Skólavarðan - 01.10.2001, Blaðsíða 5
Ef sú verður raunin að til verkfalls komi
er það í fyrsta skipti sem tónlistarkennarar
grípa til verkfallsvopnsins í baráttu fyrir
hærri launum. Þeir krefjast þess að laun
þeirra verði hækkuð í samræmi við laun
framhaldsskólakennara. Samningaviðræður
hafa nú staðið í rúmt ár án nokkurs árang-
urs. Öðrum kennurum sem samið hafa á
undanförnum misserum hefur verið boðin
allt að 25 prósent launahækkun. Mikill ein-
hugur og samstaða eru meðal tónlistar-
kennara og varð söguleg þátttaka í kosn-
ingum um verkfallsboðun, 90 prósent
félagsmanna tóku þátt og 98 af hundraði
sögðu já.
Púlsinn tekinn
Skólavarðan skrapp í kaffi í hina stór-
glæsilegu tónlistarskóla í nágrannasveitar-
félögunum Hafnarfirði og Garðabæ. Á
kaffistofunni í Garðabæ voru þau Björn
Davíð Kristjánsson þverflautukennari,
Hjörleifur Valsson fiðlukennari og aðstoð-
arskólastjóri, Edward Frederiksen sem
kennir á blásturshljóðfæri, Sigrún Ragnars-
dóttir, Sigríður Freyja Ingimarsdóttir, Kol-
brún Ósk Óskarsdóttir og Sigríður Ása Ó-
lafsdóttir sem allar kenna á píanó. Í Hafn-
arfirði hittum við fyrir þau Helga Bragason
yfirkennara og Valgerði Andrésdóttur sem
kennir á píanó.
Öll eru þau sammála um að samstaða
meðal tónlistarkennara sé mikil en segjast
ekki mjög bjartsýn á að deilan leysist fyrir
boðað verkfall og segja að menn séu til-
búnir til að láta reyna á verkfall til að fá
leiðréttingu launa. Tónlistarkennarar hafi
um árabil verið seinþreyttir til vandræða og
beðið eftir því að fá leiðréttingu en nú sé
langlundargeðið á þrotum og fólki nóg
boðið.
„Við erum virkilega vonsvikin yfir því
hvernig málin hafa þróast og okkur finnst í
raun gert lítið úr okkur. Yfirvöld stæra sig
af blómlegu tónlistarlífi út á við en þegar
kemur að því að borga tónlistarkennurum
mannsæmandi laun þá stoppar allt.
Það vill enginn fara í verkfall en nú er
okkur er alveg nóg boðið, fram til þessa
höfum við verið sundurleitur hópur en
núna eru vilji okkar og samstaða eindreg-
in,“ segja þau.
„Við höfum ekki verið mikill þrýstihópur
en verkfall okkar kemur til með að hafa
mikil áhrif á nemendur sem stunda nám við
tónlistarskóla. Foreldrar eru meðvitaðir um
það og margir hverjir hafa lýst yfir áhyggj-
um af framhaldinu, við eigum allan þeirra
stuðning,“ halda þau áfram.
Margar spurningar vakna hjá foreldrum.
Hvað með skólagjöldin, fást þau endur-
greidd? Slík ákvörðun er á valdi þeirra
sveitarfélaga sem í hlut eiga og líklega
verða engar ákvarðanir teknar um endur-
greiðslu fyrr en að væntanlegu verkfalli
loknu.
BA próf meðalmenntun tónlistar-
kennara
„Fyrir um það bil sjö árum voru tónlist-
arkennarar með sambærileg laun og grunn-
skólakennarar og þar áður voru laun þeirra
hærri. Kennsluskylda tónlistarkennara er
meiri en hjá grunnskólakennurum og með
einsetningu grunnskóla breyttist vinnutím-
inn og kennsla fer að mestu fram síðla dags
og fram á kvöld. Oftar en ekki eru nem-
endatónleikar utan vinnutíma þar sem tón-
listarkennari fær ekki borgað fyrir vinnu
sína og það á við um fleiri tónleika sem
nemendur og kennarar standa að. Oftar en
ekki fáum við bara þétt handtak og klapp á
bakið en allir aðrir sem koma að tónleikun-
um, svo sem tæknimenn og skipuleggjend-
ur, fá borgað,“ segir Helgi.
Tónlistarkennarar eru yfirleitt mjög vel
menntaðir en hátt í 80 prósent þeirra eru
með þriggja til fjögurra ára framhalds-
menntun.
„Maður getur ekki ákveðið að loknu
stúdentsprófi að verða tónlistarkennari og
hafa aldrei spilað né lært á hljóðfæri. Tón-
listarskólakennarar hafa lært á hljóðfæri frá
unga aldri og hafa því langa menntun að
baki. Flestir hafa fram til þessa farið utan í
framhaldsnám, það kostar mikla peninga
svo að margir tónlistarkennarar eru með
þung námslán á bakinu,“ segja Helgi og
Valgerður og undir það taka kollegar
þeirra í Tónlistarskólanum í Garðabæ.
„Sérmenntun okkar er mjög mikil, við
Viðtö l
6
Þegar þessi grein er skrifuð eru um
það bil 620 tónlistarkennarar að und-
irbúa sig fyrir verkfall sem hefst
mánudaginn 22. október, semjist ekki
fyrir þann tíma. Þann dag verður tón-
listarskólum lokað og engin starf-
semi fer þar fram fyrr en verkfall leys-
ist. Ekki er heimilt að endurskipu-
leggja starfsemi skólanna í verkfalli
þótt til þess hafi verið boðað.
Tónlistarkennarar á leið í verkfall
Okkur er hreinlega nóg boðið
„Tónlistarskólar líta á
alla nemendur sína sem
undrabörn og vilja veg
þeirra sem mestan, því
höfum við að sjálfsögðu
áhyggjur af þeim ef til
verkfalls kemur. Það eru
fötluð börn hér við tón-
listarskólann í Hafnar-
firði og þau og fjöl-
skyldur þeirra eiga eftir
að finna mikið fyrir
verkfallinu þar sem tón-
listarkennsla er stór
þáttur í þjálfun barn-
anna og fastur punktur
sem þau eiga erfitt með
að vera án.“
Helgi Bragason og Valgerður Andrésdóttir