Skólavarðan - 01.02.2006, Page 8
8
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006
Í þetta tbl. Skólavörðunnar hef ég valið
að skrifa um nokkur atriði sem oft er
spurt um hér á skrifstofu KÍ. Í þetta sinn
ætla ég að skrifa um nemendaferðir
grunnskólakennara, slys á vinnustað
og tímabundnar og ótímabundnar
ráðningar grunnskólakennara og fram-
haldsskólakennara.
Grunnskóli: Nemendaferðir
- greiðsla fyrir umsjón og lágmarkshvíld.
Margar spurningar berast varðandi nem-
endaferðir og þá sérstaklega hvernig
greitt er fyrir ferðir annars vegar og hins
vegar varðandi ákvæði um lágmarks
hvíldartíma. Mikilvægt er að blanda ekki
saman þessum tveimur atriðum. Greitt er
fyrir nemendaferðir samkvæmt grein 2.3.9
í kjarasamningi en þar segir: „Fyrir umsjón
í nemendaferðum, sem skipulagðar eru
sem hluti af starfi grunnskóla, skal greiða
allt að 12 klukkustundir á dag að frá-
dregnum fjölda
kennslustunda á stundaskrá viðkomandi
kennara á ferðadegi. Standi ferð yfir
nótt greiðast að auki 3 klukkustundir.“
Séu engar kennslustundir samkvæmt
stundaskrá á ferðadegi dragast að
sjálfsögðu engar kennslustundir frá 12
tímunum. Greitt er fyrir þessar ferðir með
yfirvinnu og er mjög mikilvægt að semja
um greiðslu fyrirfram.
Varðandi ákvæðið um lágmarks
hvíldartíma þá ber að veita starfsmanni
á hverjum 24 klukkustundum 11 klukku-
stunda samfellda hvíld, samkvæmt EES
tilskipun sbr. grein 2.4.1.1. í kjarasamningi.
Í rammagrein með kjarasamningi segir:
„Mest reynir á ákvæði um lágmarkshvíld
í tengslum við félagsstarf í skólum og
ferðir nemenda. Mikilvægt er að haga
skipulagi félagsstarfs og nemendaferða
þannig að ekki verði gengið á svig
við lágmarkshvíldarákvæði eða önnur
ákvæði vinnutímasamningsins. Ef kennari
verður vegna ófyrirséðra aðstæðna að
standa lengri vinnulotu en 13 klst. af
óviðráðanlegum ástæðum ber honum í
kjölfarið 11 klukkustunda lágmarkshvíld.
Ekki er heimilt að skipuleggja brot á lág-
markshvíldarákvæðum og bjóða kennara
frítökurétt í staðinn eða greiðslur í stað
hvíldar. Foreldrar mega vænta þess að
ákveðin gæsla sé á börnum þegar þau
eru á vegum skóla við nám, í félagsstarfi
eða á ferðalögum. Sú gæsla gæti verið
innt af hendi af kennurum skólans,
skólaliðum eða öðrum aðilum. Mikilvægt
er að leita leiða til að leysa þessi mál
með skynsamlegum hætti.” En fari hins
vegar svo að kennari nái ekki sinni 11
klukkustunda samfelldu hvíld myndast
frítökuréttur sem er 1,5 klukkustund fyrir
hverja þá klukkustund sem hvíldin skerðist
um. Þannig á kennari sem fær aðeins 9
klukkustunda hvíld, 3 tíma frítökurétt
út á þessar 2 klukkustundir sem vantaði
upp á 11 klst. samfellda hvíld. Það ber þó
að ítreka að ekki á að skipuleggja ferðir
þannig að vitað sé fyrirfram að kennari fái
ekki 11 klst. samfellda hvíld.
Grunnskóli/ framhaldsskóli:
tímabundin og ótímabundin ráðning.
Oft er spurt um ráðningar og hversu
lengi megi ráða starfsmenn tíma-
bundið án þess að fastráða þá. Í lögum
um lögverndun á starfsheiti og starfs-
réttindum grunnskólakennara, framhalds-
skólakennara og skólastjóra nr. 86/1998
segir að kennari eigi rétt á fastráðningu
með þriggja mánaða uppsagnarfresti eftir
tveggja ára starf nema um tímabundna
afleysingu sé að ræða. Almenna reglan
er að ekki má ráða kennara tímabundið
nema í tvö ár, þriðja árið á hann rétt á
fastráðningu.
KÍ - Almennt í samningum
- Slys á vinnustað:
Samkvæmt kjarasamningum allra félaga
í KÍ skal vinnuveitandi bæta starfsmanni
þau útgjöld sem hann verður fyrir vegna
slyss á vinnustað og slysatryggingar
almannatrygginga bæta ekki. Þetta á
einnig við þegar starfsmaður er á leið
í og úr vinnu. Þetta á við um tilfallandi
kostnað, s.s. vegna læknisheimsóknar,
sjúkraþjálfunar eða annars sem beinlínis
tengist slysi.
Að lokum langar mig að minna enn
og aftur á netfangið mitt ingibjorg@ki.
is ef þið hafið einhverjar spurningar og
auðvitað er líka hægt að hringja hingað á
skrifstofu KÍ í síma: 595 1111.
Ingibjörg Úlfarsdóttir
Höfundur er launafulltrúi KÍ.
Nemendaferðir, slys á vinnustað og ráðningar
Ingibjörg hjá ki.is
Lj
ós
m
yn
d:
k
eg
og styðja hið góða í hverjum einstaklingi
skapist góður grunnur fyrir allt nám.
Tröllaborgir: Sýn skólans er að vinna
með og samþætta „hug, hjarta og
hönd” í allri starfsemi skólans. Það er,
að jafnvægi verði á milli þekkingar,
tilfinninga og framkvæmdar í öllu starfi.
Til að ná þessu fram er stefnumótun
leikskólans unnin eftir hugmyndafræði
lífsleikninnar. Áhersla er lögð á að
vinna með virðingu, sjálfsstjórn og
ábyrgðarkennd einstaklinga gagn-
vart sjálfum sér og öðrum svo að þeir
finni til samkenndar og sýni tillitssemi.
Smábær í Hrísey: Hugmyndafræði
skólans byggist m.a. á lífsviðhorfi,
gildismati, þekkingu og reynslu
starfsmanna hans, ásamt kenningum sem
settar hafa verið fram af fræðimönnum
og rannsóknum sem gerðar hafa verið á
leikskólastarfi. Leikskólinn hefur fengið
Grænfánann.
Hlíðaból, einkarekinn leikskóli: Skólinn
leggur áherslu á kristilegt siðgæði barn-
anna. Lögð er áhersla á að öll börn sem
útskrifast frá leikskólanum geti sýnt
tillitssemi, kærleika, virðingu og sett
sig í spor annarra. Áhersla er lögð á
skapandi starf og tjáningu. Leikskólinn
er á grænni grein.
Um 95% barna á Akureyri á aldrinum 2ja
– 5 ára eru í leikskóla. Meðal dvalartími
þeirra í leikskóla er um 7,4 klukkustundir
á dag. Stöðugildin í leikskólunum á
Akureyri eru í heild 220. Stöðugildi vegna
deildarstarfs eru alls 139 og 64% af deildar-
stöðugildunum eru mönnuð fagfólki, eða
89 stöðugildi.
Mánudaginn 19. desember undirrituðu
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri
og Margrét Pála Ólafsdóttir framkvæmda-
stjóri Hjallastefnunnar ehf. samning um
rekstur leikskólans Hólmasólar við Helga-
magrastræti. Samningurinn gildir til 31.
desember 2009. Leikskólinn Hólmasól
tekur til starfa í apríl næstkomandi og
með haustinu verður pláss fyrir um 1.150
börn í leikskólunum hér á Akureyri og þá
verður 18 mánaða börnum boðið upp á
leikskólapláss.
Hrafnhildur G. Sigurðardóttir
Höfundur er leikskólafulltrúi.
KJARAMÁL
Leikskólastjórar á Akureyri taka við viðurkenningu Ljósmyndir frá höfundi
LEIKSKÓLASTARF