Skólavarðan - 01.05.2008, Page 13
Leik- og grunnskólakennarar – Spennandi starfstækifæri
GRUNNSKÓLAR
Brúarásskóli
auglýsir eftir kennurum frá og með næsta skólaári.
Um er að ræða kennslu í íslensku, samfélagsfræði, upplýsingatækni, náttúrufræði, heimilisfræði og íþróttum.
Auk þess vantar umsjónarkennara á mið- og unglingastigi..
Brúarásskóli er fámennur dreifbýlisskóli, með um 40 nemendur í 1.-10. bekk. Alla jafna er kennt í 4 samkennsluhópum.
Skólinn hefur ríka hefð fyrir starfi á grundvelli einstaklingsmiðaðs náms og á undanförnum árum hefur skólinn unnið sérstaklega með
samþættingu námsgreina.
Nánari upplýsingar veitir starfandi skólastjóri, Stefanía Malen Stefánsdóttir, í síma 4 700 625 eða á netfanginu
stefaniam@fljotsdalsherad.is Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/bruarasskoli
Grunnskólinn Egilsstöðum og Eiðum
auglýsir eftir kennurum frá og með næsta skólaári.
Meðal kennslugreina: Almenn bekkjarkennsla, smíðar, textílmennt og tónmennt.
Í skólanum eru rúmlega 360 nemendur. Verið er að hefja framkvæmdir við tvöföldun skólahúsnæðis Egilsstaðaskóla.
Nýir kennarar eru boðnir velkomnir í hópinn á spennandi uppbyggingartímum bæði í skólastarfinu og umhverfi skólans.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Sigurlaug Jónasdóttir, í síma 4 700 605 eða á netfanginu sigurlaug@fljotsdalsherad.is
Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/egilsstadaskoli
Hallormsstaðaskóli
auglýsir eftir kennurum frá og með næsta skólaári.
Um er að ræða kennslu í dönsku, samfélagsfræði, textílmennt og íþróttum auk kennslu yngri barna.
Hallormsstaðaskóli er fámennur samkennsluskóli með um 50 nemendur, staðsettur í hjarta Hallormsstaðaskógar.
Aðstaða til útikennslu er einstök og ein kennslustofa skólans er í skóginum. Skólinn leggur ríka rækt við kennslu list- og verkgreina
og hefur langa hefð fyrir starfi á grundvelli einstaklingsmiðaðs náms.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri, Pétur Þorsteinsson, í síma 4 700 630 eða á netfanginu petur@fljotsdalsherad.is
Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/hallormsstadaskoli
LEIKSKÓLAR
Leikskólinn Brúarási
auglýsir eftir leikskólakennara frá og með næsta skólaári.
Leikskólinn er einnar deildar leikskóli, starfræktur í húsnæði Brúarásskóla og starfar í mjög nánu samstarfi við grunnskólann.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Vala Jónasdóttir í síma 4 700 678 - 4 700 670 eða á netfanginu vala@fljotsdalsherad.is
Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/bruarasleikskoli
Leikskólinn Hádegishöfði
auglýsir eftir leikskólakennurum frá og með næsta skólaári.
Leikskólinn Hádegishöfði er tveggja deilda leikskóli í Fellabæ. Undirbúningur að stækkun leikskólans er á lokastigi.
Skólastarfið tekur mið af hugmyndafræði Reggio Emilia.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Guðmunda Vala Jónasdóttir, í síma 4 700 670 eða á netfanginu vala@fljotsdalsherad.is
Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/hadegishofdi
Leikskólinn Skógarsel
auglýsir eftir leikskólakennara frá og með næsta skólaári.
Leikskólinn Skógarsel er einnar deildar leikskóli, starfræktur sem sjálfstæð stofnun í húsnæði Hallormsstaðaskóla.
Skógarsel notar hið einstæða umhverfi sem mótandi þátt í skólastarfinu og skilgreindur hluti starfsins fer fram í skóginum.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Dísa María Egilsdóttir, í síma 4 700 675 eða á netfanginu disa@fljotsdalsherad.is
Leikskólinn Skógarland
auglýsir eftir leikskólakennurum, deildarstjórum og sérkennslustjóra frá og með næsta skólaári.
Leikskólinn Skógarland er nýr 6 deilda leikskóli á Egilsstöðum, starfsemi er hafin á 5 deildum.
Áherslur í starfi skólans taka mið af hollustu, hreyfingu og uppgötvunarnámi.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Hanna Málmfríður Harðardóttir, í síma 4 700 660 eða á netfanginu hanna@fljotsdalsherad.is
Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/skogarland
Leikskólinn Tjarnarland
auglýsir eftir leikskólakennurum og deildarstjórum frá og með næsta skólaári.
Leikskólinn Tjarnarland er rótgróinn leikskóli á „skólatorfunni” á Egilsstöðum. Skólastarfið tekur mið af hugmyndafræði Reggio Emilia.
Á næsta skólaári verður unnið að þróunarverkefni sem felst í að þróa innra starf leikskólans fyrir 5 ára nemendur og að efla enn frekar
samstarf við eldri borgara.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Aðalbjörg Pálsdóttir, í síma 4 700 650 eða á netfanginu adalbjorg@fljotsdalsherad.is
Heimasíðu skólans má finna á www.fljotsdalsherad.is/tjarnarland
Hæfniskröfur í ofangreindar stöður:
Leikskóla- eða grunnskólakennaramenntun eftir því sem við á.
Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
Umsóknir með ferilskrá
merkt þeim grunn- og
leikskólum sem við á skal
senda á:
Fljótsdalshérað
Lyngási 12,
700 Egilsstaðir
í síðasta lagi 23. maí nk.
TÓNLISTARKENNARAR
Á Fljótsdalshéraði eru þrír
tónlistarskólar, í Brúarási,
í Fellabæ og á Egilsstöðum
en frá skólanum á Egils-
stöðum er jafnframt starfrækt
útibú í Hallormsstaðaskóla.
Lausar stöður við
tónlistarskóla sveitar-
félagsins næsta skólaár
verða auglýstar á næstunni
en þeim sem hafa áhuga
á að starfa við skólana er
bent á að hafa samband
við skólastjóra þeirra.
Á Egilsstöðum:
Steingrímur Birgisson,
s. 4 700 645 eða á netfanginu
steingrimur@fljotsdalsherad.is –
fljotsdalsherad.is/tonegilsstodum
Í Fellabæ:
Drífa Sigurðardóttir,
s. 4 700 646 eða á netfanginu
drifas@fljotsdalsherad.is –
fljotsdalsherad.is/tonfellabae
Í Brúarási:
Sucana Slamning,
s. 4 700 628 eða á netfanginu
suncana@fljotsdalsherad.is –
fljotsdalsherad.is/tonbruaras
Fljótsdalshérað
er vaxandi sveitarfélag sem
býður upp á fjölskylduvænt
umhverfi. Héraðið er rómað
fyrir veðurblíðu, náttúru-
fegurð og blómlegt mannlíf.
Í samþykktri stefnu setur
Fljótsdalshérað sér að
verða ávallt meðal þriggja
öflugustu þekkingarsvæða
á landsbyggðinni. Vinnu við
metnaðarfulla, heildstæða
menntastefnu sem horfir til
alls menntastarfs í
sveitar-félaginu, er að ljúka
um þessar mundir.