áður verið beitt ef við á. 2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef unnt er, til hvers kjördæmis sem ekki hlaut út- hlutun í fyrsta áfanga. í þessum áfanga skal þó ganga fram hjá lista hafi hann ekki fengið a.m.k. 1% gildra atkvæða í kjördæmi sínu. 3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjör- dæmum. 4. áfangi: Loks skal úthluta þingsæti skv. c-lið fyrri mgr. 5. gr. Kemur það í hlut þess lands- framboðs sem nú skortir þingsæti að lokinni skiptingu sæta skv. 112. gr. Skal úthluta sæt- inu samkvæmt stafliðum a-e: a. Finna skal hvað atkvæði þeirra lista, sem til greina koma, sbr. 1. mgr., nema hárri hlut- fallstölu af kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv. þessari grein. b. Hlutfallstölumar skal leggja saman og deila samtölu þeirra með tölu þingsæta sem lands- L

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.