Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 18

Skólavarðan - 01.02.2006, Blaðsíða 18
18 STYRKIR, RÁÐSTEFNA SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 6. ÁRG. 2006 STYRKUR Á NÁMSKEIÐ VIÐ LUTHER COLLEGE Styrkur þessi er fyrir starfandi kennara til að sækja fjögurra vikna námskeið við Luther College í Decorah, Iowa í júlí 2006. Námskeiðið er á vegum Institute of American Studies for Scandinavian Educators og er ætlað til kynningar á bandarísku þjóðlífi og menningu. Styrkupphæð nemur $ 2.000 og gengur hún upp í hluta útgjalda. Upplýsingar um þennan styrk veitir Hannes K. Þorsteins- son, hannes@ki.is hjá Kennarasambandi Íslands. Umsóknareyðublöð má sækja á www. iceam.is. Umsóknir um styrk til Haystack Mountain School og til Luther College þarf að senda eigi síðar en 1. mars 2006 til Íslensk-ameríska félagsins, Pósthólf 320, 121 Reykjavík. Nordplus Junior – Leik-, grunn- og fram- haldsskólaáætlun Norðurlanda styrkir nemendaskipti og ferðir kennara á grunn og framhaldsskólastigi til Norður- landa. FYRIR HVERJA? Grunn- og framhaldsskólar á Norður- löndum geta sótt um ferðastyrki til nemendaskipta en leik-, grunn- og fram- haldsskólar til kennaraskipta. HVERS KONAR SAMSTARF? I. Bekkir / námshópar Þátttakendur eiga að vera frá tveimur ríkjum að minnsta kosti eða sjálfstjórnar- svæðum á Norðurlöndum. Verkefnið feli í sér uppeldisfræðilegt gildi og tengist skólastarfi nu almennt. II. Kennarar Kennaraskipti milli a.m.k. tveggja skóla í tveimur löndum, bein kennaraskipti þurfa ekki að eiga sér stað. Farkennarar ferðast á milli skóla í öðru landi og kenna sitt fag. III. Nemendur Þátttaka einstakra nemenda annaðhvort í starfsþjálfun innan iðngreina eða kennslu í framhaldsskólum. Skólarnir sækja um fyrir hönd sinna nemenda, Umsóknarfrestur er til 15. mars 2006 fyrir verkefni 1. ágúst 2006 til 1. ágúst 2007. NB. Athygli er vakin á því að aðeins er sótt um einu sinni á ári. Umsóknir varða nemenda- eða kennaraskipti skólaárið 2006-2007. Norræna skólanetið er vett- vangur skólasamskipta: Nordisk Skolenet, www.nordskol.org. Umsóknareyðublað á sænsku er á www. ask.hi.is. Umsóknum skal skila rafrænt á netinu ásamt undirrituðum skóla- samningi til Programkontoret í Svíþjóð umsjónaraðila Nordplus junior. Nánari upplýsingar fást hjá Alþjóða- skrifstofu háskólastigsins/Landsskrifstofu Nordplus, www.ask.hi.is Sími 525 5813 netfang: rz@hi.is. Hinn kunni bandaríski fræðimaður Carol Ann Tomlinson verður aðalfyrirlesari á ráðstefnunni Skóli á nýrri öld sem haldin verður á starfsdegi grunnskólakennara í Reykjavík 1. mars 2006. Tomlinson er prófessor við Virgíníuháskóla og höfundur margra bóka um ein-staklingsmiðað nám og kennsluhætti. Sú síðasta, Differentiation in Practice: A Resource Guide for Differentiating Curriculum Teaching kom út á síðasta ári. Erindi sitt kallar Tomlinson Different-iated Instruction; What is it, Why does it matter, How does it look? og mun hún leggja megináherslu á lykilatriði í einstaklingsmiðuðu námi, framkvæmd þess og námsmat. Hin árlega ráðstefna Skóli á nýrri öld er samstarfsverkefni Skólastjórafélags Reykjavíkur, Kennarafélags Reykjavíkur og Menntasviðs Reykjavíkurborgar og sækja hana hátt í 700 kennarar. Ráðstefnan, sem haldin verður á hótel Nordica hefst kl. 13.00 og henni lýkur með léttum veitingum kl. 17:00. Að loknum aðalfyrirlestri verða fi mm málstofur þar sem kynnt verða ýmis verkefni sem verið er að vinna að í grunnskólum borgarinnar. Meginþema í málstofunum er læsi í víðasta skilningi þess orðs s.s. nýjar leiðir í lestrarkennslu, menningarlæsi og umhverfi slæsi. Undanfari ráðstefnunnar er sýning á verkefnum úr reykvísku skólastarfi sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur 17.-18. febrúar. Þar verða hvatningarverðlaun Menntaráðs líka afhent. Markmið þessara viðburða er að vekja athygli kennara, foreldra og annarra borgarbúa á nýbreytni í skólastarfi , miðla upplýsingum til skóla og milli þeirra og vera kennurum og nemendum hvatning til frekari dáða. Hægt er að skrá sig rafrænt á ráðstefnuna Skóli á nýrri öld og í málstofur á vef Menntasviðs www.leikskolar.is Sjá einnig bls. 26 en þar er grein um aðalfyrirlesarann Carol Ann Tomlinson. Einstaklingsmiðað nám – fræðin í framkvæmd Íslensk-ameríska félagið auglýsir styrki fyrir skólaárið 2006 – 2007 – Umsóknarfrestur er til 15. mars vegna verkefna skólaárið 2006/2007 Nordplus Junior styrkir

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.