Morgunblaðið - 24.09.2015, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
R
annsóknir hafa sýnt að
venjuleg notkun tölvupósts,
vistun mynda og annarra
gagna yfir tíu ára tímabil út-
heimti sömu orku og þarf til að
keyra bensínbíl í kringum hnöttinn.
Það er býsna stórt fótspor,“ segir
Ólafur K. Ólafsson, stofnandi og
framkvæmdastjóri EcoCloud360.
„Við ætlum okkur hins vegar að vera
í fararbroddi í Bandaríkjunum, og
jafnvel hér á landi, í að bjóða um-
hverfisvæn tölvuský þar sem ein-
staklingar og fyrirtæki hýsa sín
gögn sín og forrit án þess að menga
umhverfið,“ segir Ólafur, sem ný-
lega var staddur hér á landi til að
taka upp myndefni fyrir kynning-
arherferð í Bandaríkjunum.
Fyrirtæki hans, EcoCloud 360,
var stofnað fyrir rúmu ári en Ólafur
hefur starfað undanfarna tvo áratugi
vestan hafs. „Ég stofnaði mitt fyrsta
fyrirtæki í Bandaríkjunum árið
1993. Það var tölvubúð þar sem við
settum saman tölvur eftir að hafa
keypt alla hluti í þær. Við fram-
leiddum þannig tölvurnar í raun
sjálfir. Síðan höfum við einnig verið
með alla þjónustu í kringum netkerfi
fyrir fyrirtæki,“ greinir hann frá.
Þótt EcoCloud 360 sé staðsett í
Bandaríkjunum hýsir fyrirtækið
tölvuský sitt í gagnaverum á Íslandi.
Fyrirtækið hýsir öll algengustu for-
rit sem einstaklingar og fyrirtæki
nota dags daglega í svokölluðu skýi á
netinu. „Flestöll fyrirtæki hýsa ský-
in sín í gagnaverum sem nota ein-
ungis kol, olíu eða kjarnorku við að
búa til rafmagn til að knýja milljónir
netþjóna sem skýin eru keyrð á. Við
notum aftur á móti hreina orku þar
sem gagnaverin eru staðsett á Ís-
landi,“ segir Ólafur og bætir við:
„Gögnin eru vistuð allan sólarhring-
inn, allt árið um kring, í gagnaver-
um. Orkan sem fer í að keyra þau
áfram, kæla húsnæðið, rafmagnið og
annað sem fylgir gagnaverunum
veldur mengun. Hins vegar fylgir
engin mengun notkun okkar skýs.“
8% koltvísýrings úr gagnaverum
Hann segir fólk oft á tíðum ekki átta
sig á því hversu óumhverfisvænt það
er að nota ský sem hýst eru erlendis.
„Hátt í átta prósent af öllum koltví-
sýringi sem fer út í loftið í heiminum
kemur úr tölvum og gagnaverum.
Þess vegna viljum við bjóða fyr-
irtækjum og einstaklingum alls stað-
ar í heiminum aðgang að umhverf-
isvænu skýi,“ útskýrir Ólafur.
Bendir hann á að vegna þess hve
mengun af völdum gagnavera er lítt
sýnileg veiti fólk henni síður athygli.
„Ólíkt mengun af völdum bíla, þar
sem fólk sér reyk koma út um púst-
rörið, er mengunin sem hlýst al-
mennt af notkun gagnavera því sem
næst ósýnileg. Facebook notar til að
mynda gagnaver Google sem eru
fleiri hundruð með milljónir net-
þjóna og staðsett út um allan heim.
Hvert einasta mannsbarn notar þá
nær daglega og mengunin sem af
notkuninni hlýst er gífurleg,“ segir
Ólafur.
Að hans sögn eru fjölmörg fyr-
irtæki að skipta yfir í umhverf-
isvænni kosti á mörgum sviðum, svo
sem úr bensínbílum í rafmagnsbíla,
glóperum í sparperur og svo fram-
vegis, til þess að minnka kolefn-
isfótspor sitt. „Umhverfisvæn ský
eru einfaldlega næsta skref í þeirri
viðleitni. Fimm til tíu prósent af allri
orku sem er notuð fara í tölvur og af
þeim sökum ætti stór hluti fyr-
irtækja að vera með umhverfisvæn
tölvuský.“
Hugmyndin varð til uppi á jökli
Hugmyndin að EcoCloud fæddist
fyrir um þremur árum þegar Ólafur
var í heimsókn á Íslandi og gekk upp
á jökul. „Ég man að umhverfisvæn
orka og gagnaver voru mikið í um-
ræðunni. Þegar ég stóð uppi á jökl-
inum læddist sú hugmynd að mér að
sameina tölvuþjónustu og umhverf-
isvernd og bjóða öllum heiminum
upp á þá þjónustu. Ég hugsaði: „Af
hverju ekki að koma með við-
skiptavinina hingað til Íslands þar
sem orkan er hrein og umhverf-
isvæn, fyrir utan það eru gagnaver
hér mun öruggari en úti í löndum?““
Það tók Ólaf um eitt og hálft ár að
hrinda hugmyndinni í framkvæmd
en í dag er hann kominn með starfs-
fólk sér til aðstoðar og er að undir-
búa kynningarherferð fyrir banda-
rískan markað. „Í síðustu viku
vorum við með myndatökumenn frá
Bandaríkjunum til að taka myndir
fyrir auglýsingar. Þeir tóku myndir
við Jökulsárlón, Gullfoss og við
Langjökul. Eftir um mánuð munum
við birta fréttatilkynningar í öllum
helstu blöðum Bandaríkjanna og
kynna EcoCloud360 frekar í fram-
haldinu.“
Eru með umhverfisvæn pósthólf
EcoCloud360 er samstarfsaðili
Microsoft og fleiri hugbúnaðarfyr-
irtækja og hefur tilskilin leyfi til að
hýsa þeirra forrit. „Við getum því
boðið fyrirtækjum og fólki upp á að
hýsa Microsoft-forrit í grænu um-
hverfi,“ útskýrir Ólafur.
Ein af þeim nýjungum sem Ólafur
er með í pípunum er tölvupóstur og
gagnahirsla á netinu fyrir ein-
staklinga, en það er í prufukeyrslu
þessa dagana. „Þannig geta menn
verið með eigin póstfang sem endar
á @ecomail.com, í staðinn fyrir
@gmail.com, ef menn vilja vera um-
hverfisvænir. Við ætlum að bjóða
notendum fyrstu gígabætin ókeyp-
is,“ útskýrir hann.
Hægt er að nálgast þjónustu
EcoCloud 360 hvaðan sem er í gegn-
um netið, á ecocloud360.com. Þá er
heimasíða fyrirtækisins á ensku,
hollensku, sænsku, frönsku, þýsku,
spænsku, rússnesku og fleiri tungu-
málum.
brynja@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Reynslubolti Ólafur K. Ólafsson hefur verið í tölvubransanum í 25 ár en stofnaði EcoCloud fyrir um ári síðan. Gagnaverum sem EcoCloud notar fylgir engin mengun, að sögn Ólafs.
Um 8% koltvísýrings vegna gagnavera
EcoCloud360 býður
upp á umhverfisvæn
tölvuský þar sem ein-
staklingar og fyrirtæki
hýsa sín gögn sín og
forrit án þess að
menga umhverfið.
Ljósmynd/Wikipedia
Gagnaver EcoCloud hýsir gögnin í gagnaverum sem staðsett eru á Íslandi.
Fjölmörg fyrirtæki eru
að skipta yfir í um-
hverfisvænni kosti á
mörgum sviðum til
þess að minnka kol-
efnisfótspor sitt.
Samkvæmt skilgreiningu Nation-
al Institute of Standards and
Technology (NIST) eru fimm
nauðsynleg einkenni tölvuskýja
eftirfarandi:
1. Sjálfsafgreiðsla. Notandi getur
sjálfur afgreitt sig um auknar
eða minnkaðar auðlindir í
skýinu, t.d. örgjörvaafl, minni,
diska, sæti í póst- eða CRM-
kerfi o.s.frv.
2. Víðtækur netaðgangur. Kerfið
er aðgengilegt yfir hefð-
bundnar netsamskiptaleiðir og
fyrir margvísleg tæki, svo sem
snjallsíma, spjaldtölvur, einka-
tölvur, mismunandi stýrikerfi
og vafra.
3. Samnýting auðlinda. Margir
notendur deila sömu auðlind-
um (þekkt sem „multi-tenant“-
högun).
4. Auðveld skölun. Notandi getur
aukið og minnkað auðlinda-
notkun eftir þörfum á fljótleg-
an og oft á tíðum sjálfvirkan
hátt.
5. Þjónustumælingar. Bæði þjón-
ustuveitandi og -þegi þjónust-
unnar hafa aðgang að þjón-
ustumælingum, svo sem
notkun á diskum, minni, ör-
gjörva, upplýsingum um afköst,
fjölda notenda o.s.frv.
Þýðing tekin úr grein Helga
Björgvinssonar á vefsíðunni
www.sky.is.
Hvað er
tölvuský?