Iðjuþjálfinn - 01.03.2016, Blaðsíða 13

Iðjuþjálfinn - 01.03.2016, Blaðsíða 13
12 13 einn sumardag árið 2007 stóð ég, ásamt vinkonu minni, úti á bílastæði hjá sameig- inlegri vinkonu okkar að ræða um framtíð- ina. Áður en ég vissi af vorum við komnar heim til hennar og búnar að sækja um nám við Háskólann á akureyri. Með trega en full eftirvæntingar fór ég heim til foreldra minna og tilkynnti þeim að ég væri að fara að flytja til akureyrar til þess að hefja nám við háskólann þar, því ég ætlaði að verða iðjuþjálfi! Foreldrar mínir horfðu á mig pínu skelkaðir yfir því að elsta barnið ætlaði að fljúga úr hreiðrinu og það alla leið til akur- eyrar en jafnframt voru þau glöð fyrir mína hönd. Ég held samt að pabbi hafi ekki með- tekið neitt af því sem sagt var því að í fjögur ár hélt hann því fram að ég væri „að læra að verða þroskaþjálfi eða eitthvað svoleiðis“, eins og hann sagði öllum sem spurðu. Með bros á vör héldum við vinkonurnar á vit ævintýranna í sitt hvorum yarisnum með alla búslóðina okkar, fyrir utan sitt hvort rúmið og lítinn sófa sem fylgdi á eftir í kerru. Ég hugsa enn til þess í dag hvernig í ósköpunum við komum öllu fyrir í bílunum, kannski var það þrjóska, því norður ætluð- um við! alls eru um 25 iðjuþjálfar í faghópnum, flest- ir frá höfuðborgarsvæðinu, Suður- og vestur- landi. Fundir eru að meðaltali einu sinni í mánuði yfir veturinn en frí yfir sumarið. við skiptumst á að halda fundina og fer röðunin á fundarhaldi eftir stafrófsröð heimilanna. Á facebook er lokuð síða fyrir hópinn þar sem geymdar eru fundargerðir, hugmyndum miðlað og ýmsar upplýsingar er að finna. Faghópurinn er búinn að starfa í um það bil 15 ár og lengi vel voru aðeins 4-5 iðjuþjálfar í hópnum. Mikil fjölgun hefur átt sér stað síð- ustu ár í hópnum og fleiri iðjuþjálfar starfa nú á öldrunarheimilum um allt land, allt frá einum og upp í fjóra á hverju heimili. Markmið hópsins frá byrjun hefur verið að veita hvort öðru stuðning í faginu þar sem í upphafi var yfirleitt einungis einn iðju- Leiðin að markmiðinu var löng og ströng, stútfull af gleði, erfiðleikum, ferðalögum og andvökunóttum. Fimm sumrum síðar stóðum við vinkonurnar, þrátt fyrir allt, aftur saman á bílastæði. Í þetta skiptið vorum við staddar á akureyri ásamt fjölskyldu og vinum og markmiðinu var náð! við vorum að útskrifast sem iðjuþjálfar. tilfinningarnar sem bærðust um í brjósti voru ólýsanlegar og ég var full af eldmóði og eftirvæntingu fyrir því að deila nýfenginni vitneskju með samfélaginu. Þessi fimm ár voru þvílíkt puð og ef ég hefði skrifað niður hvert einasta skipti sem „gÆS“ (get, ætla, skal) kom upp í huga mér hefði ég fyllt heila bók. en hver sekúnda var þess virði og er ég óendanlega stolt af því að geta sagt öðrum frá hversu frábærum hópi ég til- heyri. Þegar ég hugsa til þess hvað það var sem dreif mig áfram, held ég að það hafi ekki bara verið þrjóskan í sjálfri mér eða stuðn- ingur frá fjölskyldu, heldur einnig allur þessi ómetanlegi stuðningur sem ég upp- lifði í náminu frá samnemendum mínum og kennurum. Ég þakka fyrir það á hverjum degi að hafa tekið þessa ákvörðun og drifið mig af stað því ég efast um að hægt sé að finna fjölbreyttara og skemmtilegra starf en að vera iðjuþjálfi. kæru iðjuþjálfar, ég vona að þið séuð öll jafn stolt og ég því við megum svo sannarlega vera það. Í lokin vil ég svo óska okkur öllum innilega til hamingju með 40 ára afmæli IÞÍ. Ferfalt húrra fyrir okkur: Húrra, húrra, húrra, húrra! Erna Sveinbjörnsdóttir, Iðjuþjálfi, LSH, Kleppur. leIÐIn AÐ MArKInu FAGHópur IÐJuÞJÁlFA er sTArFAr Á öldrunArHeIMIluM þjálfi starfandi á hverju heimili. Þetta var því oft mikil einyrkjavinna þótt það eigi ekki alltaf við í dag. Fundirnir eru nýttir til að hitta nýliða innan hópsins, skiptast á hugmyndum, ræða skipulagsatriði, kynna nýjar nálganir í starfi eða þjónustu, ræða komandi námskeið eða ráðstefnur sem gæti verið áhugavert að sækja og ýmislegt fleira gagnlegt. Iðjuþjálfar á öldrunarheimilum nýta sér ýmis matstæki í daglegri þjónustu s.s. • MoHoSt, • Mat á eigin færni, • Mini mental state examination (MMSe), • tómstundaiðjuskrá aldraðra, • Mat á ánægju með tómstundaiðju, • Hlutverkalistinn, • Iðja og ánægja aldraðra, • oSa, • Framkvæmdagreining, • Mælikvarði Becks á geðlægð • og mörg önnur. við sjáum fyrir okkur að faghópurinn haldi áfram að stækka og fleiri iðjuþjálfar bætist í hópinn þar sem það er enn mikil vöntun á iðjuþjálfum á öldrunarheimilum landsins. Hópurinn er að vinna í því að mynda stjórn faghópsins og er stefnt að því að það muni þrír iðjuþjálfar sitja í stjórn hverju sinni. Stjórnin mun meðal annars halda utan um fundarhöld, vera tengiliður við Iðjuþjálfafé- lagið og halda utan um netfangaskrá félaga hópsins. Faghópurinn stefnir að því að skrifa lengri grein um það starf og þá þjónustu sem iðjuþjálfar eru að vinna á hinum fjölmörgu öldrunarheimilum síðar á árinu. Síðasti fundur fór fram á Ísafold í Garðabæ núna í lok janúar og þá var þessi mynd tekin af þeim sem mættu. Iðjuþjálfarnir starfa um allt land og á þessum tiltekna fundi tóku iðjuþjálfar frá Akureyri þátt í gegnum skype. Mynd tekin við Silfurtún í september 2012 Mynd tekin á Hrafnistu í Reykjavík í október 2013 Mynd tekin á Hrafnistu í Reykjavík í október 2013

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.