Skólavarðan - 01.10.2004, Page 14
14
SKÓLAHEIMSÓKN
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
Lýsuhólsskóli er fámennur skóli á sunnan-
verðu Snæfellsnesi. Tuttugu og þrír nem-
endur sækja þar nám í 1.-10. bekk og tvö
fimm ára börn koma tvisvar í viku og
slást í hópinn með yngstu nemendum
skólans. Við skólann starfa þrír kennarar
í fullu starfi auk skólastjóra,Guðmundar
Sigurmonssonar, og þrír kennarar koma
að stundakennslu.
Samkennsla er eðlilega mikil í svo
fámennum skóla, en í hverjum árgangi
eru ekki fleiri en 2-4 nemendur. „Við
höfum mikla reynslu í að samkenna og
það gengur mjög vel. Hóparnir eru ekki
bundnir og misjafnt frá ári til árs hvernig
þeir eru settir saman. Það fer einnig eftir
námsgreinum hvað hentar hverju sinni. Í
stærðfræði kemur þetta vel út því hún er
mjög einstaklingsbundin grein en í tungu-
málakennslu getur verið snúnara að vera
með marga nemendur á mismunandi stigi.
Í stórum dráttum er skipt í 3 - 4 hópa. Sam-
komulagið er gott, börnin eru vön þessu,“
sagði Guðmundur.
Sterkir bakhjarlar
Snæfellsbær, sem rekur Lýsuhólsskóla,
varð til við sameiningu Ólafsvíkur, Nes-
hrepps utan Ennis, Staðarsveitar og Breiðu-
víkurhrepps. Í skólahverfi Lýsuhólsskóla
búa nú tæplega tvö hundruð manns og
hefur íbúum fækkað mikið á skömmum
tíma. Börnin í Lýsuhólsskóla búa öll í
dreifbýli. „Það er ekkert launungarmál
að skólinn er dýr í rekstri en sveitarfélagið
gerir vel við hann og hann nýtur trausts
íbúanna,“ sagði Guðmundur. „Foreldrarn-
ir standa þétt að baki skólanum og það er
ómetanlegt. Sú tilhneiging að sameina
skóla er mjög skiljanleg m.t.t. kostnaðar
en hér er erfitt að sameina því að Fróðár-
heiðin skilur að nágrannabæina og hún er
oft torfær á veturna.“
Traust starfslið
Guðmundur sagðist hafa afbragðsgott
kennaralið. „Allir kennararnir okkar hafa
full réttindi og margir þeirra hafa starf-
að hér lengi. Samræmdu prófin hafa til
dæmis komið vel út hjá okkur. Við eigum
góðan aðgang að vel menntuðu fólki í til-
Helstu verkefni eru að gera kálgarð og rækta lífrænt grænmeti,
reisa gróðurhús, gera stíf lu og framleiða rafmagn til að lýsa upp
gróðurhúsið og reka veðurstöð með sólarorku.
Lýsuhólsskóli
Með góða kennara og foreldra sem standa þétt að baki er allt hægt
Rósa Erlendsdóttir kennari með nemendum
sínum í Lýsuhólsskóla.
Vatnshrúturinn og Haukur Þórðarson,
kennari og verkefnisstjóri.