Skólavarðan - 01.05.2008, Blaðsíða 18
18
þING Kí
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008
Fjölmargar samþykktir voru gerðar á 4. þingi KÍ í apríl sl. Hér er örfáum
þeirra gerð skil en hægt er að lesa allar samþykktirnar á www.ki.is
Laun og önnur starfskjör
Lesið stefnu KÍ í kjaramálum 2008-2011 á www.ki.is
Kennarasamband Íslands og aðildarfélög þess leggja áherslu á að:
• Laun og önnur starfskjör félagsmanna standist samanburð við kjör
hópa með sambærilega menntun og ábyrgð í starfi.
• Efla og samræma kjararannsóknir á almennum og opinberum
vinnumarkaði til að auðvelda launasamanburð.
• Hlutfall grunnlauna af launum hækki enn frekar og að dregið verði úr
óhóflegu vinnuálagi.
• Endurskoðunarákvæði sem sett eru í kjarasamninga séu virt, sem og
önnur ákvæði kjarasamninga.
• Kjör kennara geri kennarastarfið eftirsóknarvert.
• Launatryggingakerfi verði tekið upp í kjarasamningum til að tryggja að
einstakir hópar dragist ekki aftur úr vegna mismunandi launaskriðs.
• Kjarasamningar eru lágmarkssamningar.
• Kennslureynsla kennara sé metin milli allra skólastiga.
Ályktun um velferðar- og samfélagsmál
Einkarekstur
Fjórða þing Kennarasambands Íslands beinir því til stjórnvalda að vanda vel
til verka þegar ákvörðun um einkarekstur er tekin. Einkarekstur í opinberri
þjónustu á einungis rétt á sér ef hann leiðir til betri eða sambærilegrar
þjónustu og er ekki dýrari fyrir samfélagið.
Öryggi og velferð borgaranna
Fjórða þing KÍ leggur áherslu á öryggi borgaranna og hvetur í því sambandi
til úrbóta í umferðarmálum, styrkari löggæslu, eflingu forvarna og ekki
síst að hlustað verði vel á raddir þeirra sem best þekkja til þessara mála.
Vilji til samstarfs um enn betra samfélag
Fjórða þing Kennarasambands Íslands lýsir yfir eindregnum vilja sam-
bandsins til að eiga samvinnu við stjórnvöld og önnur hagsmunasamtök
um að byggja upp enn betra samfélag á Íslandi, samfélag þar sem almenn
velferð, tillitssemi og gagnkvæm virðing eru höfð að leiðarljósi.
Eftirlaun kennara
Fjórða þing Kennarasambands Íslands felur stjórn KÍ að finna leið til að efla
einstaklingsbundna ráðgjöf varðandi starfslok og eftirlaun félagsmanna
sem eru að hefja töku lífeyris.
Niðurgreiðsla á líkamsrækt
Fjórða þing KÍ haldið í Reykjavík dagana 9. til 11. apríl 2008 ályktar að
eðlilegt sé að vinnuveitendur niðurgreiði líkamsrækt fyrir fyrir félagsmenn
KÍ.
Brot úr skólamálaályktun 4. þings KÍ
Lesið ályktunina í heild og skólastefnu KÍ 2008-2011 á www.ki.is
Ný lög verða að boða enn betri skóla
Alþingi fjallar nú um frumvörp til nýrra laga um leikskóla, grunnskóla
og framhaldsskóla. Þau byggja á allvíðtækri endurskoðun og stefnu-
mótunarvinnu um skóla- og menntamál sem KÍ hefur tekið virkan þátt í.
Þing KÍ telur ýmislegt í frumvörpunum til bóta miðað við gildandi lög.
Þingið gagnrýnir að í grunnskólafrumvarpinu er dregið úr mögu-
leikum kennara til að hafa áhrif á stjórnun og skipulagningu á innra starfi
skólans. Þingið gerir alvarlega athugasemd við það að skólaárið sé lengt
úr 170 dögum í 180 án skilgreiningar á því til hvers má nota þessa 10
viðbótardaga þannig að ákvæðið fari ekki í bága við gildandi kjarasamning
fyrir grunnskóla. Þingið leggur áherslu á að framkvæmd lagaákvæða verði
tryggð með skýru orðalagi sem tekur af allan vafa um skyldur þeirra sem
vinna eftir þeim.
Þingið telur frumvarp til framhaldsskólalaga geta verið efni í góða
menntastefnu og ýmis jákvæð skref tekin til að bæta nám og skólastarf
í framhaldsskólum. Nokkuð óljóst er þó hvaða breytingar kunna að verða
á skólastarfi, námi og lokaprófum úr framhaldsskóla. Meðal annars
er námstími til stúdentsprófs er ekki tilgreindur, hvorki í árum né í
námseiningum.
Mikilvægt er að tillögur um aukið frelsi skóla til að byggja upp nám og
námsframboð verði tryggt í nýjum lögum um framhalds-skóla þannig að
skólar búi við raunverulegt faglegt sjálfstæði í starfi.
Eitt mikilvægasta markmið breytinga á lögum um skólastigin nú er
að mati þings KÍ að miða lögin og framkvæmd þeirra við nemandann,
nám hans, þroska, skólagöngu, hagsmuni, velferð og réttindi. En jafnframt
undirstrikar þingið að virða þarf og meta störf skólastjórnenda, kennara,
náms- og starfsráðgjafa og annarra starfsmanna skóla. Tryggja þarf góðan
umbúnað um skólastarfið og efla fremur en draga úr virkri þátttöku
starfsmanna í stjórnun, stefnumótun og þróun í grunnskólum landsins.
Þingið hvetur menntamálanefnd Alþingis til að taka mið af fjölmörgum
athugasemdum KÍ í umsögnum sambandsins um skólastigafrumvörpin,
bæði almennum athugasemdum og athugasemdum við einstakar greinar.
Mikilvægt er að löggjöfin sé vel unnin og í sátt við þá sem bera uppi
skólastarf í landinu.
Ályktun um húsnæðismál KÍ
Fjórða þing KÍ haldið í Reykjavík dagana 9. til 11. apríl 2008 felur stjórn
KÍ að gera úttekt á húsnæðisþörf sambandsins til næstu tuttugu ára.
Henni er ætlað að leiða í ljós hvort núverandi húnæðisaðstaða fullnægi
þörfum sambandsins næstu áratugi og þá með hvaða breytingum/
viðbótum.
Niðurstöðu úttektarinnar ásamt tillögum um framtíðarlausn hús-
næðismála KÍ skal leggja fyrir þing KÍ árið 2011.
Opnist sá möguleiki á kjörtímabilinu að byggja við Kennarahúsið
samanber samþykkt þess efnis frá 3. þingi KÍ árið 2005 er stjórn heimilt
að hefjast handa við þá framkvæmd enda leysi hún húsnæðisþörf
sambandsins til frambúðar.
Ákvæði til bráðabirgða:
Komi í ljós á kjörtímabilinu 2008 til 2011 að nýbyggingar á Lands-
pítalalóð muni þrengja svo að starfsemi KÍ að grípa þurfi til sérstakra
ráðstafana vegna þess samþykkir þingið að stjórn KÍ beri ákvarðanir
um slíkt undir ársfund KÍ til samþykktar. Heimilt er stjórn að boða til
aukaársfundar af þessu tilefni.
Tillaga um stuðning við þróunarstarf
Fjórða þing Kennarasambands Íslands haldið í Reykjavík dagana 9. til
11. apríl 2008 samþykkir að fela stjórn KÍ að velja stuðningsverkefni
erlendis í samráði við aðalskrifstofu EI og/eða hjálparstofnanir hér-
lendis, til að styðja þróunarstarf í landi þar sem kennarar og/eða
skólastarf á erfitt uppdráttar vegna stríðsátaka eða annarra hörm-
unga. Til þessa verkefnis skal verja árlega upphæð sem þing ákveður í
fjárhagsáætlun hverju sinni.
Eftirfarandi samþykktir voru gerðar á þinginu (heiti samþykkta):
• Félagsgjald
• Verklagsreglur fyrir skoðunarmenn reikninga
• Félagsgjald félagsmanna í launalausu leyfi samkvæmt 2. málsgrein
6. greinar laga KÍ
• Ályktun um hagræðingu í útgáfumálum
• Fjárhagsáætlun Kennarasambands Íslands 2008 - 2011
• Stefna KÍ í kjaramálum 2008-2011
• Ályktun um kjaramál
• Ályktun um velferðar- og samfélagsmál
• Kannaðar verði leiðir til að koma í veg fyrir tvísköttun greiðslna úr
Vinnudeilusjóði
• Eftirlaun kennara
• Niðurgreiðsla á líkamsrækt
• Skólastefna fyrir Kennarasamband Íslands 2008-2011
• Skólamálaályktun 4. þings KÍ
• Ályktun um náms- og starfsráðgjöf
• Útgáfu- og kynningarmál
• Tillaga um stofnun sjóðs vegna útgáfu á sviði uppeldis- og
menntamála
• Tillaga til HÍ um útgáfu tímarits á sviði uppeldis- og menntamála
• Ályktun um orlofshús og orlofsferðir
• Skipuð verði nefnd til að endurskoða rekstur Orlofssjóðs
• Fjárhagsáætlun Orlofssjóðs 2008-2011
• Mótun þjónustustefnu KÍ
• Ályktun um húsnæðismál KÍ
• Ályktun um eflingu samstarfs aðildarfélaganna
• Ályktun um nýtt aðildarfélag
• Ályktun um ráðningu hagfræðings/sérfræðings á kjarasviði
• Ályktun um félagsmálafræðslu
• Ályktun um langan starfsdag barna
• Framtíðarfyrirkomulag fæðingarstyrkja
• Tillaga um stuðning við þróunarstarf
• Ályktun um styrki vegna krabbameinsleitar
• Siðaráð og kynning á siðareglum
• Ályktun um samstarf við önnur heildarsamtök
• Ályktun um samstarf við vinnuveitendur/stjórnvöld
• Ályktun um áframhaldandi þátttöku í erlendu samstarfi
• Ályktun um jafnréttisstefnu
• Ályktun um jafnréttisnefnd
• Ályktun til stjórnar KÍ frá Jafnréttisnefnd 4. þings KÍ
• Ályktun um stefnumörkun KÍ í vinnuumhverfismálum
• Vinnuumhverfisnefnd KÍ
• Ályktun um vinnuvernd
• Tillaga um samstarf við önnur heildarsamtök opinberra
starfsmanna um Vinnuumhverfismál
• Breytingar á lögum Kennarasambands Íslands - Á 4. þingi KÍ voru
samþykktar nokkrar breytingar á lögum sambandsins og reglum
um Vinnudeilusjóð
• Kosningar - í stjórnir orlofssjóðs, sjúkrasjóðs og vinnudeilusjóðs,
í uppstillingarnefnd, kjörstjórn og skoðunarmenn reikninga, auk
þess var tilkynnt á þingi um réttkjörinn formann og varaformann.
Samþykktir á þingi KÍ