Skólavarðan - 01.10.2001, Blaðsíða 9
Þann 1. október var starfsemi orlofssjóðs
Kennarasambands Íslands og orlofsnefndar
Félags leikskólakennara sameinuð. Frá
þeim tíma mun öll afgreiðsla orlofshúsa
fara fram á skrifstofu Kennarasambandsins,
Laufásvegi 81. Beinn sími er 595-1122.
Hægt er að panta orlofshúsnæði í tölvu-
pósti, netfang orlof@ki.is. Á heimasíðu or-
lofssjóðs eru upplýsingar um þá staði sem
eru í boði í vetur ásamt öðrum upplýsing-
um um starfsemi sjóðsins.
Nánari upplýsingar er að finna á heima-
síðu orlofssjóðs http://www.ki.is/orlof/
Um næstu áramót sameinast allt skrif-
stofuhald félaganna en hagkvæmt þykir að
sameina starfsemi orlofssjóðanna strax.
Fleiri orlofshús og íbúðir
Eignir orlofssjóðs eru verulegar. Nú eru
til leigu fyrir félaga þrettán orlofshús í Ása-
byggð á Flúðum, eitt hús í Kjarnaskógi við
Akureyri og Sóleyjargata 33 í Reykjavík, en
þar eru fjórar íbúðir og fimm herbergi.
Einnig á orlofssjóður fjóra tjaldvagna.
Nýbúið er að kaupa húseignina Sóleyjar-
götu 25 í Reykjavík en þar verða fjórar
íbúðir og fjögur herbergi til leigu. Stefnt er
að því að útleiga hefjist þar í byrjun mars á
næsta ári.
Framkvæmdir standa yfir við byggingu á
sex glæsilegum 90m2 orlofshúsum í Heið-
arbyggð í landi Ásatúns rétt við Flúðir. Þau
verða tekin í notkun 1. júní á næsta ári.
Heimanmundur leikskólakennara
Við sameiningu orlofssjóðanna kemur
verulegt fjármagn frá leikskólakennurum til
þeirra framkvæmda sem nú standa yfir.
Miðað við bráðabirgða uppgjör í septem-
ber sl. átti sjóðurinn um 25 milljónir kr. í
banka og áætluðum tekjum vegna sölu
þriggja orlofshúsa til BSRB.
Hærra orlofsgjald fyrir leikskóla-
kennara
Vinnuveitendur leikskólakennara greiða
nú 0,5% af launum í orlofssjóð þeirra. Aðr-
ir félagar Kennarasambandsins fá aðeins
0,25%. Því hefur framkvæmdastjórn or-
lofssjóðs óskað eftir því við stjórn Kennara-
sambands Íslands að hún geri þá kröfu til
atvinnurekenda að þeir samræmi orlofs-
gjaldið þannig að greidd verði 0,5% vegna
allra félaga í Kennarasambandinu. Mikil-
vægt er að þetta réttlætismál nái fram að
ganga sem fyrst.
Vetrarleiga
Í vetur verða sjö staðir í boði fyrir félaga
Kennarasambandsins.
Sóleyjargata 33, fjórar íbúðir og fimm
herbergi.
Ásabyggð við Flúðir, þrettán orlofshús
með heitum potti.
Kjarnaskógur við Akureyri, nýtt
orlofshús.
Vaðnes í Grímsnesi, tvö glæsileg or-
lofshús með heitum potti.
Eystra Miðfell í Hvalfirði, nýtt orlofs-
hús með heitum potti.
Akurgerði í Ölfusi, tvö ný orlofshús
með heitum potti (eigandi tekur sjálfur
við pöntunum í símum 483-4449 og 893-
9814)
Garðshorn, Eyrarbakka (eigandi tekur
sjálfur við pöntunum í símum 483-1120 og
864-1120)
Hægt er að panta húsin og íbúðirnar
með allt að fjögurra mánaða fyrirvara en
staðgreiða þarf við bókun á þeim húsum
sem eru bókuð á skrifstofu Kennarasam-
bandsins.
Leiga um jól og áramót
Á Sóleyjargötu þarf að sækja um leigu
íbúða og herbergja og senda umsóknina á
skrifstofu Kennarasambands Íslands fyrir
23. nóvember.
Í Ásabyggð, Kjarnaskógi og Vaðnesi er
hægt að panta strax hvort sem um er að
ræða vikuleigu eða staka daga. (Sjá nánar
auglýsingu á opnunni).
Spánn
Síðastliðin ár hafa leikskólakennarar haft
Orlofsmál
10
Orlofssjóðir sameinast