Skólavarðan - 01.05.2008, Side 26
26
FRéTTIR OG TILKYNNINGAR
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 8. ÁRG. 2008
Einn af þekktustu líkamssláttarleikurum Bandaríkjanna, Keith Terry, mun heimsækja
Ísland í lok maí. Hann verður á ferð um Evrópu vegna námskeiða- og tónleikahalds og þáði
boð um að stoppa stutt á Íslandi og leyfa okkur að njóta krafta sinna.
Samtök Orff, tónlistarkennara á Íslandi (SÓTI) eru ákaflega stolt að geta boðið tónlistar-
kennurum og áhugafólki um body percussion upp á námskeið dagana 28. og 29. maí 2008
nk. Námskeiðið fer fram í FÍH salnum, Rauðagerði 27, 108, Reykjavík.
Miðvikudaginn 28. maí kl: 16.00-19.00 Námskeið í FíH, fyrri hluti
Fimmtudaginn 29. maí kl: 13.00-16.00 í FíH, seinni hluti
Fimmtudaginn 29. maí kl: 20.00 Einleikstónleikar í Salnum í Kópavogi
Námskeiðsgjald: 15.000 kr. og er miði á tónleikana í Salnum innifalinn á tónleikana. Allir eru
velkomnir og er miðaverð 1.000 kr. fyrir aðra en námskeiðsþátttakendur. Skráning er hafin
og er áhugasömum bent á að senda netpóst á orff.is@gmail.com með nafni, heimilisfangi,
netfangi og vinnustað.
Um Keith Terry
Keith Terry er slagverksleikari að mennt og var trommuleikari Jazz Tap Ensemble. Hann
hefur þróað stíl þar sem hann notar rytmamynstur á eigin líkama og rödd ásamt hreyfingu
eða dansi. Honum hefur tekist á listrænan hátt að sameina tónlist, dans, leikhús og gjörning
í sýningum sínum. Hann skilgreinir sig sem „body musician“ og notar þannig elsta hljóðfæri
jarðar, líkamann, til að víkka út skilgreiningar á hefðbundinni jass- og nútímatónlist.
Keith Terry er þekktastur fyrir sólóferil sinn og eigin hljómsveit en hann hefur jafnframt
unnið með þekktum listamönnum eins og Lindu Tillery, Bobby McFerrin, Gamelan Sekar
Jaya og Robin Williams. Hann hefur haldið námskeið um öll Bandaríkin og víða í Evrópu og
frá árinu 1998 hefur hann kennt í Department of World Arts and Cultures, University of
California, í Los Angeles. Aðferðir hans eru leiðarljós margra tónlistarmanna og kennara.
Fyrir þá sem hafa verið á námskeiðum Doug Goodkin hér á landi er vert að geta þess að
hann notar aðferðir Keiths mikið í sinni kennslu. Frekari upplýsingar um Keith Terry og
tóndæmi má finna á eftirfarandi slóðum:
www.crosspulse.com/html/aboutkt.html
profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendID=107513936
Stjórn SÓTA
Elfa Lilja Gísladóttir - elfalilja@gmail.com
Kristín Valsdóttir - kristinvals@khi.is
Nanna Hlíf Ingvadóttir - nannahlif@gmail.com
Samtök áhugafólks um starf í anda Reggio (SARE) á Íslandi halda ráðstefnu 28.maí og
námskeið 27.maí um ReMidu í Kennaraháskólanum við Stakkahlíð í Reykjavík. Markmiðið
er að kynna hugmyndafræði ReMidu (efnisveitu) fyrir starfsfólki í leikskólum.
• Fyrir hádegi þann 28.maí verða þrír aðalfyrirlesarar, eftir hádegi verða smiðjur. Hver
þátttakandi velur sér eina smiðju sem stendur í þrjár klukkustundir.
• Ráðstefnugjald er kr. 20.000,- og innifalið er aðgengi að efnivið og búnaði í smiðjum,
ráðstefnugögn, hádegismatur og kaffi.
• Í tengslum við ráðstefnuna verður haldið námskeið þann 27.maí þar sem farið verður í
hugmyndafræði að baki ReMidu. Ráðstefnu- og námskeiðsgjald er alls kr. 35.000,-
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, námkeiðið og skráning www.congress.is/remida
Úthlutun styrkja
úr B-deild Vísinda-
sjóðs Félags leik-
skólakennara
Hér með eru auglýstir námsstyrkir til
félagsmanna FL sem hyggjast stunda
framhaldsnám í leikskólafræðum eða
öðrum greinum er tengjast starfsgrein-
inni skólaárið 2007-2008.
Styrkirnir nema kr. 140.000 til þeirra er
stunda nám hér á landi og kr. 180.000 til
þeirra er stunda nám í útlöndum.
Umfang náms skal vera að lágmarki 15
einingar.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að taka
tillit til starfsaldurs umsækjenda og fleiri
þátta sem hún telur skipta máli.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum
eyðublöðum sem fást á skrifstofu FL/KÍ
og á heimasíðu KÍ, www.ki.is.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2008.
Hér með eru auglýstir styrkir til
einstaklinga til að sækja ráðstefnur
og námskeið erlendis sem nýtast
umsækjanda í starfi. Styrkirnir nema kr.
100.000 -130.000.
Skulu líða a.m.k. þrjú ár frá því að félags-
maður fær styrk til utanfarar þar til hann
getur sótt um slíkan styrk aftur.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til að taka
tillit til starfsaldurs umsækjenda og fleiri
þátta sem hún telur skipta máli.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum
eyðu-blöðum sem fást á skrifstofu FL/KÍ
og á heimasíðu KÍ, www.ki.is.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2008.
Nánari upplýsingar um styrkina gefa
starfsmenn sjóðsins María, maria@ki.is
og Sigrún, sh@ki.is eða í síma 595-
1111.
Stjórn Vísindasjóðs FL
Úthlutun hærri ferða-
styrkja úr A-deild
Vísindasjóðs Félags
leikskólakennara
Body percussion námskeið
28. -29. maí 2008
ReMida – skapandi efnisveita
Ráðstefna haldin í Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð