Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 29

Morgunblaðið - 07.09.2015, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2015 » Kling & Bang gallerí hélt mikið flutningsteiti í fyrra-dag og sá DJ Rassi Prump um skífuþeytingar sem lögðust vel í viðstadda. Kling & Bang hefur nú flutt starf- semi sína af Hverfisgötu 42 þar sem haldið hefur verið úti sýningum í sjö og hálft ár. Kling & Bang er því orðið hús- næðislaust og mun sinna verkefnum sem krefjast ekki sýningarsalar þar til nýtt húsnæði finnst. Sýningarhúsnæði Kling & Bang kvatt með hressilegu teiti Klárir í slaginn Hugleikur Dagsson og Ragnar Kjartansson eða DJ. Rassi Prump. Bjart Þær voru brosmildar þessar þrjár flottu konur, Lilja Birg- isdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Gaman Auður Lóa Guðnadóttir, Kolfinna Baldvinsdóttir og börn hennar þau Magdalena Björnsdóttir og Starkaður Sigurðarson. Svöl Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Úlfur Grönvold og Eirún Sigurðardóttir. Morgunblaðið/Eggert Leikkonan Jennifer Lawrence greindi frá því í viðtali við dag- blaðið The New York Times í lið- inni viku að hún væri að vinna að handriti með uppistandaranum og leikkonunni Amy Schumer og að handritið væri nánast fullklárað. Lawrence sagði þær Schumer ætla að leika systur í myndinni en systir Schumer, Kim, mun einnig hafa komið að handritsskrifunum. „Við Amy erum líkt og skapaðar hvor fyrir aðra þegar kemur að hugmyndavinnu,“ sagði Lawrence og bætti við að handritsskrifin væru það skemmtilegasta sem hún hefði gert um ævina. „Við hefjum daginn á því að tala saman í síma og hlæja. Síðan sendum við hvor ann- arri handritssíður og springum úr hlátri,“ sagði Lawrence. Á meðan á viðtalinu stóð sendi Lawrence Schumer smáskilaboð og sagði að hún hefði kjaftað frá og svaraði Schumer því til að það væri frábært að hún væri komin út úr skápnum. Lawrence hafði samband við Schumer eftir að hafa horft á kvik- myndina Trainwreck sem Schumer skrifaði handritið að og fór með að- alhlutverk í. Hófu þær í kjölfarið að vinna saman að kvikmynda- handriti. Vinna saman að handriti AFP Samstarf Lawrence og Schumer eru vinkonur og samstarfsmenn. NO ESCAPE 5:45,8,10:15 TRANSPORTER REFUELED 8, 10:20 STRAIGHTOUTTACOMPTON 5, 10:10 ABSOLUTELY ANYTHING 6 THE GIFT 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar mbl.is/askriftarleikur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.