Skólavarðan - 01.10.2004, Side 17
17
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
KJARAMÁL GRUNNSKÓLAKENNARA
gefur út fréttablaðið Verkfallspóstinn
sem kemur út á virkum dögum og flytur
FG-félögum fréttir af gangi mála. Ritstjóri
er Guðlaug Guðsteinsdóttir. Auk þess eru
ítarlegar fréttir sagðar af verkfallsmálum
á vef Kennarasambands Íslands.
Verkfallasagan
Aðdragandi verkfallsins nú var langur
enda höfðu kennarar í grunnskólum verið
samningslausir frá 31. mars 2004.
Þetta er fjórða verkfall grunnskóla-
kennara á tuttugu árum. Flestir grunn-
skólakennarar fóru í verkfall ásamt öðrum
opinberum starfsmönnum í BSRB haustið
1984. Það stóð í um það bil fimm vikur.
Ellefu árum síðar, árið 1995, fóru grunn-
skólakennarar og framhaldsskólakennarar
saman í verkfall sem beindist gegn ríkinu
og stóð það í réttar sex vikur. Haustið 1997
fóru grunnskólakennarar einir í verkfall
sem stóð aðeins í einn dag. Þeir eru því
nú í annað sinn í verkfalli sem þeir standa
einir að.
Úr verkfallsmiðstöðinn í Borgartúni.
Víðtækur stuðningur
Margir aðilar hafa sýnt kennurum sam-
stöðu í verkfallinu og sent stuðning með
margvíslegum hætti. Önnur stétta- og
starfsmannafélög, einstaklingar, innlendir
sem erlendir, að ógleymdum nemendum
og foreldrum hafa sýnt stuðning og sent
kennurum hvatningarorð og framlög í
verkfallssjóð. Þeim er öllum þakkað af
heilum hug.
Önnur félög innan Kennarasambands-
ins tóku skýra afstöðu með félögum sínum
í verkfallinu og lögðu áherslu á að barátta
grunnskólakennara væri þáttur í kjara-
baráttu kennara á öllum skólastigum.
Verkfallsbætur
Vinnudeilusjóður KÍ greiddi félags-
mönnum sínum bætur föstudaginn 1.
október. Launaseðlar voru sendir félags-
mönnum í tölvupósti. Fullar bætur fyrir
þennan tíma voru kr. 42.000 og hlutfall af
þeirri upphæð fyrir hlutastarf.
GG og HEH
Ólafur Loftsson formaður KFR ávarpar
kennara í verkfalli.
Fluga á
vegg í Karphúsinu
Eiríkur Jónsson: Heyrðu
Kristinn, heldur þú ekki örugg-
lega með Manchester United?
Kristinn Kristjánsson: Nei, nei. Ég held
venjulega með þeim sem tapa. Ég er ein-
hvern veginn þannig gerður að ég finn
til með þeim sem minna mega sín.
Eiríkur: Er það þess vegna sem
þú varst valinn í launa-
nefndina?
Eiríkur Jónsson formaður KÍ og
Kristinn Kristjánsson LN.
Nemendur í KHÍ studdu grunnskólakennara.