Skólavarðan - 01.10.2004, Side 18
18
RÁÐSTEFNUR OG ÞING
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004
Svæðisþing tónlistarskólakennara voru
haldin á Ísafirði, Akureyri og í Reykjavík
nú í haust og sóttu þau hundruð tónlist-
arskólakennara. Þingin, sem eru sam-
vinnuverkefni FT, FÍH og ST, fjölluðu
um menningarlegan fjölbreytileika og
jákvæð gagnvirk menningaráhrif. Sér-
stakur gestur, Lance D´Souza aðstoðar-
skólastjóri Tónlistarskólans í Árósum,
hélt erindi á þinginu í Reykjavík. Yfir
200 tónlistarkennarar sóttu þingið sem
var fyrir Suðurland, Suðurnes og höfuð-
borgarsvæðið.
Lance D'Souza er af indversku bergi
brotinn, fæddur í Íran, ólst upp í Tasman-
íu, hlaut framhaldsmenntun í Bretlandi,
kvæntist danskri konu og hefur búið í Dan-
mörku í 25 ár. Fjölmenningarhyggja stend-
ur honum eðlilega hjarta nær. Hann stjórn-
ar World Music Center, sem er deild innan
Tónlistarskóla Árósa, og lýsti starfseminni
þar í tali, myndum og tónum auk þess sem
þinggestir fengu nasasjón af stöðu tón-
listarskólanna í Danmörku. Listamenn frá
Senegal og Kúbu komu fram undir erindi
hans með trumbuslætti og dansi.
Hryndeildin jafnstór þeirri klassísku
D'Souza hóf mál sitt á því að útskýra
uppbyggingu og fjármögnun tónlistar-
skólamála í Danmörku. Íbúar Árósa eru
litlu færri en allir Íslendingar og eru af
ótal þjóðernum. Lífið í tónlistarskólanum
þar litast því af fjölmenningu og er afar
líflegt. „Þar er kennt á öll hugsanleg hljóð-
færi,“ sagði D'Souza, „meira að segja leik-
ur einn á sekkjapípu!“
D'Souza sagði að mikilvægt væri að
gera sér grein fyrir þeim veruleika sem
nútímabörn byggju við. Þau hlustuðu á
hip hop og ýmiss konar hryntónlist, Car-
toon network væri hluti af daglegu lífi
og líkamstjáning þeirra önnur en eldri kyn-
slóða. Hann sagði þetta m.a. endurspegl-
ast í því að hryndeildin í Árósaskólanum
væri orðin jafnstór og klassíska deildin og
nyti síaukinna vinsælda. Hann sagði að
vísbendingar væru um að aðsókn að klass-
ísku tónlistarnámi færi dvínandi. Hann
varpaði til dæmis fram þeirri spurningu
hvort hugsast gæti að hljóðfæraleikarar
í sinfóníuhljómsveitum framtíðarinnar
yrðu einungis frá Finnlandi og fyrrverandi
austantjaldslöndum.
Nauðsynlegt að opna fyrir nýja menn-
ingarstrauma
Unglingar og börn velja síður klassíska
tónlist, fái þau að ráða sjálf, því aðrar teg-
undir tónlistar höfða
einfaldlega betur til
þeirra og kallast frekar
á við þann raunveru-
leika sem þau búa við,
að mati D'Souza. Sú
klassíska tónlist sem
fólk hlustar á núna
er auk þess fegruð,
upptökur nú til dags
eru því sem næst full-
komnar og nemandi í
klassísku námi sér vart
til lands þegar hann er
að æfa sig, vilji hann
keppa við upptökurn-
ar. D'Souza leggur
samt ríka áherslu á að klassísk tónlistar-
menntun sé afar mikilvæg og að varðveita
þurfi allt það góða sem hún gefur. Nem-
endur í hefðbundnu tónlistarnámi öðlist
þekkingargrunn og dýpt sem séu mjög
dýrmæt en nauðsynlegt sé að opna fyrir
nýja menningarstrauma og leyfa þeim að
hafa áhrif á það sem fyrir er. Þetta sé eitt
mikilvægasta verkefnið sem stjórnendur
tónlistarskóla standi frammi fyrir.
Miðstöð heimstónlistar
World Music Center er deild í Tónlistar-
skólanum í Árósum. Hún er sú fyrsta sinnar
tegundar í Danmörku. Að sögn D'Souza
mætast þar menningarstraumar úr ýmsum
áttum, þar er brotinn ísinn og byggðar
brýr. Reynslan af starfsemi World Music
Center hefur vakið
athygli og þykir gott
dæmi um hvernig brúa
megi bil, m.a. milli
menningarsvæða og
þjóða, milli kynslóða
og milli listgreina og
ekki síst milli skóla-
genginna tónlistar-
manna og leikmanna.
Í miðstöðinni mætast
menningarstraumar
gegnum tónlist og
dans og þar er tekið
á móti nýjungum með
opnum hug. Straumar
og stefnur sem koma
í kjölfar fjölmenningarinnar í Danmörku
hafa að sögn hans þegar haft mikil áhrif
á menningarlífið en þeim hefur ekki verið
flaggað sem skyldi. Hann sagði líka að starf-
semin sem þarna væri iðkuð væri liður í að
hamla gegn innflytjendavandamálum.
GG
Nánar verður fjallað um efni frá svæðisþing-
um FT í næstu Skólavörðu.
Menningarlegur fjölbreytileiki
- jákvæð gagnvirk menningaráhrif
Svæðisþing Félags tónlistarskólakennara,
Félags íslenskra hljómlistarmanna og
Samtaka tónlistarskólastjóra
Grisel Gonzales Brado frá Kúbu. Cheikhou Diarra frá Senegal.