Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fjármögnun hefur verið tryggð til
byggingar 2.300 félagslegra íbúða á
næstu fjórum árum. Þetta segir
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, en frumvörp
um húsnæðismál er að finna á þing-
málaskrá fyrir komandi þing.
Ríkisstjórnin samþykkti viða-
miklar aðgerðir í tengslum við gerð
kjarasamninga í vor.
Auk frumvarpa Eyglóar um hús-
næðismál er á þingmálaskránni að
finna frumvarp Ólafar Nordal innan-
ríkisráðherra um millidómsstig,
frumvarp Illuga Gunnarssonar,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, um Lánasjóð íslenskra náms-
manna og frumvarp um búvöru-
samninga sem lagt verður fram af
Sigurði Inga Jóhannessyni, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Sigrún Magnúsdóttir umhverfis-
ráðherra mun leggja fram þrjú
frumvörp um skipulagsmál; um
landsskipulag, innviðauppbyggingu
náttúru- og menningarminja o.fl.
auk næáttúruverndarfrumvarpsins
sem stefnt er á að afgreiða fyrir 15.
nóvember. Bjarni Benediktsson,
fjármála- og efnahagsráðherra,
leggur fram frumvarp um opinber
fjármál auk fjárlagafrumvarps.
Búið að
tryggja
fjármagn
2.300 félagslegar
íbúðir á 4 árum
Um 4.800 farþegar voru með þeim fjórum
skemmtiferðaskipum sem voru í Sundahöfn um
helgina og lögðu í haf í gærkvöldi. Þetta var í
fjórða sinn á þessu ári sem svo mörg skemmti-
ferðaskip voru hér inni í einu, en alls koma 106
slík skip til Reykjavíkur á árinu. Skip helgar-
innar voru Serenade of the Seas, Crystal Symph-
ony, Amedena og Artania; öll stór og farþegar í
hinu fyrstnefnda alls um 2.100. Nokkur skip eru
væntanleg í haust en þegar því sleppir tekur
annað við því hið fyrsta á nýju ári kemur í mars.
„Vetrarsiglingar færast í vöxt,“ segir Gísli Gísla-
son, hafnarstjóri Faxaflóahafna, sem telur að
skemmtiferðaskipin árið 2016 verði að minnsta
kosti ekki færri en á líðandi ári. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Þúsundir farþega með fjórum stórskipum
Síðasta stóra skemmtiferðaskipahelgi sumarsins í Sundahöfn
Ökumaður jeppabifreiðar sem ekið
var á strætisvagn í Reykjavík
skömmu fyrir klukkan þrjú síðdegis
í gær ók af vettvangi en skráningar-
númer hans náðist.
Þá stöðvaði lögregla bifreið í
Túnahverfi um klukkustund síðar,
en hún hafði verið tilkynnt stolin.
Ökumaðurinn ók bifreiðinni í leyfis-
leysi og án ökuréttinda. Var hann
talinn undir áhrifum fíkniefna.
Aðfaranótt sunnudags dró til tíð-
inda í miðbæ Reykjavíkur. Maður
var handtekinn undir áhrifum fíkni-
efna og með kannabisefni meðferðis
eftir að hafa ekið utan í aðra bifreið.
Klukkustund fyrr var maður í
annarlegu ástandi handtekinn fyrir
að hafa stokkið upp á vélarhlíf bif-
reiðar og brotið framrúðu hennar
með hnefanum. Þrír ökumenn voru
stöðvaðir vegna gruns um akstur
undir áhrifum áfengis og fíkniefna
en fjórir voru handteknir.
Ók á strætó
og stakk af
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja hf., gagnrýnir harðlega tilkynningu sem
Seðlabanki Íslands sendi frá sér í gærkvöldi
vegna niðurfellingar rannsóknar embættis sér-
staks saksóknara á máli gegn Samherja hf. og
tengdum félögum. Í tilkynningunni sagði
Seðlabankinn ágalla í lagasetningu við breyt-
ingu á lögum um gjaldeyrismál hafa haft áhrif
á málið, þar sem ekki hefði verið hægt að kæra
lögaðila fyrir brot á lögunum. Þá kom fram að
Seðlabankinn myndi fara yfir málið og taka
ákvörðun um framhaldið.
Þorsteinn svaraði tilkynningunni með yfir-
lýsingu skömmu síðar þar sem hann bendir á
að embætti sérstaks saksóknara hafi í tvígang
komist að þeirri niðurstöðu að Seðlabankinn
hafi sent frá sér tilhæfulausar kærur. Segir
hann tilkynningu bankans „enn eina tilraun
bankans til að breiða yfir eigin rangfærslur og
mistök og afvegaleiða umræðuna“.
Þá segir jafnframt í yfirlýsingu Þorsteins:
„Niðurstaða sérstaks saksóknara er ótvíræð
og byggir á nákvæmri rannsókn þeirra á gögn-
um málsins og ásökunum bankans.“
Bendir Þorsteinn á að embætti sérstaks sak-
sóknara hafi talið að það sem fram hafi komið
við rannsókn málsins um ætluð brot og atvik
þeim tengd benti ekki til að hugsanleg per-
sónuleg refsiábyrgð hans eða annarra kærðra
einstaklinga á ætluðum brotum í málinu gæti
komið til álita. Þegar af þeirri ástæðu hafi emb-
ættið lokið meðferð sinni á viðkomandi sak-
arefnum málsins enda hefði rannsóknin nægt
til að útiloka að komið gæti til höfðunar saka-
máls vegna ætlaðra brota.
Þorsteinn heldur áfram: „Eftir mikla og ná-
kvæma rannsókn sérstaks saksóknara var
niðurstaðan skýr: Ekkert kom fram við rann-
sókn málsins sem benti til saknæmrar hátt-
semi minnar eða annarra einstaklinga. Byggði
niðurfelling málsins eingöngu á þeirri niður-
stöðu embættisins og hefur ekkert að gera með
skýrleika laga líkt og bankinn heldur fram.“ Þá
segir hann málatilbúnað Seðlabankans hafa
verið tilhæfulausan frá upphafi. Niðurstaða
sérstaks saksóknara staðfesti það einfaldlega.
Hann gagnrýnir einnig orðalag Seðlabank-
ans í tilkynningu sinni þess efnis „að hann
muni framfylgja lögum um gjaldeyrismál af
staðfestu, samviskusemi og sanngirni“.
Segir Þorsteinn orðalagið „eins fjarstæðu-
kennt og hugsast getur“ og bætir við: „Seðla-
bankinn hefur misbeitt valdi sínu á fordæma-
lausan hátt gagnvart Samherja og starfsfólki
þess. Ítrekað hefur bankinn orðið uppvís að
ósannindum sem staðfest hefur verið af bæði af
dómstólum og sérstökum saksóknara.“
„Tilraun til að breiða yfir eigin rang-
færslur og mistök og afvegaleiða“
Forstjóri Samherja gagnrýnir harðlega svör Seðlabanka um niðurfellingu rannsóknarinnar
Landnám og baðstofulíf 19. aldar voru í brenni-
depli í heimsókn barna og fjölskyldna á Þjóð-
minjasafnið í gær þegar á dagskrá var fyrsta
barnaleiðsögn haustsins þar. Safnkennarar
bjóða upp á slíka leiðsögn fyrsta sunnudag hvers
mánaðar yfir vetrartímann, sem hefur notið vin-
sælda þeirra er sótt hafa. Sverð, skartgripir og
beinagrindur landnámsmanna, baðstofa, askur
og strokkur voru meðal gripa sem verða skoð-
aðir í gær og í lok leiðsagnar fengu börnin að
handfjatla barnagull fyrri tíðar, gamla leggi og
völuskrín eins og þar stendur. Einnig vakti at-
hygli barnanna þegar Sesselja Konráðsdóttir
sýndi þeim lopavettling með tveimur þumlum,
sem eru sjaldséðir í dag. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Tveir þumlar vöktu athygli í Þjóðminjasafninu