Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 3

Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 3
3 FORMANNSPISTILL SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 Í samfélögum þar sem íhugun blómstrar hafa orðið hvað mestar framfarir í hugsun mannsins. Aþena fjögur hundruð árum fyrir Krist kemur upp í hugann. Agora, markaðstorgið þar sem frelsis- elskandi Grikkir söfnuðust saman til að ræða málefni dagsins, var vagga vitsmunalegrar íhugunar. Þar var einn þekktasti kennari sögunnar, Sókrates; óþreytandi að ögra æsku borgarinnar til að hugsa sjálfstætt, draga í efa visku hinna eldri og grennslast fyrir um óleystar gátur tilverunnar. Um tíma ólgaði Aþena af vitsmunalegum átökum, allt frá vísinda- og heimspekiumræðum Platós og Aristótelesar til bók- mennta og lista þeirra Sófóklesar og Phidiasar. Engu að síður galt Sókrates líf sitt vegna heiðarleika síns og þess að gera ekki málamiðlun um sannleikann. Fá okkar teljum okkur nota tímann í sókratíska umræðu en við berum mikla virðingu fyrir verkum þessa mikla kennara sem þáði engin laun vegna þess að hann sagðist ekkert vita og hvatti ungt fólk í Aþenu til að læra að hugsa sjálfstætt. Ég vil halda því fram að hugur þjálfaður á þennan hátt muni að öllum líkindum taka þátt í umbótum samfélagsins og framgangi vísinda. Við höfum erft þessa þrá eftir skilningi á veröldinni, ekki aðeins frá Forngrikkum heldur einnig frá endurreisnarmönnunum Galíleó og Leonardó og upplýsingamönnunum Locke og Rousseau. Hæfni til gagnrýnnar spurnar og óháðrar hugsunar er grunn- markmið skólunar. Tuttugasta öldin og sú tuttugasta og fyrsta nýbyrjuð hafa fært fram á sjónarsviðið nýjar spurningar um afl vísindalegrar skoðunar. Það er svo sem ekki víst að geta til að leysa leyndardóma geimsins verði til að bæta hag mannkyns. Við viljum skilja og stjórna umhverfinu, niðurbrotskraftar eru öflugir og takast á við krafta uppbyggingar. Hugsanlega er getan til að hugsa sjálfstætt þess vegna besta vörnin í flóknum heimi vaxandi tækni og vísinda. Þess vegna er gagnrýnin sjálfstæð hugsun mikilvægasta markmið skólastarfs. Ein aðferð sem er nothæf til náms felst í beinni upplifun þar sem leitast er við að næra náttúrulega forvitni. Skapandi hugsun er eðli vísinda og er sú sama hvort heldur er í sandkassa leikskólabarnsins eða inni á tilraunastofu vísindamannsins. Þess vegna á að skipuleggja skólann þannig að hann gefi kennurum og nemendum færi á að tengja þekkingu þvert á fræðigreinar. Hjálpa nemendum að tileinka sér hugtakabyggingu fræðigreina fremur en utanbókarnám ótengdra staðreynda. Menntun er þá að læra eitthvað og heimfæra síðan það sem maður hefur lært yfir á lífið sjálft. Með öðrum orðum að draga lærdóm. Menntaður er sá sem nær að tengja einhverjar hug- myndir/lærdóm við aðrar sem eru til staðar í veruleikanum; skilja að lögmál sem eru að verki á einu sviði gilda líka á öðru. Menntun er ekki þekking nema hugtakið þekking sé skilið mjög djúpt, þ.e. sem skilningur, bæði með huganum og hjartanu. Við eigum að vera bjartsýn á að greind mannsins geti risið til hins óþekkta, jafnvel þegar ný viðfangsefni hafa enga fyrirsjáanlega lausn. Bjartsýnir vísindamenn takast á við viðfangsefni þar sem svartsýnir úrtölumenn munu ekki hætta sér inn á ókunn svæði. Aðeins er hægt að svara þýðingarmiklum spurningum með því að fara þangað sem enginn hefur farið áður. Það er eina færa leiðin. Vissulega eru þess vegna margar hættur framundan en höfum í huga að þær verða ekki færri þó að við freistum þess að hindra hugsun um nýja hluti. Eitthvað í líkingu við eyðni mun við og við koma upp og þvinga okkur til að tileinka okkur nýja þekkingu sem í sjálfu sér getur verið hættulegt að öðlast. Vísindi geta iðulega raskað hugarró. Charles Darwin beið í 20 ár með að birta verk sitt Uppruni tegundanna vegna þess að hann taldi að samfélagið væri ekki reiðubúið fyrir afleiðingar sem verk hans hefði í för með sér. Þróunarlögmálið var einfaldlega of byltingakennd framsetning til að viktoríanska samfélagið gæti unað við hana og hlaut að valda uppnámi. Reyndar er það svo að þetta raskar hugarró margra enn þann dag í dag. Maðurinn er rannsóknarvera. Við sjáum þetta strax hjá ný- fæddum börnum. Þau nota öll skilningarvit sín til að tengjast umhverfinu og skilja veröldina með þessum tengingum. Þegar barnið uppgötvar hluti og aðstæður sem eru sérstök eða rekst á fyrirbæri sem vekja forvitni byrja þau að spyrja spurninga og leita að aðferðum til að skilja þetta umhverfi. Hvaðan koma fiðrildin? Hvað veldur skýjum á himni? Hvert fer sólin um nætur? Bíta köngulær? Af hverju verður snögglega dimmt á vetrum? Hvaðan kemur ljósið úr vasaljósinu? Hvernig komst lambið inn í kindina? Hvað er sannleikur? Er rétt að segja satt, alltaf? Forvitni er grunnþáttur í mannlegu eðli. Með því að nota þennan grunnþátt við nám er börnum gefið færi á að skapa nýja og raunsæja mynd af umhverfinu. Hvort sem þessar spurningar eru orðaðar eða koma fram á annan hátt, þá merkja þær forvitni, djúpstæða löngun til að vita og uppgötva. Þegar við eldumst öðlumst við venjutengdar/ venjulegar hugmyndir um veröldina. Þessar hugmyndir gera okkur kleift að komast gegnum dagana og fá einhvern botn í það sem við sjáum og reynum í hversdagsleikanum. Þessar hugmyndir eru ekki endilega í samræmi við vísindalegt sjónarmið. Jörðin lítur til dæmis út fyrir að vera flöt eins og við upplifum hana, sólin virðist færast yfir himinhvolfið. Það er engin ástæða til að halda annað án þess að hafa reynslu sem stangast á við á fyrri hugmynd. Menntun er meðal annars að öðlast vísindalegan skilning á um- heiminum og skilning á hugtökum vísinda. Mikilvægasti þáttur vísindamenntunar er að aðstoða börn til þess að öðlast þá hæfni sem þau þurfa til að hugsa vísindalega á ferð þeirra til skilnings. Nemendur eiga að fá möguleika til að þroska hæfni sína til að leysa vanda. Sjá hugsanlega fleiri en eina leið til lausnar. Safna og meta upplýsingar, nota og reyna vísindalegar hugmyndir. Gefa á nemendum færi á að upplifa gleði uppgötvunar og þroska með sér vísindaleg viðhorf svo sem þrautseigju, að taka áhættu, forvitni og hugvitsemi. Þessi viðhorf munu að endingu hjálpa nemendum síðar í lífinu. Ólafur Hjörtur Sigurjónsson formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum Menntun Ólafur Hjörtur Sigurjónsson Lj ós m yn d fr á hö fu nd i

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.