Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 16

Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ Undirbúum okkur fyrir framtíðina, hleðslustöðvar fyrir rafbíla www.reykjafell.is ABL Sursum er fremstur í flokki hvað varðar hönnun og framleiðslu á hleðslustöðvum, þýsk gæðavara. Ítarlegar upplýsingar eru að finna á heimasíðu Reykjafells. Í framtíðinni mun fólk hugsa til núverandi jarðeldsneytis- véla líkt og við í dag hugsum til gufuvéla. Það mun rifja upp gamla góða tíma en þeir tímar verða liðnir og koma ekki aftur. „Elon Musk, Tesla“ Fáið fagmenn til að sjá um uppsetningu. V erð skiptir breska neytendur afar miklu máli, en hugmyndin um orku frá eldfjallaeyju er heillandi. Þetta segir Charlotte Ramsay, fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá breska orkufyrirtækinu National Grid, eða Lands- neti, í Bretlandi í samtali við Morgunblaðið. Hún flutti í vikunni erindi um lagningu sæ- strengs á milli Íslands og Bretlands á fundi Bresk-íslenska viðskiptaráðsins. Í erindinu kom fram að Bretland væri jákvætt í garð samtengingar raforkukerfa og að National Grid hafi heitið að þróa samtengingarverkefni sem hafi í för með sér félagslegan, efnahags- legan og umhverfislegan ábata fyrir þau lönd sem kjósa að tengja saman raforkukerfi sín. „Við skiljum að ábatinn og hvatinn til að tengjast kunni að vera mismunandi eftir ríkj- um. Hins sjáum við að í þeim tilvikum þar sem báðir endar strengsins átta sig á þessum ábata og komast að samkomulagi á jafn- ingjagrundvelli til þess að þróa áfram verk- efni, getur samtenging raforkukerfa svo sannarlega verið lausn sem báðir aðilar hagn- ast á, lausn sem er til þess fallin að mæta mörgum af þeim áskorunum sem blasa við orkukerfum heimsins í dag,“ greinir hún frá. Vilja sjálfbært orkukerfi Spurð út í sýn National Grid á nýtingu grænnar orku til framtíðar, svarar Charlotte: „Sem eigandi breska dreifikerfisins og stjórn- andi þess hefur National Grid lagt kapp á að styðja við framtíðarþróun sjálfbærs orkukerf- is í Bretlandi og Evrópu. Fyrirtækið vill þannig stuðla að minni notkun kola í framtíð- inni og skapa orkukerfi sem er bæði öruggt og viðráðanlegt í verði. Fjárfestingarstefna okkar í tengslum við samtengingu raf- orkukerfa styður við þessa viðleitni. Alþjóðleg innviðaverkefni okkar styðja við samkeppni á orkumarkaði, sem kemur neytendum til góða. Við aukum orkuöryggi með því að auka fjölbreytni, ekki aðeins öryggi Bretlands heldur einnig annarra landa sem við tengj- umst. Að sama skapi gefum við stjórnendum orkukerfisins fleiri verkfæri til að stýra kerf- inu og samþætta frekar endurnýjanlega orku,“ segir Charlotte. Hræðsla við hærri reikninga En hafa Bretar raunverulega áhuga á að leggja sæstreng til Íslands? „Ég get aðeins talað sem breskur neytandi og skattgreiðandi þegar ég svara þessari spurningu,“ segir Charlotte og heldur áfram: „Verð skiptir breska neytendur verulegu máli. Við greiðum háa orkureikninga og Bret- ar eru hræddir um að áhersla á minni kola- framleiðslu geti leitt til hækkunar á orku- verði. Verð er óhjákvæmilega helsti ákvarðanaþátturinn þannig að lausnir sem keppa í verði við orkuna sem við fáum heima fyrir eru aðlaðandi kostir og þess virði að kanna nánar. Aftur á móti eru Bretar spennt- ir fyrir og hrífast af hugmyndinni um orku frá landi eldfjalla og fossa. Þessir þættir auka á áhuga manna á því að samtengja raf- orkukerfi þessara tveggja landa,“ útskýrir hún. brynja@mbl.is Verð helsti ákvörðunarþátturinn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Græn orka Áhugi Breta á umhverfisvænni orku hefur aukist. Charlotte Ramsay, fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróun- ar National Grid, segir að Bretland sé jákvætt í garð samtengingar raforkukerfa. Verð fyrir orkuna sé þó sá þáttur sem breskir neytendur líti helst til. Morgunblaðið/Styrmir Kári National Grid Charlotte Ramsay er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.