Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 12
Franskir dagar Les jours français
12 13
Báturinn var svo seldur í byrjun ársins 2016 til
björgunarsveitarinnar Heimamanna í Reyk-
hólahreppi.
Í lok ársins 2015 rættist svo langþráður draumur
sveitarinnar, þegar skrifað var undir smíðasamn-
ing við skipasmíðastöðina Rafnar í Kópavogi á
nýjum, lokuðum björgunarbát fyrir björgunar-
sveitina. Báturinn er af gerðinni Leiftur 1100
SAR, og er 11 metra langur með tveimur 250
hestafla utanborðsvélum og ganghraða upp á
rúmar 40 sjómílur og með byltingarkenndu
skrokklagi. Nýi báturinn fékk einnig nafnið
Hafdís, af sömu ástæðu og fyrri bátur.
Hafdís er ákaflega vel búinn tækjum og öðrum
búnaði og tók sjóflokkur björgunarsveitarinnar
þátt í hönnun á ýmsu í bátnum.
Björgunarsveitarbílarnir
Björgunarsveitin Geisli hefur í raun ekki átt
margar bifreiðar í gegnum þessi 50 ár og skýrist
það einna helst af því að aldrei hefur verið farið
í það að kaupa nýja bifreið, bara til að kaupa nýja
bifreið. Notagildið hefur fyrst og fremst ráðið.
Fyrsti bíllinn var UAZ 450, frambyggði rússa-
jeppinn sem fyrr er minnst á, keyptur 1978, og
var bíll þess tíma.
Árið 1985 kom svo arftaki rússajeppans, Mercedes
Benz Unimog, sem fluttur var inn frá Þýskalandi
og hafði verið þar í þjónustu slökkviliðs. „Múkk-
inn“ var kröftugt tæki, sem fór kannski ekki hratt
yfir en var ansi öflugur og nýttist vel í störfum
björgunarsveitarinnar þá.
Árið 1991 flutti björgunarsveitin svo sjálf inn
nýjan Ford Econoline 250 frá Bandaríkjunum,
og var honum að öllu leyti breytt af félögum
björgunarsveitarinnar. Árni Sigurður Jónsson átti
stærstan hlut í því, hann sá um að hækka bílinn
upp, setti undir hann framhásingu, millikassa
og fleira og breytti bílnum fyrir 33“ dekk,
sem þá þóttu bara býsna stór.
Bíllinn tók 12 manns í sæti og var mjög auð-
velt að taka úr honum sætin ef nota þyrfti
hann í annað, til dæmis til að flytja liggjandi
mann, sem kom fyrir, þegar vantaði auka sjúkrabíl.
Bíllinn var mjög vel heppnaður og reyndist vel.
Bíllinn var þó nokkuð þungur og komst ekki
alltaf allt í miklum snjó, frekar en margir aðrir
bílar á þessum tíma.
Dekkin fóru svo stækkandi og jeppar urðu öflugri,
fóru að komast lengra og notagildi Econoline
fór minnkandi.
Sumarið 1999 var Ford Econoline bifreiðin svo
seld og keyptur var nýr Land Rover Defender
110, sem var breytt fyrir 38“ dekk. Land Rover-
inn fékkst á góðu verði og var nokkuð vinsæll
hjá mörgum björgunarsveitum á þessum tíma,
þar sem hann þótti einnig mjög léttur.
Áfram héldu svo dekk að stækka og Land Rover
var farinn að sitja eftir og ekki gott fyrir sveitina
að komast ekki til þeirra sem nú voru á öflugri
bílum, en vantaði aðstoð.
Land Rover var svo seldur árið 2007
og núverandi bifreið, Nissan Patrol
keypt ný, og breytt fyrir 44“ dekk.
Patrol-inn fékkst einnig á hag-
kvæmu verði, þar sem sjö björg-
unarsveitir tóku sig saman og létu
bjóða í átta bíla, bæði bílana sjálfa
og breytingarnar. Þessi bifreið dugir
björgunarsveitinni ennþá vel í það
sem henni er ætlað.
Árið 2012 bætti björgunarsveitin
svo við VW Transporter T5, árgerð
2005, til að spara meira Patrol og
nota í þau verkefni sem ekki kalla á
breytta jeppabifreið. Þessi bifreið var
keypt notuð og hefur reynst sveitinni
afskaplega vel, meðal annars við fólksflutninga
og hafa slysavarnakonurnar einnig notið
góðs af honum þegar þær hafa átt leið á
fundi eða aðra viðburði.
Húsakostur og búnaður
Fyrstu árin var lítil þörf á húsnæði
undir starfsemi björgunarsveitar-
innar. Fluglínutækin fengust í upphafi
geymd í kjallaranum á Skrúði og síðar í
slökkvistöðinni, annar búnaður var lítill,
og auðvelt að fá inni fyrir fundi meðal
annars í slökkvistöðinni, í verkalýðshús-
inu og Skrúði.
Eftir endurreisnina og komu sjúkrabílsins, var
sjúkrabílnum komið fyrir í tvöföldum bílskúr
við Hafnargötu, sem stóð á milli Félagsgarðs og
Læknishússins. Þar fékk björgunarsveitin svo inni
með Zodiac slöngubátinn og eitthvað af sínum
búnaði, auk þess sem björgunarsveitarbíllinn var
oft geymdur við skúrinn.
Hafdís (7677). Mynd: Jónína G. Óskarsdóttir.
Hafdís (7750). Mynd: Grétar Helgi Geirsson. Ford Econoline E250, breytt í björgunarsveitarbíl að öllu leyti heima.
Nissan Patrol, á 44" dekkjunum fyrir framan núverandi húsnæði
björgunarsveitarinnar, að Grímseyri 9. Mynd: Grétar Helgi
Geirsson.
Land Rover Defender 110, var yfirleitt kallaður
„Robbinn“.
Bílskúrinn austan við Læknishúsið og við hann fyrsti
björgunarsveitarbíllinn og fyrsti sjúkrabíllinn á Fáskrúðsfirði.
Mynd: Bjarni Björnsson.
Mercedes Benz Unimog („Múkkinn“) Ungi drengurinn á myndinni heitir
Sölvi Kristinn Jónsson. Mynd: Bjarni Björnsson.