Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1987, Síða 27
25
flest atkvæði hefur hlotið. Frá atkvæðum
hans skal síðan draga kjördæmistöluna.
Næst hlýtur sá listi þingsæti sem nú hefur
hæsta atkvæðatölu o.s.frv. Með atkvæðatölu
lista er átt við atkvæði sem listinn hlaut að frá-
dreginni kjördæmistölu svo oft sem hann
hefur hlotið þingsæti.
3. Úthluta skal skv. ákvæðum þessarar greinar
svo mörgum þingsætum að nemi 3/4 af þing-
sætatölu kjördæmisins. Ef þá stendur á brotí
skal velja næstu heila tölu fyrir ofan.
Nú hefur sá listi, sem fæst atkvæði hlaut,
færri atkvæði en nemur 2/3 kjördæmistölunnar
og á hann þá ekki tílkall til þingsætis skv. þessari
grein. Skal þá draga atkvæði listans frá gildum
atkvæðum í kjördæminu og reikna kjördæmis-
töluna að nýju. Eigi ákvæði þessarar mgr. þá við
þann lista, sem næstfæst atkvæði hlaut, skal beita
því á ný, og svo oft sem þarf. Akvörðun kjör-
dæmistölu með þessum hætti skal lokið áður en
úthlutun þingsæta skv. fyrri mgr. hefst.
112. gr. Skipting óráðstafaðra þingsæta.
Þingsætum skv. 5. gr., sem hefur ekki enn
verið úthlutað tíl lista, skal skipta milli landsfram-
boða samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Við
þá skiptingu koma tíl álita þau landsframboð ein
sem hlotíð hafa þingsæti skv. 111. gr.
Til þess að finna hvemig skipta ber þingsæt-
um skv. fyrri mgr. þessarar greinar milli lands-
framboða skal fara þannig að:
1. Atkvæðum þeim, sem greidd hafa verið
hveiju landsframboði, skal deila með tölu
sem er 1, 2, 3 o.s.frv. hærri en tala þeirra
þingsæta sem það hefur þegar hlotið skv. á-
kvæðum 111. gr. Útkomutölumar eru skráð-
ar fyrir hvert framboð.
2. Þá skal úthluta þingsætum tíl landsframboða,
einu í senn. Fyrst fer sæti til þess landsfram-
boðs sem hæsta útkomutölu hefur. Þá tölu
skal síðan fella niður. Næst fer þingsæti til
þess landsframboðs sem nú hefur hæsta út-
komutölu o.s.frv. uns öllum þingsætum hef-
ur verið úthlutað.
113. gr. Úthlutun þingsæta skv. kosninga-
úrslitum á landinu öllu.
Listar sem til álita koma. Við úthlutun þing-
sæta, sem hefur verið skipt á milli landsframboða
skv. 112. gr., koma til álita þeir listar einir sem
hlotið hafa atkvæði sem nema a.m.k. þriðjungi
kjördæmistölu eins og hún var fyrst reiknuð skv.
111. gr. Þá skal einungis ráðstafa þingsæti í kjör-
dæmi sem hefur ekki þegar hlotið fulla þingsæta-
tölu.
Ákvörðun kjördæmistölu. Kjördæmistölu
skal einungis miða við þá lista sem til álita koma
við frekari úthlutun þingsæta skv. þessari grein.
1 því skyni skal fylgja eftirfarandi reglum:
a. Aður en úthlutun hefst skal reikna kjördæmis-
tölur að nýju og nú að frádregnum atkvæðum
og þingsætum þeirra lista sem ekki eiga rétt til
sæta skv. þessari grein.
b. Finna skal atkvæðatölu lista við frekari út-
hlutun með því að draga frá atkvæðum hans
hina nýju kjördæmistölu skv. a-lið svo oft
sem listinn hefur hlotið þingsætí.
c. Þegar þingsæti er úthlutað til lista skv.
þessari grein skal lækka atkvæðatölu hans
sem nemur kjördæmistölu hverju sinni.
d. Kjördæmistölur og atkvæðatölur lista, sbr. a-
og b-liði, skal reikna að nýju jafnóðum og
hvert landsffamboð hlýtur fulla tölu þing-
sæta.
Afangar við úthlutun þingsæta. Þingsætum
skv. þessari grein skal úthluta í fjórum áfongum.
Úthluta skal sæti hverju sinni til þess lista sem
hefur hæst hlutfall atkvæðatölu af kjördæmistölu.
Halda skal áffam úthlutun innan hvers áfanga svo
lengi sem unnt er og ljúka henni og ákvörðun
kjördæmistölu, ef þörf krefur, áður en úthlutun
samkvæmt næsta áfanga hefst.
1. áfangi: Fyrst skal úthluta þingsætum til lista
með atkvæðatölu sem nemur 4/5 af kjör-
dæmistölu eða meira. Þessum áfanga lýkur
jafnskjótt og ekki finnast fleiri slíkar atkvæða-
tölur, enda hafi ákvæði d-liðar 2. mgr. áður
verið beitt ef við á.
2. áfangi: Næst skal ráðstafa einu þingsæti, ef
unnt er, til hvers kjördæmis sem ekki hlaut út-
hlutun í fyrsta áfanga. í þessum áfanga skal
þó ganga fram hjá lista hafi hann ekki fengið
a.m.k. 1% gildra atkvæða í kjördæmi sínu.
3. áfangi: Þá skal ljúka úthlutun í öllum kjör-
dæmum.
4. áfangi: Loks skal úthluta þingsæti skv. c-lið
fyrri mgr. 5. gr. Kemur það í hlut þess lands-
framboðs sem nú skortir þingsæti að lokinni
skiptingu sæta skv. 112. gr. Skal úthluta sæt-
inu samkvæmt stafliðum a-e:
a. Finna skal hvað atkvæði þeirra lista, sem til
greina koma, sbr. 1. mgr., nema hárri hlut-
fallstölu af kjördæmistölu eins og hún var
fyrst reiknuð skv. þessari grein.
b. Hlutfallstölumar skal leggja saman og deila
samtölu þeirra með tölu þingsæta sem lands-
L