Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 1

Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 1
M Á N U D A G U R 7. S E P T E M B E R 2 0 1 5 Stofnað 1913  209. tölublað  103. árgangur  SPIL ERU HLUTI AF ALMENNU FÉLAGSLÍFI ÖLL FJÖLSKYLDAN SAMAN Í REKSTRINUM BJÓRREIÐ OG SÖNGUR SEM EKKI SVÍKUR GISTIHEIMILIÐ VIÐ HAFIÐ 10 HESTASÝNINGAR Á VARMALÆK 12GÍSLI Í NEXUS 26 Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu tryggði sér sæti á stórmóti í fyrsta sinn og varð jafnframt fá- mennasta þjóð í sögunni til þess að vinna sér inn sæti á Evrópumótinu þegar liðið gerði markalaust jafn- tefli við Kasakstan á Laugardals- velli í gærkvöldi. Uppselt var á leikinn og stemn- ingin á Laugardalsvelli var hreint ólýsanleg. Eins og alda í hafi risu bláklæddir stuðningsmenn íslenska liðsins úr sætum sínum á loka- mínútunum, hvöttu liðið til dáða og biðu þess í örvæntingu að úkraínski dómarinn flautaði leikinn af og tryggði íslenska liðinu farseðilinn. Að leik loknum flykktust þeir á Ingólfstorg og fögnuðu áfanganum með liðinu, en á Ingólfstorgi hafði leikurinn verið sýndur á risaskjá fyrir fjölda fólks sem ekki fékk miða á leikinn. „Ég á ekki til orð. Þetta er búið að vera draumur síðan maður byrj- aði að æfa fótbolta,“ sagði Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins, í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn, en hann var rekinn af velli á 89. mínútu og gekk niðurlútur af velli. Tilfinning- arnar breyttust hratt þegar dóm- arinn flautaði leikinn af. „Það var ótrúlegt. Ég á aldrei eftir að gleyma þessu augnabliki.“ Auk Íslands hafa aðeins England, Tékkland og Frakkland tryggt sér sæti á mótinu, síðastnefnda þjóðin sem gestgjafi mótsins. Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara íslenska landsliðsins, segir andrúmsloftið á Laugardalsvelli hafa verið frábært. „Ég tel að frammistaða liðsins hafi ekki náð hámarki í [gær]kvöld og það sé enn rúm til þess að bæta liðið. Við för- um óhræddir í alla leiki og setjum upp leikplan sem miðar að því að vinna leikinn. Ég fer ekki hræddur inn í lokakeppnina og ég held að þessi velgengni muni ekki stíga leikmönnunum til höfuðs.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir sigurinn vera sögulegan. Spurður hvort hann hyggist fylgja liðinu til Frakk- lands svarar hann játandi. „Íslenska landsliðið hefur aldrei tapað þegar ég hef mætt á völlinn. Ég mun reyna að fylgja því eftir.“ Sigmundur sagðist þó ekki vera á launaskrá hjá KSÍ. „Ég er lukkudýr í sjálfboðavinnu!“ »4 og íþróttir Morgunblaðið/Golli Sigur „Það sögðu allir að maður kæmist aldrei á lokamót í fótbolta. Ég hef alltaf trúað því og það er orðið að veruleika,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson, sem faðmaði Kolbein Sigþórsson að leikslokum. Farmiðinn á EM gulltryggður  Markalaust jafntefli við Kasakstan  Fámennasta þjóð í sögu Evrópumótsins  Fyrsta stórmót karlalandsliðsins Morgunblaðið/Eggert Fjör Íslenska landsliðið kom á Ingólfstorg og tók hið heimsfræga klefafagn. Evrópumeistaramótið í Frakklandi bíður karlalandsliðsins í knattspyrnu „Orðið að veruleika“ Gylfi Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.