Iðjuþjálfinn - 01.03.2016, Blaðsíða 17

Iðjuþjálfinn - 01.03.2016, Blaðsíða 17
16 17 InnGAnGur Iðjuþjálfafélag Íslands (IÞÍ) hélt Framtíðar- þing þann 23. október 2015. Markmið þings- ins var að ræða m.a. væntingar félagsmanna til félagsins, framtíðarsýn, hlutverk, ímynd og sýnileika þess. Þetta var því frábært tæki- færi fyrir félagsmenn til að hafa áhrif á starf félagsins og koma hugmyndum á framfæri. Fundarfyrirkomulag þingsins byggði á sömu hugmyndafræði og notuð var á Þjóðfundun- um 2009 og 2010. til þátttöku skráðu sig 57 iðjuþjálfar og iðjuþjálfanemar sem unnu á sjö borðum. Á hverju borði var sérþjálfaður borðstjóri með það hlutverk að sjá til þess að allir við borðið fengju jöfn tækifæri til að tjá sig og tryggja virka hlustun, þannig að öll sjónarmið kæmust að. Hóparnir við borðin voru blandaðir þannig að á hverju borði voru þátttakendur í mismunandi ald- urshópum, af mismunandi vinnustöðum og með mismikla reynslu. Spurningarnar sem fundarmenn glímdu við voru eftirfarandi: 1. Hvað finnst mér skemmtilegast við að vera iðjuþjálfi? (upphitunarspurning) 2. Hver er þín framtíðarsýn fyrir Iðjuþjálfafélag Íslands? 3. Hvaða gildi eða hugsjónir viltu að starf félagsins byggi á? 4. Hvernig birtast þessi gildi í starfi félagsins? 5. Hvert á hlutverk félagsins að vera? 6. Hvernig bætum við ímynd og sýnileika félagsins? 7. Hvernig getur félagið stutt við faglega þróun og símenntun? eftir fyrstu þrjár spurningarnar skiptu þátt- takendur um borð og svo aftur eftir spurn- ingu fimm. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er hægt að alhæfa um svörin út frá þessum niðurstöðum þar sem um afmarkað- an hóp þátttakenda er að ræða. niðurstöð- urnar gefa fyrst og fremst vísbendingar um það sem brennur á þeim sem tóku þátt. Ingrid kuhlman hjá Þekkingarmiðlun ehf sá um þingstjórn, þjálfun borðstjóra, undirbún- ing og eftirfylgni þingsins og kann stjórn IÞÍ henni bestu þakkir fyrir. Ingrid gerði einnig samantektarskýrslu frá þinginu sem finna má í heild sinni, ásamt viðaukum, á innri vef heimasíðu félagsins. Þessi grein er að mestu byggð á skýrslu hennar. Stjórn IÞÍ gerði þó breytingar á texta er varða gildi félagsins fyrir birtingu í Iðjuþjálfanum en unnið hefur verið með gildin eftir þingið og verður gerð frekari grein fyrir niðurstöðu þeirrar vinnu hér. HvAÐ FInnsT Mér sKeMMTIleGAsT vIÐ AÐ verA IÐJuÞJÁlFI? „ Að geta unnið með fólki af öllum sortum og gerðum, á öllum æviskeiðum, og gengið með þeim smá spöl í gegnum lífið í áttina til þess lífs sem það óskar“ upphitunarspurning Framtíðarþingsins var hvað sé skemmtilegast við að vera iðjuþjálfi. Skipta má svörum þátttakenda í eftirfarandi flokka: Lausnamiðuð nálgun og skapandi hugsun eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • að finna lausnir og leysa vanda. • Hugsa og vinna heildrænt: rýna í flókið samspil einstaklings, umhverfis og iðju hverju sinni. • Hvatningin að vera skapandi og hugsa út fyrir kassann. • Það að vinna ekki eftir uppskrift. • Það að sköpun sé mikilvægur hluti í meðferð. • krefjandi verkefni sem hugsuð eru í lausnum og tengjast iðju hvers og eins. • að vera með fullan poka af bjargráðum og lausnum. Gefandi starf eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • að hafa áhrif á líf fólks (skjólstæðing, fjölskyldu og vinir þeirra) á jákvæðan hátt. • að ég geti látið gott af mér leiða fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra. • Þakklæti í starfi, allskonar. • að geta bætt lífsgæði fólks. • að geta aðstoðað fólk í að vinna að bata og auka lífsgæði sín. • að geta létt fólki lífið og gert því kleift að njóta betur. • vinna við að efla það sem hefur þýðingu fyrir fólk. • Áherslan á iðju og hversu mikilvæg hún er heilsu okkar og lífsgæðum – það er ekkert líf án iðju. • að sjá aðstandendum létt. • uppskera virðingu. • að geta gefið af mér. • Lífsfylling. • Iðja er auðnumóðir – móðir hamingjunnar. Upplifa árangur af starfinu eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • Skjólstæðingar vaxa fyrir tilstilli íhlutunar. • að sjá fólk bjarga sér sjálft. • að sjá skjólstæðinga vaxa og eflast og læra aðferðir til að takast á við áskoranir í lífinu. • að starfa með ungu og fullorðnu fólki sem er galopið og ómótað og sjá það þroskast og eflast. Jákvæð nálgun eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • Þessi hugmyndafræðilega nálgun – leitin að styrkleikum fremur en veikleikum. • að veita fólki tækifæri til að finna og nýta hæfileika sína. • að heyra barn lýsa áhugamálum sínum og segja frá styrkleikum sínum, og vinna með þær upplýsingar. • að aðstoða fólk við að hugsa í lausnum og tækifærum. Fjölbreytileiki eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • Fjölbreytilegt starf og margir starfsvettvangar. • Fjölbreytt verkfæri. • Fjölmargir endurmenntunarmöguleikar og framhaldsnám. • Fjölbreytileiki starfsins og fjölbreytileikinn í skjólstæðingum. • að geta unnið með fólki af öllum sortum og gerðum, á öllum æviskeiðum, og gengið með þeim smá spöl í gegnum lífið í áttina til þess lífs sem það óskar. Samskipti eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • Samskipti við fólk í ljósi mannlegs fjölbreytileika. • Maður er manns gaman. • Samstarfið við notendur og fagfólk. • að fá að kynnast lífshlaupi alla vega fólks, sem gefur manni svo mikla reynslu og þroska. • Samskipti við fólk úr ólíkum áttum og á mismunandi stöðum í lífinu. • að vinna í teymisvinnu – virða og skilja ólík sjónarhorn. • Ég elska að vinna með fólki, aðstoða það, leiða það á rétta braut í lífinu og hjálpa því að aðlagast umhverfinu. • vinna á heimili – í nærumhverfi fólksins. Tækifæri til þróunar eftirfarandi atriði voru m.a. nefnd í þessu samhengi: • Frelsi til að þróa starfið áfram á mínum vinnustað. • kenna, bæði skjólstæðingum en líka ungum iðjuþjálfum/nemendum. • tækifæri til að þróa mig áfram sem fag mann og manneskju – ögra sér. • að læra af skjólstæðingum og samstarfsfólki. • Fæ tækifæri til að hafa áhrif á iðjuþjálfa framtíðarinnar. • vinna að rannsóknum tengdum iðjuþjálfun. Hver er Þín FrAMTíÐArsýn FYrIr IÐJu- ÞJÁlFAFélAG íslAnds? „ 2025 verði búið að útrýma spurningunni: „... og hvað gera iðjuþjálfar?“ og „...vinna nýjar lendur“ Stuðst var við eftirfarandi undirspurningar: • Hvar sérðu félagið 2025? • að hverju ætti að stefna? • Hvað er mikilvægast fyrir okkur í framtíðinni? • Hver verða helstu baráttumál iðjuþjálfa næstu 10 árin? FrAMTíÐArÞInGIÐ

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.