Skólavarðan - 01.05.2008, Side 8
8
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008
Stjórnendur í grunnskólum undirrituðu 30. apríl
Atkvæðagreiðslu lýkur 15. maí
Stjórnendur í grunnskólum skrifuðu undir sinn fyrsta sjálfstæða
samning klukkan þrjú síðdegis þann 30. apríl sl. Samningurinn
hefur verið kynntur í deildum Skólastjórafélags Íslands (SÍ) og
atkvæðagreiðslu um hann lýkur 15. maí.
Stór skref voru stigin við að ná sameiginlegum markmiðum
skólastjórnenda í grunnskólum og viðsemjenda þeirra sem samþykkt
voru þann 3. mars 2008 og áfram verður unnið að því að ná þeim
við gerð næsta kjarasamnings enda eru þau hluti samningsákvæða.
Markmiðin eru m.a. að jafna laun og önnur starfskjör stjórnenda í
grunnskólum og annarra háskólamenntaðra stjórnenda hjá sveitar-
félögum sem sinna sambærilegum störfum og að taka upp
þróunarverkefni um tímabundin viðbótarlaun (TV einingar). Um
tímabundin viðbótarlaun segir meðal annars í samningnum: „Með
tímabundnum viðbótarlaunum er búinn til farvegur fyrir greiðslur
vegna ýmiss konar aðstæðna sem hafa áhrif á starfsmanninn og
vinnuframlag hans sem í eðli sínu eru tímabundnar. Slíkar aðstæður
geta falist í tímabundnu álagi og verkefnum umfram eðlilegar
aðstæður, s.s. vegna þróunar- og átaksverkefna, frammistöðu- og
hæfnismats eða vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna.“
Samningurinn hefur sama gildistíma og kjarasamningur grunn-
skólakennara eða frá 1. júní 2008 – 31. maí 2009.
keg
Reiknivél fyrir grunnskólakennara
Á vef Austurgluggans, austurglugginn.is, er reiknivél sem reiknar
út launahækkun grunnskólakennara og var sett upp í framhaldi af
undirritun kjarasamnings eða þann 29. apríl sl. Reiknivélin er í
stikunni efst á forsíðu vefjarins.
Í frétt á vef Austurgluggans segir: Grunnskólakennarar munu
kjósa um nýgerða kjarasamninga fyrri hluta maímánaðar. Nú hafa
samningsaðilar náð lendingu áður en kjarasamningur rennur út.
Austurglugginn.is hefur látið útbúa reiknivél hér á vefnum sem
reiknar nákvæmlega út fyrir grunnskólakennara hver launahækkun
þeirra verður ef þeir samþykkja samninginn. Reiknivélin er byggð á
forsendum nýgerðs kjarasamnings.
Önnur aðildarfélög líka með lausa samninga
á þessu ári
Kjarasamningur framhaldsskólans rann út í apríllok og framhalds-
skólakennarar eru í samningaviðræðum. Tónlistarskólakennarar og
leikskólakennarar eru samningsbundnir til 30. nóvember á þessu ári.
Aðalfundur hjá KFR
Tveimur dögum eftir að samningur FG var undirritaður var aðal-
fundur hjá KFR
KFR stendur fyrir Kennarafélag Reykjavíkur, en það er stærsta
svæðafélagið í FG, Félagi grunnskólakennara. Félagsmenn í
KFR eru um 1500 og í FG um 4500. Félagsmenn KFR starfa í
44 grunnskólum í Reykjavík. Formaður KFR var sjálfkjörinn á
fundinum, Þorgerður L. Diðriksdóttir, og hún sagði meðal annars
um samninga og samningsumhverfi í erindi sínu: „Við grunnskóla-
kennarar á landsvísu erum nýbúin að gera samning til eins árs
sem tekur gildi um mánaðamótin maí-júní ef hann verður
samþykktur af félagsmönnum. Kosið verður um samninginn fyrri
hluta maímánaðar. Mikill óróleiki er ríkjandi á vinnumarkaði og
nauðsynlegt að halda vel á spöðunum en styrkur þessa samnings
felst að mínu persónulega mati í því að hann er til skamms tíma,
það er eins árs, og með honum dregur verulega saman með
kennurum og helstu viðmiðunarstéttum þeirra. Ég hvet hins vegar
hvern einasta félagsmann Kennarafélags Reykjavíkur til að skoða
samninginn vel og greiða atkvæði sitt í samræmi við það sem
honum finnst innst inni eftir að hafa skoðað hug sinn, vegna þess
að það er enginn sem ákveður hvernig maður ráðstafar atkvæði
sínu nema maður sjálfur. Þrátt fyrir ágæta skammtímasamninga
erum við í hnattrænu umhverfi á öllum sviðum og niðurskurður
í tveimur undirstöðum hvers samfélags, menntakerfi og heil-
brigðiskerfi, er staðreynd og í sífellu er grafið undan þessum
tveimur meginstoðum. Við kennarar erum þeir einu sem geta
spornað við árásum á skólann og á okkar starf sem meðal annars
birtast í auknu skrifræði, lágum launum, auknum kröfum um
vinnuframlag, sífellt fleiri verkum, meira eftirliti með okkur og
nemendum og aukinni stöðlun í þágu skilvirkni og árangurs.“
Fréttir af samningum, viðræðum, atkvæðagreiðslum og fleiru
sem tengist kjaramálum kennara eru á www.ki.is og á undirsíðum
aðildarfélaga.
KJARASAMNINGAR f r a m h a l d
KjARASAMNINGAR