Morgunblaðið - 07.09.2015, Side 11

Morgunblaðið - 07.09.2015, Side 11
Morgunblaðið/Alfons Finnsson Foreldrar og dætur F. v. Emilía Björg, Sigurjón Hilmarsson, Lilja, Rut Einarsdóttir, Regína og Agnes Eik. á óvart hvað ferðafólkið veit í raun- inni lítið um alla þá áhugaverðu staði sem vert er að skoða umhverfis Snæfellsjökul. Koma af fjöllum „Það hefur heyrt um Arnar- stapa og kannski Vatnshelli en ekki mikið meira. Þegar við förum að spjalla við ferðamenn sem hafa kannski farið suður fyrir Jökul og spyrjum hvort þeir hafi skoðað þetta eða hitt koma þeir alveg af fjöllum. Þeir hafa ekki hugmynd um Malar- rif, Svalþúfu, Öndverðarnes og fleiri fallega staði. Þegar þessum stöðum er síðan lýst fyrir þeim kemur fyrir að þeir bæti við gistinótt, jafnvel fleiri en einni, og fari í fleiri skoðunarferðir á þessar slóðir,“ seg- ir Rut og nefnir sem dæmi danska konu sem hafi komið í Við hafið þrisvar sinnum í Íslandsferð sinni og alltaf sofið í sama rúminu. Rut er þeirrar skoðunar að hægt sé að gera meira í kynningar- málum á Snæfellsnesi. „Það er full- bókað hjá okkur í vetur og margir að velta fyrir sér að koma til þess að horfa á norðurljósin.“ Vörubretti Gestir hafa hrifist mjög af nýju hlutverki vörubrettis. Vegir liggja til allra átta Gistiheimilið Við hafið stendur við aðalgötuna í Ólafsvík og þaðan er stutt að fara til að sækja alla þjónustu í bænum. Hjónunum Rut og Sigurjóni hefur þótt lærdómsríkt að sjá hvernig erlendir ferða- menn upplifa Ísland. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015 F A S T U S _ H _ 3 2 .0 5 .1 5 Fastus ehf., - Velkomin í verslun okkar. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 Resorb Sport Þegar þú stundar úthaldsíþróttir eins og hjólreiðar, fjallgöngur, hlaup o.fl. • Bætir upp vökvatap • Minnkar líkur á vöðvakrömpum • Flýtir endurheimt (recovery) • Bragðgóður og handhægur • Inniheldur m.a. magnesium Fæst í fjölmörgum apótekum Æ G I S G A R Ð I 2 , 1 0 1 R E Y K J A V Í K , S Í M I 5 1 2 8 1 8 1 VERIÐ VELKOMIN Á NÝJAN VEITINGASTAÐ Í RAUÐA HÚSINU VIÐ GÖMLU HÖFNINA Í REYKJAVÍK Altarisklæði sem sagt er vera verk huldufólks er gripur septembermán- aðar í Þjóðminjasafni Íslands. Klæðið, sem talið er vera frá 17. öld, er eitt ör- fárra slíkra muna í vörslu Þjóðminjasafns- ins og er nafn listamannsins óþekkt. Klæðið er úr gulu vaðmáli með ásaumuðum út- klipptum blómum og blöðum úr dökku flaueli sem eru útsaumuð skrauti úr vír- þræði. Klæðið er skeytt saman úr tveimur hlutum sömu gerðar en greinilega vantar eitthvað á milli. Í neðri hornum eru út- klipptar myndir af ævintýralegum konum. Þær eru skartlega klæddar með sítt og mikið hár. Þær sitja í blómum prýddum hásætum og mynda laufguð tré hornsúlur á sætunum. Sú til vinstri spilar á hörpu en hin virðist halda á þremur fjöðrum. Ofarlega á samskeytum dúkanna eru tvær út- klipptar englamyndir en önnur er skert. Klæðið var síðast í Hofskirkju í Vopnafirði. Sú þjóðsaga fylgir klæðinu að sýslu- mannskona á Bustarfelli hafi í draumi verið leidd inn í stein þar sem bjuggu álfar. Þar kom hún til hjálpar fæðandi álfkonu, sem launaði fyrir sig með fín- um gullofnum vef eða klæði. Klæðið er hag- anlega gert, framandi og einsdæmi hér á landi. Í Noregi eru hins vegar tvö klæði sem greinilega eru af sama toga. Í bæði eru saumuð ártöl, 1687 og 1688, og er talið að þau hafi upphaflega verið gerð sem borðdúkar þótt þau síðar tengdust bæði kirkjum. Giskað hefur verið á að klæðin hafi saumað flinkar konur eða karlar í Noregi sem fengust við saumaskap, því að hvergi eru þekkt verkstæði þar sem slík klæði voru unnin. Spurningunni um til- urð klæðisins frá Bustarfelli er því ósvarað. Tengsl voru milli Íslands og héraða sunnan Þrændalaga í Noregi, ekki hvað síst á 18. öld, og ef til vill er álfkonudúkurinn eitt sannindamerki um þau samskipti. Nema þjóðsagan segi alla söguna og dúkurinn sé kom- inn frá álfum. Gripur septembermánaðar Álfkonudúkur með ævintýralegum konum Altarisklæðið Líklega frá 17. öld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.