Skólavarðan - 01.10.2001, Síða 19
Róið á Ísafi rð i
21
En það á ekki við um þann kappróður
sem hér er til umfjöllunar og í stað þess að
róið sé á ám er róið í söltum sjó og í stað
grænna skóga er bakgrunnurinn fögur
fjallasýn Ísafjarðar. Staðurinn er Pollurinn,
keppendur ekki þrautreyndir sjóarar heldur
kennarar og nemendur Menntaskólans á
Ísafirði.
Pollurinn skartaði sínu fegursta daginn
sem keppnin fór fram og jafnvel sjálfir veð-
urguðirnir voru sæförunum hliðhollir.
Fimm áhafnir tóku þátt í róðrinum. Fjórar
sveitir nemenda, tvær karla og tvær kvenna,
auk sveitar kennara sem að þessu sinni var
eingöngu skipuð fulltrúum kvenna af
kennarastofunni. Til formanns vald-
ist að sjálfsögðu skólameistarinn
sjálfur, Ólína Þorvarðardóttir, og fór
hún fyrir sínu liði sem nefndist
Ólínurnar.
Ólína segir keppnina hafa verið
hina bestu skemmtun og að hún hafi
vakið mikla athygli. Ólína fór með
sjóferðabæn í stafni áður en lagt var í
hann og jafnvel fuglarnir á Pollinum vott-
uðu virðingu sína með þögn og þeir nem-
endur sem báru höfuðföt tóku þau ofan á
meðan. Bæjarins besta á Ísafirði segir frá
keppninni á fréttavefnum bb.is:
,,Áður en lagt var í róðurinn las Ólína
formaður sjóferðabæn að hætti feðranna.
Enda var keppni þessi ekki einungis til
gamans heldur einnig til þess að efla
tengslin við liðna tíma og horfna atvinnu-
hætti íslensku þjóðarinnar. Reyndar var
ekki venja manna á fyrri tíð að róa að jafn-
aði eins ákaflega og gert var í gær heldur
einungis í brimróðrinum svonefnda. Senni-
lega hefði fólki liðinna alda þótt einkenni-
legt hátterni að róa lífróður og brimróður í
blæjalogni eins og gert var á Ísafirði í gær.“
Sigurvegari í keppninni á tímanum
1 mínúta 45,9 sekúndur var sveit sem
nefndist Sigursveitin, þar fór fyrir fríðum
flokki karlræðara formaðurinn Rakel Guð-
björg Magnúsdóttir. Ólínurnar sigruðu í
kvennaflokki á tímanum 1 mínúta 46,2 sek-
úndur. Sveit kennara skipuðu hásetarnir
Agnes Karlsdóttir, Friðgerður Ómarsdótt-
ir, Guðlaug Sverrisdóttir, Helga Bára
Bragadóttir, Ingibjörg Ingadóttir og Svein-
fríður Högnadóttir auk formanns sem áður
var getið.
Þegar kappróðrinum lauk sýndu nem-
endur í kajakáfanga listir sínar en í
Menntaskólanum á Ísafirði er boðið upp á
kennslu í kajakróði á
íþróttabraut og er
það í fyrsta sinn sem
boðið er upp á slíka
kennslu á framhalds-
skólastigi. Umsjón
með kennslunni hafa
þeir Hermann Níelsson íþróttakennari við
skólann og Halldór Sveinbjörnsson for-
maður Kajaksklúbbs Ísafjarðar.
Hugmyndin að náminu er komin frá
þeim, þeir kynntu sér námsefni sem í boði
var, bæði í bókum og myndböndum, not-
uðu netið og komust að þeirri niðurstöðu
að þetta væri vel hægt, mögulegt væri að
setja saman námsefni þar sem bæði væri
hefðbundin kennsla í stofu og verkleg á sjó
og í sundlaugum. Halldór hefur verið við-
loðandi kajakróður í átta ár og staðið fyrir
námskeiðum sem tengjast honum.
Nú stunda fjórtán nemendur þennan
áfanga, átta stelpur og sex strákar, og að
sögn Halldórs eru þau öll vel á veg komin
þótt þau hafi mismikla reynslu af róðri.
Í hópnum voru algjörir byrjendur og svo
strákar sem höfðu stundað róður og segir
Halldór það koma að góðum notum við
kennslu úti á sjó og við veltuæfingar í
sundlaug Flateyrar.
Eins og í öðrum kennsluáföngum lýkur
þessum áfanga með prófi sem felst meðal
annars í því að þau velja sér tvo samnem-
endur og kenna þeim undirstöðuatriðin í
kajakróðri ásamt því að taka skriflegt próf.
Halldór segir skemmtilegt hve konur eru
áhugasamar um kajakróður og telur að
hann henti þeim að mörgu leyti betur en
körlum vegna líkamsbyggingarinnar,
þyngdarpunktur þeirra sé neðar en
hjá körlum og því sé jafnvægi þeirra
betra. Einnig sé auðveldara að kenna
konum því að þær geti gert fleiri
hluti í einu en karlar.
,,Konur geta horft á sjónvarpið,
prjónað, lesið og talað í einu en karl-
ar geta bara einbeitt sér að einum
hlut. En það sem háir konum er að þær
hafa ekki eins gott úthald.“
Í lok októbermánaðar verður fyrsta
,,alvöruferðin“ farin. Þá verður siglt inn
Önundarfjörð og er tilhlökkun mikil. Tek-
ið verður með nesti og eldspýtur og eldar
kveiktir á ströndinni ef veður leyfir.
Þessi kennsla er skemmtileg nýbreytni
og hafa skólar annars staðar á landinu
kynnt sér málið og stefna jafnvel að því að
feta í fótspor Ísfirðinga. Og væntanlega
verður keppni kennara og nemenda á Poll-
inum jafn árviss og keppni þeirra ensku.
Steinunn Þorsteinsdóttir
Róðrarkeppni meðal kennara og
nemenda? Hvað kemur upp í hug-
ann? Jú, það minnir okkur óneitan-
lega á skólabæina Oxford og
Cambridge á Englandi. Þar hafa
skólanemar keppt í róðri svo áratug-
um skiptir og orðið skáldum og kvik-
myndagerðarmönnum efniviður í
meistaraverk.
Kappróður á sléttum sjó
- skólameistari formaður á sexæringi
Ólína fer með sjóferðabæn
Kennsla í kajakróðri