Morgunblaðið - 07.09.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015
Glamox Luxo
er leiðandi framleiðandi
LED lýsingarbúnaðar
og býður heildarlausnir fyrir
iðnaðar- og lagerhúsnæði
Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum,
lýsingahönnuðum og arkitektum
Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta
meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi.
www.reykjafell.is
Gestir settu upp bjartsýnisgler-
augun á fundi fjármálaráðherra
G20-ríkjanna í Ankara, höfuðborg
Tyrklands, um helgina. Tal ráð-
herranna gaf til kynna að þeir
hefðu ekki miklar áhyggjur af
þeim efnahagslegu óveðursskýjum
sem margir þykjast greina við
sjóndeildarhringinn.
Að sögn Financial Times virðist
fulltrúum Kína hafa tekist að nota
fundinn til að sannfæra meirihluta
ráðherranna um að ný stefna í
gengismálum væri til þess gerð að
láta gengi kínverska gjaldmiðils-
ins ráðast meira af markaðsöflum,
og væri ekki brella til að örva kín-
verskar útflutningsgreinar.
Eins og Morgunblaðið hefur
sagt frá var slakað á handstýr-
ingu gengis kínverska renminbís-
ins fyrr í sumar og lækkaði gjald-
miðillinn skarplega strax í
kjölfarið. Pierre Moscovici, fjár-
málaráðherra ESB, hrósaði kín-
verskum stjórnvöldum fyrir að
sýna mikla staðfestu við að reyna
að viðhalda efnahagsvexti.
Fulltrúi Bandaríkjanna var öllu
hófstilltari í stuðningi sínum.
Lagði bandaríski fjármálaráðherr-
ann Jack Lew hart að kínverskum
kollega sínum Lou Jiwei að gefa
skýr merki um að Kína myndi
leyfa markaðsöflunum að ýta
gjaldmiðli landsins upp, rétt eins
og niður.
Bólan tæmd?
Zhou Xiaochuan, seðlabanka-
stjóri Kína, sagði gestum fundar-
ins að loftið væri hér um bil alveg
farið úr þeirri bólu sem blés upp á
hlutabréfamarkaðinum þar í landi
á fyrri helmingi ársins. Hafa
helstu hlutabréfavísitölur Kína
lækkað um 40% frá því að þær
náðu hámarki í júní. „Í augnablik-
inu er gengi renminbí gagnvart
Bandaríkjadal að ná jafnvægi,
leiðréttingin á hlutabréfamark-
aðinum er næstum að baki og má
greina merki þess að fjármála-
markaðir séu einnig að ná jafn-
vægi.“
Bætti seðlabankastjórinn við að
hrun hlutabréfaverðs hefði haft
óveruleg áhrif á raunhagkerfið.
ai@mbl.is
Fjármálaráðherrar brattir
AFP
Spjall Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS, og Pierre Moscovici, fjár-
málaráðherra ESB, ræða saman á hópmyndatöku á G20-fundinum í Ankara.
Seðlabankastjóri Kína segir hlutabréfamarkaðinn nærri
búinn að leiðrétta sig og áhrifin lítil í raunhagkerfinu
Nýjustu tölur um þróun bandaríska
vinnumarkaðarins ollu vonbrigðum
og urðu til þess að verð hlutabréfa
lækkaði á föstudag. Urðu til 173.000
ný störf í Bandaríkjunum í ágúst, að
störfum í landbúnaði undanskildum.
Atvinnuleysi mælist hins vegar 5,1%
og hefur ekki verið lægra síðan í
apríl 2008, en þá tölu verður að meta
í ljósi þess að langtímaatvinnulausir
eru ekki taldir með í atvinnuleysis-
mælingum vestanhafs. Mældist at-
vinnuþátttaka tæplega 66% í apríl
2008 en var 62,6% í ágúst.
MarketWatch segir stóru hluta-
bréfavísitölurnar þrjár á Wall Street
hafa átt næstverstu viku sína það
sem af er þessu ári. S&P 500-vísi-
talan lækkaði um 1,5% á föstudag en
3,4% yfir vikuna og endaði í 1.921,22
stigum. Dow Jones-vísitalan lækkaði
um 1,7% á föstudaginn og nam viku-
lækkunin 3,3%. Mældist vísitalan
16.102,38 stig í vikulok.
Nasdaq-vísitalan rýrnaði um 1,1%
í viðskiptum föstudagsins og missti
3% yfir vikuna. Mælist vísitalan núna
4.683,92 stig. ai@mbl.is
Næstversta vika ársins á Wall Street
AFP
Niður Starfsmaður NYSE virðir
fyrir sér tölurnar á föstudag.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Margir þekkja Dale Carnegie best fyrir
ræðunámskeiðin en þau eru aðeins hluti af
þjónustunni sem þar er í boði. „Þjálfun í
ræðuhaldi og tjáningu er
fyrirferðarmikil í starfi
okkar en grunnurinn í
rekstri Dale Carnegie er
ráðgjöf og þjálfun fyrir
stofnanir og fyrirtæki,“
segir Jón Jósafat Björns-
son, framkvæmdastjóri
Dale Carnegie á Íslandi. Á
alþjóðavísu hefur Dale
Carnegie veitt ráðgjöf
mörgum þekktustu og
stærstu fyrirtækjum
heims, allt frá Microsoft til Wal-Mart.
„Ráðgjöfin okkar snýr að mannlegu hlið-
inni. Við keppum ekki við þau ráðgjafar-
fyrirtæki sem koma að því að bæta daglegan
rekstur og sameina deildir, heldur fylgjum
við í kjölfarið, eflum persónuhæfni og tökum
á þeim mannlegu þáttum sem þarf að bæta
til að innleiða stefnuna,“ segir Jón Jósafat.
„Mælingar sýna enda að í 85% tilvika mis-
tekst að innleiða nýja stefnu í fyrirtækjum,
ekki vegna þess að stefnan var slæm heldur
vegna þess að mannlegir þættir urðu til þess
að illa gekk að fá fólk til að fylgja stefnunni.“
Metið og forgangsraðað
Til að styðja við fyrirtækjaráðgjöfina, og
til að fagna 50 ára afmæli Dale Carnegie,
hefur félagið sett í loftið ókeypis tæki á
netinu sem fengið hefur nafnið fyrirtækja-
greining.
Finna má fyrirtækjagreiningu Dale
Carnegie á slóðinni www.dale.is/fyrirtaeki.
Jón Jósafat segir um hnitmiðaðan spurn-
ingalista að ræða sem byggi á víðtækri þekk-
ingu og reynslu ráðgjafa Dale Carnegie.
Stjórnandinn fer beint inn á síðuna og velur
þar þá efnisflokka sem greiningin á að bein-
ast að, t.a.m. menningu, söluhæfni eða þjón-
ustu. Útbýr vefurinn því næst spurningalista
og þarf að svara á bilinu 10-20 spurningum
tengdum hverjum efnisflokki sem valinn er.
Sem dæmi þarf, ef gera á könnun á sölu-
hæfni, að svara spurningum á borð við hvort
starfsmenn almennt „hugsa út fyrir boxið og
koma með skapandi lausnir“ eða „afla nýrra
viðskiptavina“. Til viðbótar við að gefa ein-
kunn á skalanum 1-7 í hverri spurningu er
beðið um að spurningunni sé gefið vægi.
Segir Jón Jósafat að það sé ekki síst þar sem
gagnsemi fyrirtækjagreiningarinnar komi í
ljós.
„Það eru til alls kyns krossalistar til að
greina styrkleika og veikleika fyrirtækja en
það sem vantar er eiginleikinn til að for-
gangsraða. Eftir slík próf gæti stjórnandinn
setið uppi með 30-40 atriði sem prófið segir
að þurfi að laga og geta þeim fallist hendur
því erfitt er að sjá hvar á að byrja,“ útskýrir
Jón Jósafat. „Fyrirtækjagreining Dale
Carnegie setur niðurstöðurnar fram á mynd-
rænan hátt og strax er hægt að koma auga á
þau atriði sem brýnast er að sinna. Stjórn-
andinn getur því auðveldlega forgangsraðað
og lagt til atlögu við mikilvægustu verk-
efnin.“
Sýnir stjórnendum hvar á að byrja
Dale Carnegie kynnir nýja leið til að greina ýmsa veikleika og styrkleika í starfsmannahópnum
Getty Images/iStockphoto
Mannauður Jón Jósafat segir spurningalista sem eiga að greina vinnustaðinn hafa þann veik-
leika að skorta forgangsröðun. Fyrirtækjagreining Dale Carnegie á að bæta úr þessu.
Jón Jósafat
Björnsson