Skólavarðan - 01.10.2004, Page 9
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
María Nordahl er starfsmaður sjúkra-
sjóðs KÍ, ásamt Ómari Árnasyni, og
segir hún að sjúkrasjóðurinn sé góður
sjóður. Hún veit þetta manna best því
hún fær í hendur allar umsóknir sem
berast og gengur frá afgreiðslu þeirra
eftir að sjóðstjórn hefur fjallað um þær.
Allar umsóknir fá númer áður en um
þær er fjallað og því eru það einungis
starfsmenn sjóðsins sem sjá nöfn um-
sækjenda.
Skólavarðan spurði Maríu og Svövu
Pétursdóttur, formann sjóðstjórnar, nokk-
urra spurninga um sjóðinn vegna þess að
1. október sl. voru gerðar breytingar á
úthlutunarreglum sem ýmist eru nýjungar
eða uppfærslur eldri reglna. Frá upphafi
hafa sjóðnum borist 4.400 umsóknir.
María var spurð að því hverjar væru al-
gengustu styrkumsóknirnar til sjúkrasjóðs.
Eftir að rýnt var í tölur frá árinu 2003 kom í
ljós að flestar umsóknir bárust um styrki til
meðferðar hjá ýmsum meðferðaraðilum.
Alls voru greiddir út um 600 styrkir í þenn-
an málaflokk árið 2003. Grunnskoðun hjá
Krabbameinsfélagi Íslands er greidd að
fullu en hún kostar 2.500 kr. Þessi styrkur
er einn sá algengasti en þó voru það innan
við 9% sjóðfélaga sem sóttu um hann árið
2003. Skýringin gæti verið sú að þeir sæju
ekki ástæðu til að sækja um svo lágan
styrk eða vissu ekki að hægt væri að sækja
um hann. „En ég vona að þetta merki
ekki að konur í kennarastétt nýti sér ekki
þjónustu leitarstöðvar Krabbameinsfélags
Íslands,“ sagði María.
Engir styrkir til líkamsræktar
Sjúkrasjóður KÍ greiðir ekki niður
líkamsrækt sjóðfélaga. Margir spyrja hvers
vegna sú sé raunin. Svava sagði að talsvert
væri spurt um slíka styrki og sjóðstjórn
hefði fjallað um hvort ástæða væri til að
taka þá upp. Niðurstaðan hefði orðið sú
að fara að líkt og fleiri svipaðir sjóðir og
greiða ekki styrki til líkamsræktar. Rökin
eru þau að yfirleitt er kostnaður við líkams-
rækt viðráðanlegur og ef allir sjóðfélagar
sæktu um styrki af þessu tagi yrði sjóður-
inn fljótlega uppurinn.
Sjóngler og laser-aðgerðir á augum
Mikil þörf hefur reynst fyrir gleraugna-
styrki. Yfir 200 sjóðfélagar fengu styrki til
kaupa á sjónglerjum og stöðug aukning
er greinileg. Tekið skal fram að styrkurinn
nær eingöngu til glerja en ekki umgjarða.
Sjóðfélagar fá styrk til kaupa á sjónglerj-
um einu sinni á 48 mánaða fresti og nemur
hann þriðjungi af kostnaði sjónglerja fari
hann yfir 30.000 kr. Framvísa ber augnvott-
orði ásamt sundurliðuðum reikningi. Sjóð-
félagar fá styrk til laser-aðgerða á augum
að hámarki 25.000 kr. fyrir hvort auga.
Glasafrjóvgun og ættleiðing barna
María sagði að rausnarlegir styrkir byð-
ust þeim sem fara í tæknifrjóvgun eða
ættleiða börn. Hún sagði að þetta væru
oft þær styrkafgreiðslur sem hreyfðu mest
við tilfinningunum hvort sem styrkþegar
fengju jákvæðar niðurstöður í málum
sínum eða ekki. „Ég á myndir af litlum
börnum sem stoltir foreldrar hafa fært
mér og dæmi eru jafnvel um að foreldrar
hafi komið hingað í húsið með litlu krílin
sín til að kynna þau fyrir „ömmunni í Kenn-
arahúsinu“, segir María og hlær.
Rýmkaðar reglur - hækkaðir styrkir
Helstu breytingar á reglum um greiðslu
sjúkradagpeninga eru rýmkaðar og upp-
hæðin hækkuð úr 4.000 í 4.500 kr. á dag.
Sömu sögu er að segja um reglur um
styrki til ýmiss konar meðferðar. Þar hafa
styrkupphæðir hækkað nokkuð í flestum
tilfellum og reglur verið rýmkaðar. Sem
dæmi má nefna að styrkur til að greiða
meðferð hjá nuddara hefur tvöfaldast.
Styrkur fyrir meðferð hjá sjúkraþjálfara
hefur hækkað um 20% og hægt er að fá
hann fyrir 24 skipti í stað 20 áður. Sjóðfé-
lagar geta fengið styrk vegna faghand-
leiðslu hjá viðurkenndum handleiðurum.
Ferða- og lyfjakostnaður - tannlækna-
kostnaður
Umfangsmestu nýjungarnar eru í 6.,
7. og 9. grein úthlutunarreglna. Í 2. lið 6.
greinar segir: „Sjóðurinn greiðir almennt
ekki styrki vegna lyfja- og ferðakostnaðar
vegna veikinda. Þó er sjóðstjórn heimilt
að veita styrki við sérstakar aðstæður, svo
sem ef um mikil og óvænt útgjöld eða fjár-
hagslega erfiðleika er að ræða af þessum
sökum. Sem dæmi má nefna að ef sjóðfé-
lagi veikist skyndilega og þarf að reiða af
hendi upphæðir sem skipta tugum eða
hundruðum þúsunda, til dæmis til lyfja-
kaupa, getur hann sótt um styrk til sjóðs-
ins. Þetta á einnig við ef ferðakostnaður til
og frá heilbrigðisstofnun vegna sjúkdóms
fer úr hófi fram.
Sjóðfélagar frá styrk vegna tannlækna-
kostnaðar sem nemur 40% af kostnaði
umfram 50.000 kr. á hverju 12 mánaða
tímabili, þó að hámarki 300.000 kr.
Úthlutunarreglur sjúkrasjóðs og um-
sóknareyðublöð eru aðgengileg á á vef-
síðu Kennarasambands Íslands. www.ki.is
GG
SJÓÐIR KENNARASAMBANDS ÍSLANDS
9
9%
9%
Sjúkrasjóður KÍ er góður sjóður
María Nordahl og Svava Pétursdóttir