Skólavarðan - 01.10.2004, Page 4
Spil til að þjálfa hljóðkerfisvitund barna 8
Viðtal við Hugborgu Erlendsdóttur leikskólasérkennara.
Sjúkrasjóður er góður sjóður 9
Viðtal við Maríu Nordahl starfsmann sjúkrasjóðs og Svövu Pétursdóttur for-
mann sjóðstjórnar í tilþefni þess að reglum sjóðsins hefur verið breytt.
Iðnskólinn í Reykjavík aldargamall 10
Skólavarðan heimsótti Iðnskólann og tók Baldur Gíslason skólameistara tali en
skólinn heldur upp á 100 ára afmæli sitt um þessar mundir
Heilsufar, líðan og vinnuumhverfi kennara 13
Í þessari grein segir Hólmfríður K. Gunnarsdóttir sérfræðingur á rannsókna- og
heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins frá niðurstöðum rannsóknar á líðan og vinnu-
umhverfi kvenkyns kennara, flugfreyja og hjúkrunarfræðinga.
Lýsuhólsskóli 14
Skólaheimsókn í lítinn grunnskóla á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar fer fram
merkilegt þróunarstarf og Skólavarðan vildi vita meira um það.
Verkfall grunnskólakennara 16
Verkfall Félags grunnskólakennara í máli og myndum.
Menningarlegur fjölbreytileiki - jákvæð gagnvirk
menningaráhrif 18
Af svæðisþingum Félags tónlistarskólakennara, Félags íslenskra hljómlistar-
manna og Samtaka tónlistarskólastjóra.
Fundur með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum
framhaldskólakennara 20
Niðurstöður viðhorfskönnunar Leikskóla Reykjavíkur.
Sumarráðstefna NLS í Røros í Noregi 2004 22
Skóli án aðgreiningar 23
Af málþingi um sérkennslu.
„Netikettur“ 25
Um siðareglur við sendingar rafpósts.
Einhugur um mikilvægi námskráa 26
Hildur Skarphéðinsdóttir segir frá ráðstefnu EECERA á Möltu í september.
Formannspistill 3
Sigrún Grendal Jóhannsesdóttir formaður FT skrifar.
Gestaskrif 5
Sigrún Stefánsdóttir yfirmaður upplýsingadeildar Norrænu ráðherranefndar-
innar og Norðurlandaráðs segir frá norrænu samstarfi og möguleikum sem
það býður upp á.
Smiðshöggið 30
Björg Árnadóttir kennari og blaðamaður býður í ferð um draumalandið sitt.
Skóladagar 19
Myndasaga Skólavörðunnar.
Að auki
er blaðið stútfullt af fréttum, kjaramálum, tilkynningum og fleiru
að ógleymdum leiðara.
Ritstjóri: Guðlaug Guðmundsdóttir gudlaug@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Hönnun: Zetor ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson / motiv-mynd, nema annað sé tekið fram.
Teikningar: Ingi Jensson
Auglýsingar: Stella Kristinsdóttir stella@ki.is / sími 595 1142 eða 867-8959
Prentun: Svansprent
Forsíðumynd: Jón Svavarsson
Skólavarðan, s. 595 1118 (Guðlaug) og 595 1119 (Helgi).
Öll aðildarfélög Kennarasambandsins eru
nú með lausa samninga. Næstu vikur og
mánuðir verða tímabil kjaraviðræðna og
kjarabaráttu kennara á öllum skólastig-
um allt frá leikskóla til framhaldsskóla.
Þegar þetta er skrifað hefur verkfall
grunnskólakennara og skólastjóra staðið á þriðju viku og sér ekki enn
til lands þótt aðilar séu farnir að skiptast á tillögum. Vonandi fara
samningamenn sveitarfélaga að átta sig á alvörunni að baki kröfu-
gerð grunnskólakennara fyrir hækkun launa, styttingu kennsluskyldu
og færslu launaflokka úr svokölluðum potti yfir í grunnlaun. Þetta
eru lykilatriði sem kennarar segjast ekki tilbúnir að hvika frá.
Þótt samkomulag takist um nýjan kjarasamning grunnskólans er
ljóst að næstu vikur og mánuði mun andrúmsloftið í Kennarahúsinu
áfram mótast af kjarabaráttu og samningamálum.
Hver hópurinn tekur við af öðrum. Leikskólakennarar og
framhaldsskólakennarar eru byrjaðir að ræða við viðsemjendur sína.
Aðildarfélög Kennarasambandsins styðja hvert annað í baráttunni.
Þar standa allir fyrir einn og einn fyrir alla. Þetta er sameiginlegur
róður félaganna fyrir bættum kjörum kennarastéttarinnar í heild.
Miðopna Skólavörðunnar fjallar um verkfallið í máli og myndum.
Heimasíða Kennarasambandsins sem er uppfærð daglega veitir ítar-
legar upplýsingar um gang mála í kjaramálum félaganna.
Hvað er Norðurlandaráð? Hvað er Norræna ráðherranefndin?
Hvaða gildi hefur norrænt samstarf fyrir okkur Íslendinga?
Norðurlandaráð var stofnað árið 1952 og er samstarfsvettangur
norrænu þjóðþinganna fimm. Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur
og Svíþjóðar eru frjáls og fullvalda ríki en sjálfstjórnarsvæðin í Fær-
eyjum, á Grænlandi og á Álandseyjum eru einnig í Norðurlandaráði. Í
sáttmála sem gerður var í Helskinki árið 1962 skuldbundu Norðurlönd-
in sig til að þróa með sér samstarf.
Helsinki-sáttmálinn er sá grunnur sem allt norrænt samstarf byggir
á. Á þessum tíma var Evrópa klofin í tvennt og járntjaldið svokallaða
lokaði helmingana af. Norðulöndin sáu sér hag í því að snúa bökum
saman og standa sameinuð gagnvart umheiminum.
Norræna ráðherranefndin var stofnuð síðar eða árið 1971. Í henni
eiga sæti fulltrúar norrænu ríkisstjórnanna og sjálfstjórnarsvæðanna.
Norðurlandaráð og ráðherranefndin hafa náið samstarf og stefna að
sömu markmiðum auk þess að setja sömu málefni í forgangsröð.
Ráðherranefndin hrindir ákvörðunum Norðurlandaráðs í fram-
kvæmd. Ráðherranefndin ber auk þess ábyrgð á fjölmörgum mála-
flokkum, meðal þeirra eru norrænir samningar og sáttmálar.
Gildi norræns samstarfs er mikið og sést það glöggt hér í Skóla-
vörðunni. Gestapenninn í þessu tölublaði færir mörg rök fyrir því.
Sigrún Stefánsdóttir segir frá þeim tækifærum sem íslenskt skólafólk
hefur á samskiptum og styrkjum. Í blaðinu birtist afrakstur norræna
samstarfsins þar sem sagt er fá svæðisþingum tónlistarskólakennara
og sumarnámskeiði norrænu kennarafélaganna í Røros.
Íslendingar greiða rúmlega 1% af sameiginlegum sjóði Norður-
landa en fá framklagið þrefalt til fjórfalt til baka gegnum rannsóknar-
áætlanir, hagstæðar lánveitingar og margskonar réttindi.
Forsíðuna að þessu sinni prýðir Iðnskólinn í Reykjavík en þar á bæ
eru hátíðahöld vegna 100 ára afmælis skólans. Skólavarðan heilsaði
upp á skólameistara, kennara og nemendur skólans.
Að lokum vil ég biðja Snæfellinga innlega afsökunar á meinlegri
villu sem slæddist inn á forsíðu síðustu Skólavörðu.
4
LEIÐARIEFNISYFIRLIT
FASTIR LIÐIR
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
GREINAR