Franskir dagar - 01.07.2016, Side 27
Franskir dagar Les jours français
27
Ostakúla
400 g rjómaostur (í bláa boxinu)
1 lítill rauðlaukur
1 rauð paprika
1 poki hunangsristaðar hnetur
Takið rjómaost úr ísskáp og hafið við
stofuhita. Saxið rauðlauk og papriku smátt.
Blandið þessu saman í skál. Myndið kúlu með
höndum, notið einnota hanska.
Setjið filmu yfir og geymið í kæli yfir nótt.
Saxið hnetur og veltið svo kúlunni uppúr.
Sírópslengjur
400 g hveiti
200 g sykur
200 g smjörlíki
1 stk. egg
1 tsk. natron (matarsódi)
1 tsk. kanill
1 msk. síróp
Blandið öllu saman og hnoðið í hrærivél,
rúllið í lengjur, setjið á plötu og þrýstið
ofan á. Bakið við 200°C.
Skerið lengjurnar í bita á meðan þær eru
heitar.
Kryddbrauð mömmu
3 dl hveiti
3 dl haframjöl
2 dl sykur
1 tsk. kanill
1 tsk. engifer
1 tsk. negull
2 tsk. matarsódi
3 dl mjólk
1 stórt egg
Hrærið öllu saman og setjið í eitt smurt
form.
Bakið við 200°C fyrstu 15 mín., lækkið í
175°C og bakið í 25 mín.
Gott að bera fram með íslensku smjöri
og osti.
Marengsrúlla
4 eggjahvítur (stórar)
3 dl púðursykur
hjartarsalt á hnífsoddi
1 1/2 bolli rice crispies
Fylling
1 1/2 - 2 pelar rjómi
1 bolli fersk jarðarber, skorin í bita
1 bolli fersk bláber
2-3 Snickers, skorin í bita
50 g súkkulaði
Þeytið eggjahvítur og púðursykur mjög vel
saman, bætið hjartarsalti út í. Setjið rice
crispies varlega saman við þegar eggja-
hvíturnar eru þeyttar að fullu. Smyrjið
á bökunarpappír, passið að nota bök-
unarplötu undir og bakið við 135°C í u.þ.b.
50 mín. Látið kólna. Þeytið rjómann og
smyrjið á marengsinn. Stráið Snickersi,
bláberjum og jarðarberjum jafnt yfir (takið
nokkur ber frá til að skreyta með í lokin).
Rúllið marengsinum varlega upp. Bræðið
súkkulaðið í vatnsbaði, hellið því yfir í
mjórri bunu og skreytið með berjum.