Morgunblaðið - 07.09.2015, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Bárðarás 5, mhl. 01-0101 og 02-0101, fnr. 211-4175, Snæfellsbæ , þingl.
eig. Fjóla Rós Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
föstudaginn 11. september kl. 12:00.
Hraunás 11, mhl. 01-0101 og 02-0101, fnr. 211-4336, Snæfellsbæ , þingl.
eig. Ævar Rafn Þrastarson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Snæfellsbær, föstudaginn 11. september kl. 12:20.
Ólafsbraut 38, mhl. 01-0201 og 02-0102, fnr. 210-3761, Snæfellsbæ ,
þingl. eig. Lénárdné Wágner, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag
Íslands hf. og Snæfellsbær, föstudaginn 11. september kl. 13:00.
Vallholt 1, mhl. 01-0203, fnr. 223-8757, Snæfellsbæ , þingl. eig. Dawid
Borkowski, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., föstudaginn 11. september kl. 13:20.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi,
4. september 2015.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9,morgunleikfimi kl. 10.
Félagsvist,útskurðarhópur I og frjáls tími í myndlist kl. 13.
Tölvufærninámskeið verður á mánudögum á haustönn og nánari
upplýsingar um það eru veittar í símum 411 2702 og 411 2711
Dalbraut 18-20 Myndlist og postulín kl.9, brids kl.13.
Garðabæ Vatnsleikfimi í Sjálandi kl,8 og 15 Stólaleikfimi fyrir konur
og karla kl. 9.10 í Sjálandi, kvennaleikfimi kl.10, í Sjálandi og 11, í
Ásgarði, karlaleikfimi kl. 11.40, Boccia kl.12.20 í Ásgarði.Jónshús er
opið frá 9.30 - 16, alla virka daga símanr 6171502 / 6171503.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður m/leiðb. kl. 8:30-16.
Línudans kl. 13. Kóræfing kl. 14:30, ath. vantar karlsöngvara. Heitt á
könnunni.
Gjábakki Handavinnustofan opin, boccia kl. 9.10, gler- og postulíns-
málun kl. 9.30, lomber kl. 13, canasta kl. 13.15
Gullsmári Póstulínhópur kl 9, Ganga kl 10, Handavinna og Bridge
kl 13, Félagsvist kl 20
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, molasopi í
boði til kl. 10.30, dagblöðin, púsl og tafl liggja frammi, morgunleikfimi
kl. 9.45, baðþjónusta fyrir hádegi, matur kl. 11.30. Spilað bridge kl.
13, kaffi kl. 14.30. Skráning stendur yfir í félagsstarf vetrarins sem er
öllum opið óháð búsetu og aldri og allir velkomnir.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl.8.50, leikfimi á Ruv.kl.9.45,
ganga kl.10, eftir gönguna er boðið upp á slökun í salnum, myndlis-
tanámskeið hjá Margréti Zóphonísdóttur kl. 12.30-15.30, handavinnu-
hornið kl.13, félagsvist kl.13.15. Námskeið í glerlist hefst n.k.
mánudag kl.9, nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Ringó kl.13.30 í Smáranum. Uppl. í síma 564-
1490 og á www.glod.is
Norðurbrún 1 Mánud:Tréútskurður 13-16. Þriðjud:Tréútsk.9-12,
Námsk. í postulínsmálun, myndlist byrjuð 9-12, opið í Listasm.13-16,
leiðbeinandi á staðnum. Miðvikud:Tréútsk. 9-12. Bónusbíllinn 14:40.
Félagsvist 14-16. Fimmtud:Tréútsk. 9-12. Leirlistanámsk. 9-12.
Opið í Listasmiðja 13-16, leiðbeinandi á staðnum.Bókabíllinn 10-10:30
Föstud:Tréútsk. 9-12. Opið í Listasmiðju, allir velkomnir 9-12.
Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga Skólabraut
kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Ath.
bókbandið hefst fimmtudaginn 17. september.
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
7.900
kr.
5.900 kr.
3.900
kr.
6.500
kr.
6.500 kr.
5.900 kr.
Fylgstu með á Facebook
Frú Sigurlaug
Mjóddin
s. 774-7377
Sundbolir • Tankini
Bikini • Náttföt
Undirföt • Sloppar
Inniskór • Undirkjólar
Aðhaldsföt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Þjónustu-
auglýsingar
Þarft þú að koma fyrirtækinu
þínu á framfæri
Hafðu samband í síma
569 1100 eða á
augl@mbl.is
og fáðu tilboð
verið mér og fölskyldu minni afar
dýrmætar. Amma og afi hafa frá
upphafi verið mikilvægur hluti af
lífi mínu og alla tíð fylgst náið
með því sem ég hef gert.
Núna er ævi ömmu minnar
lokið og verður hennar sárt sakn-
að, en minningarnar munu hlýja.
Hún kvaddi sátt, var búin að skila
sínu. Hún vissi hvað var í vænd-
um og tók því af styrk og æðru-
leysi. Þó að maður viti alltaf að
einhvern tímann muni koma að
kveðjustund verður samt tómlegt
að hafa ekki lengur hjá okkur
þessa jákvæðu og lífsglöðu konu
sem amma mín var. Ég kveð
ömmu mína með virðingu og
þakklæti fyrir allt sem hún var
mér og mínum.
Blessuð sé minning ömmu
minnar.
Jón Einar.
Að morgni 31. ágúst sl. fékk ég
þær fréttir að heiman frá Nes-
kaupstað að Stína frænka hefði
kvatt þennan heim. Kristín Stein-
unn Marteinsdóttir var föður-
systir mín, ein af þrettán systk-
inum. Faðir minn, Guðjón
Marteinsson, átti tíu systur og
tvo bræður. Átta systur komust
til fullorðnisára og bræðurnir
þrír, en Stefán Skaftfell dó ung-
ur.
Ég var svo lánsöm að alast upp
í Neskaupstað í faðmi dásam-
legra foreldra og kærleiksríkrar
fjölskyldu. Fjórar systur pabba
áttu heimili sín þar ásamt for-
eldrum þeirra systkina, afa mín-
um og ömmu á Sjónarhóli en
Stína frænka var ein af þeim sem
ætíð hefur verið mér svo kær.
Kristín Steinunn og Jóhann K.
Sigurðsson, maðurinn hennar,
heimsóttu mig og fjölskyldu mína
tvisvar til Lúxemborgar og þar
áttum við saman yndislegan tíma.
Þegar við komum heim til Nes-
kaupstaðar voru þau ávallt heim-
sótt og tóku vel á móti okkur. Jó-
hann dó árið 1999.
Frændsemi og vinskapur milli
okkar Stínu var alltaf einlægur.
Það var gaman að hitta hana.
Stína var mikill fagurkeri og
hugsaði vel um útlit sitt. Hún fór
reglulega í hárgreiðslu til Maríu
systur minnar í Neskaupstað.
Hún lét snyrta og lakka á sér
neglurnar og hugsaði vel um
klæðaburð sinn. Hún var einnig
ófeimin við að segja fjölskyldu
sinni til ef henni fannst einhverju
vera ábótavant í klæðaburði.
Móðir mín, Guðrún Sigríður
Guðmundsdóttir, kynntist Stínu
þegar þær voru 16 ára og var
mikil vinátta hjá þeim mágkonum
til æviloka Stínu. Þar missir
mamma góða og trygga mág-
konu. Við systurnar; ég, Gígja
Sólveig, María og Hólmfríður,
þökkum elsku Stínu frænku fyrir
allt það góða og fallega sem hún
gaf okkur.
Minningin um hana mun lifa í
hjörtum okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku Sigrún, Marteinn Már,
Sigurður Karl, Magnús og fjöl-
skyldur, við systurnar, mamma
og fjölskyldur okkar, sendum
ykkur öllum innilegustu og
dýpstu samúðarkveðjur. Megi
góður Guð vernda ykkur öll um
ókomna tíð.
Guðný Steinunn
Guðjónsdóttir.
Elsku afi, núna er
komið ár síðan við
kvöddum þig. Það
líður ekki sá dagur
sem við hugsum ekki
til þín og rifjum upp tímana sem
við áttum saman, allar ferðirnar
okkar saman og viskuna sem þú
deildir með okkur. Það er erfitt að
hugsa til þess að fá ekki að heyra
þig segja okkur fleiri sögur, að þú
fáir ekki að sjá börnin okkar vaxa
úr grasi eða bara hreinlega geta
tekið upp símann til að heyra í þér.
Þú varst alltaf til staðar fyrir alla,
sama hvað okkur vantaði gat mað-
ur talað við þig því að ef einhver
vissi svarið varst það þú. Að fá að
heyra sögurnar af ferðalögum þín-
um um heiminn var mikil hvatning
Þorsteinn
Magnússon
✝ ÞorsteinnMagnússon
fæddist 20. október
1929. Hann lést 6.
ágúst 2014. Útför
Þorsteins fór fram
15. ágúst 2014.
fyrir okkur og hvatt-
ir þú okkur ávallt til
að fylgja draumum
okkar. Betri afa var
ekki hægt að óska
sér og við söknum
þín öll meira en orð
fá lýst.
Við getum þó
hlýjað okkur við það
að núna ertu á betri
stað, sameinaður
með ömmu, þar til
við hittum þig aftur munum við
njóta þess að tala um allt sem þú
hefur kennt okkur og þakkað fyrir
allan þann dýrmæta tíma sem við
fengum að eyða með þér. Elskum
þig alltaf.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(úr Vísum Vatnsenda-Rósu)
Jenna Kristín, Örn,
Jens Bjarni, Ísak Máni
og Rakel Ósk.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru
eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar